Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands er í miklum vandræðum eftir birtingu enn fleiri skjala sem tengjast Epstein og Peter Mandelson, sem hann skipaði sendiherra í Bandaríkjunum í fyrra. Starmer segir Mandelson hafa logið að sér og öðrum, en viðurkenndi líka í gær að hafa vitað um tengsl þeirra Epsteins. Þetta og fleira tengt skjölunum var til umræðu í Heimsglugganum með Boga Ágústssyni.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, ræddi um efnahagsmálin við okkur. Hann lítur á ummæli forsvarsmanna Seðlabankans við kynningu vaxtaákvörðunar í gær sem beina hótun í garð verkalýðshreyfingarinnar.
Við skoðuðum nýja könnun um heilbrigðisþjónustu og kostnað, ekki síst meðal öryrkja, með Rúnari Vilhjálmssyni prófessor við Háskóla Íslands. Svo var rætt um samspil næringar og líðanar við Ingunni Erlu Ingvarsdóttur, klínískan næringarfræðing.
Tónlist:
English Chamber Orchestra - Smile.
Nat King Cole - Smile.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]


Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Það er martröð í skáldskap og tónum sem verður efni þessa þáttar. Til forna trúði fólk því að til væri óvættur, mara, sem legðist ofan á sofandi fólk eða traðkaði á því og af því er orðið „martröð“ dregið. Í Ynglinga sögu Snorra Sturlusonar segir frá því þegar mara treður mann til bana. Skáldkonan Natasha S. vísar til goðsagnarinnar um Möru í ljóðabók sinni „Mara kemur í heimsókn“ og í þættinum verða lesin þrjú ljóð úr henni. Einnig verður lesið ljóð „Martröð“ eftir Örn Arnarson og flutt tónverk Hildigunnar Rúnarsdóttur við ljóðið. Af öðrum tónskáldum sem hafa lýst martröð í tónum má nefna Gioacchino Rossini, Hanns Eisler og Antonio Francisco Braga. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Melkorka Ólafsdóttir.


Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritanir frá tónleikum á nýafstöðnum Myrkum músíkdögum, annars vegar hljómar verk Huga Guðmundssonar frá tónleikum píanókvartettsins Neglu og hins vegar hljóma tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur. Báðir tónleikar fóru fram í Norðurljósum, Hörpu, 31. janúar 2026. Georg Magnússon hljóðritaði tónleikana og umsjón með þættinum hefur Berglind María Tómasdóttir.
Frá tónleikum píanókvartettsins Neglu:
Hugi Guðmundsson (1977):
Centuria (2025) – Frumflutningur
I. Covenant
II. Crystalline
III. Carillon
Píanókvartettinn Negla:
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla
Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla
Júlía Mogensen, selló
Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó
Frá tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur:
Haukur Þór Harðarson (1989)
Roots, Laments (2026) – Frumflutningur
Þuríður Jónsdóttir (1967)
Incerti frammenti (1999)
Tryggvi M. Baldvinsson (1965)
Jarðljós (2025) – Frumflutningur
Ljóð: Gerður Kristný (1970)
I Aðfangadagur
II Hirðir
III Kirkja
IV Aftaka
V Jarðljós
Flytjendur
Einsöngvari:
Herdís Anna Jónasdóttir, sópran
Kammersveit Reykjavíkur:
Áshildur Haraldsdóttir, flauta
Matthías Nardeau, óbó
Rúnar Óskarsson, klarinett
Francisco Soutinho Ventura, fagott
Arthur Zanin, trompet
Floris van Daalen, básúna
Frank Aarnink, slagverk
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir,, fiðla
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla
Hrafnkell Orri Egilsson, selló
Richard Korn, kontrabassi
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó
Stjórnandi:
Hjörtur Páll Eggertsson

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Sýnt hefur verið fram á að ágreiningur vegna heimilisverkanna er ein helsta ástæða hjónaskilnaða. Appinu Heima er ætlað að lækka þessa tölfræði en þar er á ferðinni verkfæri til þess að auka samvinnu innan heimilisins, virkja krakka og unglinga og byggja langvarandi rútínur til þess að halda öllum boltum á lofti innan heimilisins. Alma Dóra Ríkarðsdóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, stofnendur Heima, komu í Morgunútvarpið og sögðu okkur frá appinu.
Varaþingmaðurinn Sindri S. Kristjánsson velti því upp á Alþingi í vikunni hvernig bær verður borg. Síðasta haust ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni framkvæmd sérstakrar borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Með samþykkt borgarstefnu hefur Alþingi viðurkennt mikilvægi þess að efla Akureyri sem formlega svæðisborg. Sindri kom til okkar og benti á að til þess að stefnan verði að veruleika þurfi aðgerðir.
Verðbólga hækkar hér á landi og hæstu stýrivextir í Evrópu lækka ekki. Stjórnvöld benda á olíufélögin og bílaumboðin í leit að sökudólgum. Seðlabankinn bendir á stjórnvöld og gagnrýnir launahækkanir. Verkalýðsforystan býr sig undir kjaraviðræður. Á meðan klórar almenningur sér í hausnum og veltir fyrir sér afborgunum á húsnæðisláninu. Til að ræða þetta allt saman mætti til okkar Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri.
Af hverju er forseti Bandaríkjanna að skipta sér að því hver kemur fram á hálfleik ofurskálarinnar? Tónlistarmaðurinn Bad Bunny sópaði Grammy-verðlaunum á dögunum og verður í sviðsljósinu þegar Seattle Seahawks og New England Patriots mætast í ofurskálinn á sunnudag. Donald Trump er ekki ánægður með að Bad Bunny komi þar fram og Morgunútvarpið fékk til sín útvarpsmanninn Kristján Guðjónsson úr Lestinni á Rás 1 til að segja okkur allt um tónlistarmanninn og af hverju hann er umdeildur.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.