Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar að þessu sinni er platan Keyboard Fantasies með kanadíska söngva- og tónskáldinu Beverly Glenn-Copeland.
Keyboard Fantasies kom fyrst út á kassettu árið 1986, gefin út af Glenn-Copeland sjálfum og seldist í fáeinum eintökum.
Platan er öll rafræn utan raddar Copeland, algjörlega unnin á Yamaha DX-7 hljómborð og Roland TR-707 trommuheila, stafræn hljóðfæri sem voru um það leyti sem Keyboard Fantasies kom út, að ryðja sér til rúms sem helstu tæki teknó og housetónlistarfólks.
Glenn-Copeland var langt á undan sinni samtíð og tónlist hans féll í gleymsku. Árið 2015 komst japanskur plötusafnari yfir Keyboard Fantasies og hafði uppi á Copeland og bað hann að senda sér kassettur til að selja. Copeland samþykkti og kasseturnar ruku út. Fljótlega fór honum að berast beiðnir um endurútgáfu og platan var gefin út á vínil 2017 og hefur verið endurpressuð nokkrum sinnum síðar, auk annarrar tónlistar Glenn-Copelands.
Lagalisti:
A1: Ever New
A2: Winter Astral
A3: Let Us Dance
B1: Slow Dance
B2: Old Melody
B3: Sunset Village
Umsjón: Pétur Eggertsson

frá Veðurstofu Íslands.
Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.
Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Sprengja sem sprakk á Ási í Fellum árið 1946 kostaði fjögur mannslíf. Talið er að sprengjan hafi verið skilin eftir af breska hernámsliðinu. Mikið var fjallað um atburðinn í fjölmiðlum í nokkrar vikur en svo fjaraði umræðan út og um leið krafan um sprengjuleit þrátt fyrir að þess væru mörg dæmi að ósprungin skothylki fyndust í Norður-Múlasýslu síðan breski herinn var þar við skotæfingar.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Kvikmyndin Trainspotting er þrítug um þessar mundir. Hún kom fyrst í kvikmyndahús 23. febrúar 1996 og hefur síðan öðlast sess í kvikmyndasögunni og er að mörgum talin meðal bestu kvikmynda tíunda áratugarins. Myndin fjallar um vinahóp í Edinborg í Skotlandi sem er djúpt sokkinn í heróínneyslu. En Trainspotting er miklu meira en en saga af ógæfusömum vinum, eins og Dagný Hulda Erlendsdóttir komst að þegar hún spjallaði við Kevin Williamson. Hann var sá sem fyrstur gaf Trainspotting út, þá sem smásögur í menningartímariti. Hann segir að bókin og kvikmyndin hafi verið mikilvæg vopn í menningarstríði verkalýðsins í Skotlandi gegn elítunni í Bretlandi á tíunda áratugnum. Í því stríði hafi verkalýðurinn haft betur.
Svo fjöllum við um sögu sjónvarpsstöðvarinnar MTV. Það bárust fregnir af því fyrir áramót að stöðin góðkunna væri að leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir að hún var stofnuð árið 1981. Við ætlum að skoða sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Við Veghúsastíg í miðbæ Reykjavíkur stendur gamalt hús sem til stendur að rífa. Hvaða minningar eru tengdar húsinu og hvað þýðir það að húsið muni brátt hverfa? Í þættinum er tekið viðtal við Þór Hafstein Hauksson, fyrrum íbúa á Veghúsastíg og Snjólaugu G. Jóhannesdóttur, doktorsnema í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Umsjón: Karólína Ósk Þórsdóttir

Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Hversu skynsamleg er skynsemin? Sigurður Kristinsson fostöðumaður hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri ræðir við Pál Skúlason og Ævar Kjartansson í þættinum.

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Sunnu Gunnlaugsdóttur pínaóleikara um tónlistarlíf hennar til dagsins í dag.
Tónlistin í þættinum:
Go Round Merry - Sunna Gunnlaugsdóttir
Fagra veröld - Sunna Gunnlaugsdóttir /Tómas Guðmundsson
Ástakvæði - Sunna Gunnlagusdóttir/Jón úr Vör
Five - Bill Evans Tríóið
Spin2 og Spin3 - spunakaflar tríós Sunnu
Cielito Lindo - Quirino Mendoza y Cortés
Ancestry - Tríó Sunnu með trompetleikaranum Verneri Pohjola

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um bandaríska rithöfundinn og náttúruverndarsinnann Rachel Carson, sem vakti athygli bandarísks almennings á skaðsemi skordýraeitursins DDT með bók sinni Raddir vorsins þagna 1962.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Big Crazy Energy Band leikur lögin Seasons Wander, I Know Later, Boone Dog Café, Ear Trumpet, Out Of the Night og A Day In The Life. Norr 4 kvartettinn flytur lögin Grænn, Haldið í hrynið, Pow Wow, Kvartil, Ég skulda, Krami og Blástjarnan. Kvintett Herb Ellis leikur lögin Phil's Tune, Blues For Janet, Patti Cake, Soft Winds, Pap's Blues og Big Red's Boogie Woogie.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Má ég lána hann Grána þinn út á bæi, spurði aðkomumaðurinn Austfirðinginn og Austfirðingurinn rak upp stór augu og spurði, hverjum ætlar þú að lána hann Grána minn? Þá varð hinn undrandi og mælti, skilur þú mig ekki? Nei, Austfirðingurinn skildi ekki. Þetta var um miðja 20. öld og nú er þetta orðalag komið aftur inn í málið en eftir öðrum leiðum. Orð af orði fer langa leið að þessari breytingu með hringferð um landið að skoða forsetningar með staðanöfnum og enskum áhrifum en endar í afturbeygðum og óákveðnum fornöfnum.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Egill Arnarson segir frá sínu uppáhalds tónverki, Le buisson ardent, eftir Charles Koechlin.
Flytjendur: Radio-Sinfonieorchester Stuttgart des SWR, stjórnandi Heinz Holliger, Christine Simonin, ondes martenot.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Síðari þáttur Jóns Ormars um hamfarir þær sem urðu í Halaveðrinu 1925. Í þættinum segir frá ferðum þriggja togara og þeim miklu erfiðleikum sem áhafnir þeirra lentu í .
Lesari með umsjónarmanni Sigríður Kristín Jónsdóttir.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan grefur upp lög frá fyrri tíð, m.a. Gunnari Ormslev, en aðallega lög þar sem Finnur Eydal kemur við sögu. Þar á meðal er tónlist sem hljómsveit Finns Eydal, auk tónlistar með ásamt Atlantic kvartettinum. Einnig syngja Elly Vilhjálms og Svavar Lárusson auk þess sem leikin eru nokkur lög frá Ítalíu.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Miðnæturfréttir.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
í dag er alþjóðlegur dagur móðurmálsins og þvi var tilvalið að fá Kristínu R Vilhjálmsdóttur kennara og menningarmiðlara í fimmu sem varð auðvitað fimm tungumál. Kristín fluttist 6 ára til Danmerkur þar sem hún hefur búið síðan. Hún tapaði íslenskunni og lærði ekki aftur fyrr en á fullorðinsaldri. Kristín sagði okkur sögu sína og talaði um fjársjóðinn sem felst í tungumálum.
Svo litum við á það sem gerðist á deginum, heyrðum nýja tónlist og minntumst Haraldar Sigurðssonar eða Halla sem féll frá 18. febrúar


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Í nýjasta þætti Lagalistans sest leikkonan Íris Tanja hjá okkur og fer í gegnum lögin sem hafa fylgt henni í gegnum lífið. Frá uppvexti til leiklistarferilsins og öllu þar á milli – tónlistin speglar augnablikin sem mótuðu hana. Hlustaðu og kynnstu Írisi Tönju á nýjan hátt.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
