18:00
Kvöldfréttir útvarps
Aðalmeðferí í Edition-málinu, FÍA og Icelandair ætla að klára samning fyrir haustið, samningi um hjólhýsabyggð rift

Fréttir

Fréttir

Kona sem ákærð er fyrir að verða dóttur sinni að bana á Edition-hótelinu í fyrra glímir ekki við geðrænan vanda, að mati dómskvadds matsmanns. Aðalmeðferð hélt áfram í dag.

Icelandair og FÍA hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjarasamningsviðræðna. Félögin stefna að því að klára kjarasamninga fyrir 15. september.

Formaður borgarráðs segir samning sem gerður var við Samtök hjólabúa um nýja hjólhýsabyggð í Gufunesi illa gerðan og því ekki stætt á öðru en að rifta honum. Umhverfis- og skipulagssvið hafi ekki gefið út afnotaleyfi vegna hjólhýsa, hvorki við Sævarhöfða né í Gufunesi.

G7-ríkin hafa sammælst um viðskiptaþvinganir á Rússland til að auka þrýsting um stríðslok í Úkraínu. Forseti Bandaríkjanna segir að Rússar eigi að semja um stríðslok.

Atvinnuvegaráðherra segist afar stolt af nýju miðlægu atvikaskráningarkerfi fyrir ferðaþjónustuna. Fjölgun ferðamanna hafi haft ýmsar áskoranir í för með sér.

Tónleikagestir á Þingvöllum um helgina mega ekki hafa með sér stóla og regnhlífar að beiðni lögreglu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,