13:00
Í boði náttúrunnar
Sjálfsþurftabúskapur

Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.

Frá 2011

Umsjónarmenn: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason

Tæknimaður: Sigrún Björg Aradóttir

Lengd þáttar: 48:59.

Innihald: í þessum þætti heimsækja þáttastjórnendur hjónin Elisabeth Jóhönnu Zitterbart og Stefán Lárus Karlsson að Ytra Bægisá á Þelamörk. Það sem einnkennir heimilislífið á bænum er heimilisreksturinn sem er í anda sjálfþurftarbúskapar og fá þáttastjórnendur að kynnast því hvernig ýmsar mjólkurvörur fyrir heimilið eru unnar heima fyrir ásamt öðrum matvörum. Auk þess rækta þau sitt eigið grænmeti, nýta villijurtir og ýmislegt annað sem náttúran í þessari fallegu sveit býður uppá. Svo má ekki gleyma ullinni, en Elísabet er handlagin kona og nýtur ullina, bein, horn og margt fleira til að gera fallegt handverk.

Viðmælendur:

1. Elísabet Jóhanna Zitterbart og Stefán Lárus Karlsson.

Tónlist:

1. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

2. Its All Right, Traveling Willburies, Traveling Willburies,

3. Milk Cow Blues, Sidney Bechet, Shake ´Em Up!,

3. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,