10:13
Flugur
Enn fleiri söngvar við ljóð Steins Steinarrs

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þriðji þátturinn þar sem allskonar söngvar við ljóð Steins Steinarrs eru dregnir fram. Þó nokkrir lagasmiðir hafa samið lög við sömu ljóðin og eru þau býsna ólík. Lögin í þættinum eru Eins og gengur sem Jóhann Sigurðarson og Íris Guðmundsdóttir syngja, Ræfilskvæði með Grasösnum, Í tvílyftu timburhúsi með Þorsteini Einarssyni, Sýnir með Regínu Ósk Óskardsdóttur, Í draumi sérhvers manns með Jóni Tryggva Unnarssyni, Eldur með Mannakornum, Grautur og brauð með Ellert Borgari Þorvaldssyni, Gömul vísa um vorið með Bjartmari Guðlaugssyni, Brúðkaupsvísa í gömlum stíl með Álftagerðisbræðrum, Gömul skriftarmál með Tovoton Keis og Húsið sefur með Ingrid Örk Kjartansdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 46 mín.
,