Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 10. maí 2014.
Umsjón: Jón Óskar Hafsteinsson
Jón Óskar leikur tónlist að eigin vali.

frá Veðurstofu Íslands.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Á dögunum kom hin goðsagnakennda hip-hop sveit Subterranean saman á ný eftir áratuga hlé. Fyrir nokkrum árum mátti þó litlu muna, að einn meðlimur sveitarinnar ætti ekki afturkvæmt á tónlistarsviðið.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið.
Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra. Það sem kannski færri vita er að merkið sjálft á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekki aðeins verið notað í hinum stafræna heimi. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um sögu @ merkisins.
Svo eru það dekkri hliðar netsins, það er orð ársins 2025 hjá Oxford-orðabókinni, bræðibeita. Í desember fjölluðum við um þetta orð síðasta árs, bræðibeita eða rage bait á ensku. Orðið er notað yfir efni á netinu sem er ætlað að kveikja bræði eða reiði lesenda til þess að fá fólk til að smella á efnið. Notkun orðsis hafði þrefaldast síðustu tólf mánuði þegar það varð fyrir valinu sem orð ársins. Oddur Þórðarson fjallar um málið.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Viðar Hákon Söruson hefur víða komið við sögu í íslenskri músík á síðustu áratugum. Hann fékk þó nóg af músíkbransanum um tíma, flutti til Noregs og hætti að semja tónlist. Ekki leið þó á löngu að hann var farinn að semja og taka upp músík aftur, nánast óafvitandi, með það fyrir augum að koma sjálfum sér sífellt á óvart.
Lagalisti:
Karnival í Texas - Magnificat
Óútgefið - 5 dreki miles
Óútgefið - emmi komma snjokoma_03
Óútgefið - nice county side A bitch
Óútgefið - Erna M18
Óútgefið - Like a kid _4 MASTER
Óútgefið - In da Browsa Bnc2
Óútgefið - EmmaPisi

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Árið 1991 kom Dangerous út sem innihélt smelli á borð við Black or White og Jam. Enn er Michael Jackson óumdeildur konungur poppsins en brátt sígur á ógæfuhliðina.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 11. júlí 2015.

Útvarpsfréttir.
Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi var velgjörðamaður listamanna á fyrrihluta tuttugustu aldar og ásamt móður sinni Unu Gísladóttur rak Unuhús, litla rauða timburhúsið í Garðastræti. Í þremur þáttum tileinkuðum Erlendi kynnumst við manninum gegnum augu vina hans, þeirra Þórbergs Þórðarsonar, Halldórs Laxness og Nínu Tryggvadóttur. Í Unuhúsi var rekið gistiheimili og voru þar haldnar kvöldvökur þar sem list, pólitík, heimsmál, heimspeki og trúmál voru rædd í þaula og má gera ráð fyrir að hafi verið skjól fyrir bæði fólk sem átti ekki í önnur hús að venda sem og róttæka hugmyndafræði. Verður sjónum einnig beint að rýminu Unuhúsi og því sem einkenndi það, sem og listinni sem var að brjótast upp á yfirborðið á þessum tíma.
Viðmælendur eru Pétur Gunnarsson, Soffía Auður Birgisdóttir, Jón Karl Helgason, Rósa Magnúsdóttir, Halldór Guðmundsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.
Umsjón hefur Sunneva Kristín Sigurðardóttir.
Þórbergur Þórðarson kemur í Unuhús árið 1913 og hittir þá fyrst stórvin sinn Erlend Guðmundsson og móður hans Unu Gísladóttur. Mæðginin bjarga Þórbergi frá sulti sem vill alla tíð skrifa bók um Unuhús en lætur ekki verða að því nema viðtalsbók við Stefán frá Hvítadal, Í Unuhúsi. Í verkum Þórbergs koma þó fram lýsingar á Unuhúsi og Erlendi, í dagbókum og síðast drögum að bréfi til Erlendar yfir í annan heim. Þórbergur og Laxness áttu í ritdeilum um Erlend og velta upp pólitískri sannfæringu Erlendar sem og hinni réttu mynd mannsins. Kvöldvökurnar, sósíalisminn, snúðarnir...
Viðmælendur eru Soffía Auður Birgisdóttir hugvísindamaður við rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, Jón Karl Helgason prófessor í íslensku við Háskóla Íslands og Pétur Gunnarsson rithöfundur.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá Noregi, Póllandi og Rúmeníu
Gard Nilssen Acoustic Unity | NRK (Noregur)
André Roligheten (1985 ) - Dancing Flowers
Signe Emmeluth - Vinden Stiger
Joanna Duda Trio | PR (Pólland)
Joanna Duda (1983) - When the Truffles Get Dry
Joanna Duda (1983) - We're New to this Planet
Joanna Duda (1983) - Ibis Budget
Jóanna Duda og tríó hennar með bassaleikaranum Jort Terwijn og trommaranum Michał Bryndal. Tónlistin er af plötunni Delighted, sem kom út árið 2025
Răzvan Florescu Quartet | ROR (Rúmenía)
Răzvan Florescu (1998) - Tabasco
Răzvan Florescu (1998) - Endless
Mircea Tiberian (1955) - Mediterranean Gospel
Rúmenski víbrafónleikarinn Răzvan Florescu, Andrei Petrache á píanó, Mike Alex á bassa og Philip Goron á trommur.
Gard Nilssen's Acoustic Unity frá Noregi.
Petter Eldh (1983) - Bankebrett,
... eftir bassaleikarann Petter Eldh, en auk hans og trommarans Gards Nilssens skipa hljómsveitina saxófónleikararnir Kjetil Møster ,Signe Emmeluth og André Roligheten. Og einhversstaðar í þessum vef má kannski heyra í gítar Jónasar Alaska.
Tónlist af plötunni sem fékk spelmannsprisen í Noregi fyrir tónlist ársins 2025- Great intentions.

Fréttir

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Kvartett Charlie Haden leikur lögin Body and Soul, Passion Flower, My Foolish Heart, Hermitage, Bay City og The Blessing. Tríó Red Garland leikur lögi Second Time Around, You'd Better Go Now, On A Clear Day, It's Alright With Me, I Wish I Knew og Going Home. Hljómsveit Kaspers Villume leikur lögin Blame It On My Youth, All The Things You Are, My Man's Gone Now, The Speedmaster, Song og Bubbles.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson
Fjallað um Sigurð Þorsteinsson sem fæddur var 1929 og lést 2008. Sigurður var sjómaður alla sína ævi. Lesið er úr bókinni ,,Alltaf til í slaginn" sem er frásögn af líffsiglinu Sigurðar og það var Friðrik Erlingsson sem skráði. Vaka-Helgafell gaf út 1992. Í þessum þætti segir frá fyrstu árum Sigurðar til sjós, námsárum og strandsiglingum á Heklunni 1953-1958. Einnig vinnu í Danmörku og Frakklandi á vegum Óskar Halldórssonar og Hæringi, risaskipi sem sótt var til vesturstrandar Ameríku og var stuttan tíma í eigu Íslendndinga.
Lesari með umsjónarmanni Bryndís Þórhallsdóttir
Þátturinn var frumfluttur 6. nóvember 2009
Tónlist:
Farmaður hugsar heim. Lag, Þórunn Franz, texti Árilíus Níelsson, söngur Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason. 2.50
Sjómannavalsinn eftir Svavar Benediktsson og Kristján frá Djúpalæk.
Hljómsveitin Hjaltalín flytur. 2:50


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Kennarar eru Sigurði Flosasyni tónlistarmanni hugleiknir en hann hefur mörgum kennt í gegnum árin. Fimman hans fjallaði um kennara sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og leikurinn berst frá lúðrasveitum og Tónmenntaskólanum í Reykjavík til Bandaríkjanna, Indiana og New York.
Svo heiðrum við afmælisbörn dagsins og skoðum hvað gerðist á deginum

Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.

Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Lovísu er grínistinn Sóli Hólm

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
