10:13
Flugur
Lög við ljóð þriggja skáldkvenna

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur, Magneu J. Matthíasdóttur og Ingibjargar Haraldsdóttur. Flest lögin eru eftir Ingva Þór Kormáksson og Tómas R. Einarsson, en það hljóma líka eftir fleiri höfunda. Lögin í þættinum heita Stafalogn, Tíminn í maí, Stefnumót, Yfirlýsing, Vor, Ég hata nóttina, Vinur eins og ég, Vegsummerki, Eyja, Nostalgía og Nú eru aðrir tímar. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 45 mín.
,