07:03
Morgunvaktin
Forsætisráðherra Bretlands í krísu, efnahagsmál og heilsa

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands er í miklum vandræðum eftir birtingu enn fleiri skjala sem tengjast Epstein og Peter Mandelson, sem hann skipaði sendiherra í Bandaríkjunum í fyrra. Starmer segir Mandelson hafa logið að sér og öðrum, en viðurkenndi líka í gær að hafa vitað um tengsl þeirra Epsteins. Þetta og fleira tengt skjölunum var til umræðu í Heimsglugganum með Boga Ágústssyni.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, ræddi um efnahagsmálin við okkur. Hann lítur á ummæli forsvarsmanna Seðlabankans við kynningu vaxtaákvörðunar í gær sem beina hótun í garð verkalýðshreyfingarinnar.

Við skoðuðum nýja könnun um heilbrigðisþjónustu og kostnað, ekki síst meðal öryrkja, með Rúnari Vilhjálmssyni prófessor við Háskóla Íslands. Svo var rætt um samspil næringar og líðanar við Ingunni Erlu Ingvarsdóttur, klínískan næringarfræðing.

Tónlist:

English Chamber Orchestra - Smile.

Nat King Cole - Smile.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,