Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjólinu hljómar hljóðritun frá tónleikum Caput á Myrkum músíkdögum sl. föstudag, þann 30. janúar í Norðurljósum, Hörpu. Um upptökur sá Georg Magnússon.
Gísli Magnússon: Sól ek á (2024-25) – Frumflutningur
Gunnar Andreas Kristinsson: Klarinettkvintett (2026) – Frumflutningur
Veronique Vaka: Eyland fyrir harmoniku og kammersveit (2025)
Einleikari: Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Hugi Guðmundsson: Absentia fyrir fiðlu og kammersveit (2015)
Einleikari: Gerður Gunnarsdóttir
Masaya Ozaki og「ronja」: spidernetwork: boku wa… desutoroiya (2026) – Frumflutningur
