Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Nýtt frumvarp gerir stjórnvöldum kleift að vista útlendinga sem vísa á úr landi í nýju úrræði sem hefur ýmist verið lýst sem brottfararstöð eða lokuðu búsetuúrræði. Fulltrúar ungmennaráða Barnaheilla, Ungheill, ásamt Amnesty og Unicef sendu inn eigin umsögn um frumvarpið til Alþingis þar sem þau mótmæltu því harðlega að börn og fjölskyldur yrðu sett í varðhald, eins og þau orðuðu það sjálf. Þau fengu í framhaldinu boð um að mæta á fund með allsherjar- og menningarmálanefnd til að segja sína skoðun og upplifun á þessu fyrirkomulagi. Við fengum til okkar þetta unga hugsjónafólk, Ástrósu Ingu Jónsdóttur frá Ungheillum og Magnús Inga Árnason frá Amnesty, til að ræða málið.
Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon hefur skrifað undir samning við Nike, sem er auðvitað einn stærsta íþróttvöruframleiðandi í heimi. Þetta þýðir að nú getur Baldvin gert helsta áhugamálið sitt að atvinnu án þess að þurfa hafa fjárhagsáhyggjur. Baldvin er einn fremsti hlaupari okkar Íslendinga og varð í byrjun árs fyrsti Íslendingurinn til þess að hlaupa tíu kílómetra á undir tuttugu og átta mínútum. Baldvin var á línunni.
Eins og fjallað hefur verið um þá verða Hvalfjarðargöng lokuð mánudaga til föstudaga frá klukkan 21.30 til 6 til 29. Maí vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum. Kallað hefur verið eftir undanþágum á lokuninni ásamt því að fólk veltir fyrir sér hvað er á bakvið þessar tímasetningar. Morgunútvarpið svaraði þessum spurningum og fleiri til og Svanur Bjarnason, svæðisstjóri Suðursvæðis hjá Vegagerðinni, var á línunni.
Besta deild karla hefst í kvöld með sannkölluðum stórleik Víkings og Breiðabliks. Morgunútvarpinu rann því blóðið til skyldunnar og hóaði í Guðmund Benediktsson, sparkspeking og sjónvarpskokk. Guðmundur kom og fór yfir helstu sögulínur deildarinnar og þeirrar veilsu sem nú er í gangi í heimi íþróttanna bæði í körfunni og golfinu.
Karen Kjartansdóttir samskiptafulltrúi og Sigurður Kári Kristjánsson hæstaréttarlögmaður komu til okkar í Morgunútvarpið og fóru yfir fréttir vikunnar eins og þeim einum er lagið.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.