
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.


Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um sænska glæpamanninn Rawa Majid, sem kallaður er Kúrdíski refurinn.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Steinunn G. Helgadóttir myndlistarkona og rithöfundur.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.


Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.


Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Brot úr Morgunvaktinni.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem hugtökin trú, von, kærleikur og minningar koma við sögu með einum eða öðrum hætti. Fyrstu tvö lögin eru eftir Stefán S. Stefánsson. Þór Breiðfjörð og Regína Ósk Óskarsdóttir syngja fyrra lagið sem heitir Trú, en Þór syngur seinna lagið sem heitir Morgunstund. Páll Róskinkranz syngur lag sem Jóhann G. Jóhannsson samdi 1971 við kærleiksboðskap Páls postula. Hann syngur líka lag sem heitir Náttúrbarn (Ég hugsa um þig) eftir Roland Hartwell en textann gerði Stefán Hilmarsson. Maríanna Másdóttir og Már Guðnason syngja Upp á afskekktri hæð, lag eftir George Bennet en íslenski textinn er eftir Ásmund Einarsson. Anna Gréta Sigurðardóttir flytur sálminn Nú vil ég enn í nafni þínu og Valgerður Guðnadóttir og Edgar Smári Atlason syngja lag Jóhanns Helgasonar Ég á trú. Edgar Smári syngur lagið Ferðalangur sem er eftir Fernando Ortega en íslenska textann gerði Guðlaug Gunnarsdóttir. Hjalti Gunnlaugsson og Þóra Gísladóttir syngja lokalagið sem heitir Sannleikurinn og er eftir Hjalta. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í ágúst 2022. Sævar Helgi Bragason, Álfrún Alfie Gísladóttir, Hanin-Al-Saedi, Karl Frímannsson og Guðrún Ásta Tryggvadóttir fjalla um upphaf.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.

Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.