12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 30. september 2026

Útvarpsfréttir.

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur ákveðið að fara í mál við íslenska ríkið vegna bókunar þrjátíu og fimm við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Frumvarp um bókun 35 var lagt fram á Alþingi í síðustu viku. Utanríkisráðherra segir Ísland ekki hafa uppfyllt skuldbindingar sínar.

Félags- og húsnæðismálaráðherra segist ekki hafa vitað af skilaboðum sem eiginkona hans sendi Guðmundi Inga Kristinssyni, þar sem Guðmundi voru settir afarkostir: að stíga úr ráðherrastóli – eða stríð.

Lögregla fann ekkert blóð í bíl manns sem er ákærður fyrir að hafa orðið félaga sínum að bana á heimili hans á Kársnesi. Aðalmeðferð hélt áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Öldrunarhjúkrunarfræðingur segir að geðlyf séu gefin á hjúkrunarheimilum með þörf og vellíðan sjúklinga í huga. Tæp 40 prósent íbúa hjúkrunarheimila fengu sterk geðlyf í fyrra.

Forsætisráðherra Noregs segir ekkert óeðlilegt við fjárstuðning norska ríkisins við bandaríska hugveitu með tengsl við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Reynslan af hugveitunni hafi verið jákvæð.

Öldrun þjóðar og færra fólk á vinnumarkaði eru meðal stærstu áskorana framtíðarinnar fyrir almannatryggingakerfið. Aukið samspil við lífeyrissjóði skipti miklu máli segir forstjóri Tryggingastofnunar.

Neyðarástand skapaðist í flugferð frá Dúbaí til Tel Aviv í morgun þegar annar flugmaður vélarinnar stakk hinn, samkvæmt frásögnum farþega.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,