19:00
Tónleikakvöld
100 ára afmælistónleikar Útvarpshljómsveitarinnar í Prag

Hljóðritun frá opnunartónleikum 100 ára afmælisárs Útvarpshljómsveitarinnar í Prag sem fram fóru í Rudolfinum-tónleikahúsinu í Prag, 24. september sl.
Flutt var sama efnisskrá og á fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar árið 1926:
- Forleikur að óperunni Selda brúðurin eftir Bedrich Smetana.
- Rómönsur í G-dúr op. 40 og í F-dúr op. 50 fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Ludwig van Beethoven.
- Þættir úr Legendy, Goðsögnum op. 59, eftir Antonín Dvorák.
- Sinfónía nr. 2 í Es-dúr op. 38 eftir Zdenek Fibich.
Einleikari: Jan Mrácek fiðluleikari.
Stjórnandi: Elias Grandy.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
Aðgengilegt til: 27. nóvember 2026
Lengd: 1 klst. 30 mín.