11:00
Guðsþjónusta
í Reykholtskirkju

Hátíðarmessa í Reykholtskirkju í Borgarfirði. Þrjátíu ára vígsluafmæli Reykholtskirkju á Reykholtshátíð 2026. Frú Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, prédikar. Sr. María G. Ágústsdóttir, sóknarprestur, þjónar fyrir altari ásamt sr. Ursulu Árnadóttur og sr. Geir Waage.

Organisti er Dóra Erna Ásbjörnsdóttir. Kirkjukór Reykholtskirkju leiðir sálmasöng. Einsöng annast Lára Kristín Gísladóttir og Jóhannes Guðbrandsson. Tónlist flytja listamenn úr röðum tónlistarfólks Reykholtshátíðar: Joaquin Páll Palomares og Guðbjartur Hákonarson á fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu, og Sigurður Bjarki Gunnarsson á selló.

Hanna Margrét Gísladóttir, guðfræðinemi, fer með lokabæn.

Tónlistin í messunni:

Forspil: Largo úr einleikssónötu nr. 3 í C-dúr eftir Johann Sebastian Bach

Fyrir predikun

Númer Heiti lags/sálms Höfundar

328 Þér lýðir lofið Drottin J. Berthier / Taizé

265 Þig lofar, faðir, líf og önd Sigurbjörn Einarsson / N. Decius

Einsöngur Maríukvæði Atli Heimir Sveinsson / Halldór Kiljan Laxness

Tónlist Andante úr Divertimento í F-dúr K.138 eftir Wolfgang Amadeus Mozart

Eftir predikun

630 Heyr himnasmiður Kolbeinn Tumason / Þorkell Sigurbjörnsson

299 Vér lofum þig, Kristur S. Ellingsen – Sigurbjörn Einarsson/H. Gullichs.

315 Þín minning, Jesú Helgi Hálfdánarson / Barth, Gesius

784 Ísland ögrum skorið Eggert Ólafsson / Sigvaldi Kaldalóns

Eftirspil: Rondó eftir Jean-Philippe Rameau

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 1 mín.
,