Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Íslendingar treysta viðbragðsaðilum og stjórnvöldum til að bregðast rétt við hamförum en fæstir eru sjálfir undirbúnir fyrir hamfarir eða neyðarástand, samkvæmt fyrstu heildstæðu könnuninni á þessum málum. Það þarf að koma okkur úr “þetta reddast” hugsunarhættinum - en hvernig verður það gert? Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, forstöðumaður hugveitunnar Vörðu, ræddi við okkur.
Borgþór Arngrímsson sagði okkur frá dönskum málum. Ekki er komin ný ríkisstjórn í Danmörku en viðræður halda áfram. Veðrið hefur leikið hluta Danmerkur grátt undanfarið, og
þættirnir Danska konan fá góða dóma í landinu, þar sem þeir eru sýndir um þessar mundir.
Stjórnvöld í Kólumbíu hafa ákveðið að aflífa tugi villtra flóðhesta; afkomendur dýra sem eiturlyfjabaróninn Pablo Escobar flutti til Kólumbíu á níunda áratugnum. Flóðhestarnir hafa fjölgað sér mikið undanfarna þrjá áratugi; þeir hafa valdið usla í kólumbískri náttúru, og eru sagðir hættulegir fólki. Margir Kólumbíumenn hafa þó tekist ástfóstri við þá. Vera Illugadóttir sagði frá.
Tónlist:
Roger Miller - King of the road.
Roger Miller - Dear heart.
Lay Low - 9 to 5.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mun setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið og hann var hjá okkur í dag ásamt Jóni Karli Ólafssyni, fyrrum umdæmisstjóra Rótarý Ísland, en Rótarý hreyfingin skipuleggur daginn með aðstoð bakhjarla.
Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra en þetta eru 70 ára afmælistónleikar hans og afmælisdagurinn er í dag. Á tónleikunum verða einsöngvarar og margir kórar sem starfa á Suðurlandi en Björgvin sjálfur er Selfyssingur í húð og hár og þar hófst tónlistarferill hans. Við spjölluðum við Björgvin í þættinum í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. En í dag fræddi hún okkur um muninn á körlum og konum þegar kemur að heilsufarskvillum tengdum offitu.
Tónlist í þættinum í dag:
Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)
Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður og karlakór Reykjvíkur(Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)
Það varst þú / Óskar Pétursson (Björgvin Þ Valdimarsson)
Smooth Sailing / Horace Henderson and his Orchestra (Thompson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Mennta- og barnamálaráðherra ætlar að breyta einkunnakerfi í grunnskólum. Formaður Kennarasambandsins heyrði fyrst í dag af áformunum og sakar stjórnvöld um samráðsleysi.
Aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu hófst í Landsrétti í morgun. Tveir sakborningar áfrýjuðu sautján ára fangelsisdómi fyrir að verða karlmanni á sjötugsaldri að bana í fyrra.
Biðlistar eftir meðferð í Krýsuvík lengjast sífellt. Forstöðumaður segir kókaínneyslu aukast og vill auknar forvarnir.
Sigurvegari þingkosninga í Ungverjalandi fór í morgun í fyrstu viðtölin í ríkisfjölmiðlum landsins í eitt og hálft ár. Hann krefst afsagnar forsetans, sem er bandamaður Viktors Orbans.
Persónuvernd endurgreiðir sektir sem hún lagði á fimm sveitarfélög fyrir að nota skýjalausn Google í grunnskólastarfi.
Bóndi í Kjósarhreppi telur brotið á kosningarétti sínum. Þar verður ekki gengið til sveitarstjórnarkosninga því aðeins einn framboðslisti barst.
Hljómsveitin VÆB frumflytur lag Barnamenningarhátíðar 2026 í Breiðholtsskóla í hádeginu. Við lítum inn í fréttatímanum.
Kvennalandsliðið í fótbolta færðist skrefi nær HM-sæti með sigri á Úkraínu í gærkvöld. Sérfræðingur segir að Ísland eigi erindi á mótið.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Það styttist í sveitarstjórnarkosningarnar sextánda maí og línur eru nú að skýrast hvað framboðin varðar. Og í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að nöfnum á stjórnmálaflokkum. Má flokkur heita hvað sem er? og eru ákveðnar stefnur og straumar þegar kemur að slíkum nöfnum?
Viðmælendur: Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar, og Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land.
Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Í þessum þætti heyrum við hljóðritun finnska útvarpsins YLE á tónleikum Miles Davis kvintettsins í Kulttuuritalo menningarhúsinu í Helsinki 1. nóvember 1967.
Sending frá EBU sem hlutast til um að samstarfsstöðvar útvarps í Evrópu leiti í söfnum sínum að hljóðritunum með Miles Davis sem hefði orðið 100 ára í ár.
Efnisskrá:
1
Miles Davis (1926-1991) - Agitation
2
Wayne Shorter (1933-2023) - Footprints
3
Thelonious Monk (1917-1982) - Round Midnight
4
Richard Carpenter (20th cent.) - Walkin'
5
Wayne Shorter (1933-2023) - Masqualero
Flytjendur:
Miles Davis, trompet
Wayne Shorter, tenórsaxófónn
Herbie Hancock, píano
Ron Carter, kontrabassi
Tony Williams, trommur
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Í fjórða þætti er fjallað um Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands. Viðmælendur eru Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor og Valur Ingimundarson sagnfræðiprófessor.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Yfirleitt heyrum við mikið um ókosti synda og slæmra lasta, en í pistli sínum í dag telur Eiríkur Örn Norðdahl upp kosti lastanna.
Something Very Bad is Going to Happen er nýr brúðkaupshryllingur á Netflix. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir tekur þá fyrir.
Við rifjum líka upp afdrifaríka strætóferð í Lestinni fyrir rúmum tveimur árum síðan, þegar við hittum skáldið og bókasafnarnn Guðmund Arnfinnsson eða Munda.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Sex listar eru í framboði í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast umræðum. Þátttakendur eru Ómar Ingþórsson, Samfylkingu, Sævar Birgisson, Framsóknarflokki, Sveinn Óskar Sigurðsson, Miðflokki, Hilmar Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, Gylfi Þór Þorsteinsson, Viðreisn og Árni Jónsson Vini Mosfellsbæ.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá tónleikum hljómsveitarinnar Il Giardino Armonico á Somnets Musicaux tónlistarhátíðinni í Gstaad í Sviss í febrúar sl.
Á efnisskrá eru sjö konsertar eftir Antonio Vivaldi úr L'estro armonico safninu op. 3.
Einleikari: Isabelle Faust fiðluleikari.
Stjórnandi: Giovanni Antonini.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land.
Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mun setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið og hann var hjá okkur í dag ásamt Jóni Karli Ólafssyni, fyrrum umdæmisstjóra Rótarý Ísland, en Rótarý hreyfingin skipuleggur daginn með aðstoð bakhjarla.
Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra en þetta eru 70 ára afmælistónleikar hans og afmælisdagurinn er í dag. Á tónleikunum verða einsöngvarar og margir kórar sem starfa á Suðurlandi en Björgvin sjálfur er Selfyssingur í húð og hár og þar hófst tónlistarferill hans. Við spjölluðum við Björgvin í þættinum í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. En í dag fræddi hún okkur um muninn á körlum og konum þegar kemur að heilsufarskvillum tengdum offitu.
Tónlist í þættinum í dag:
Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)
Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður og karlakór Reykjvíkur(Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)
Það varst þú / Óskar Pétursson (Björgvin Þ Valdimarsson)
Smooth Sailing / Horace Henderson and his Orchestra (Thompson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Yfirleitt heyrum við mikið um ókosti synda og slæmra lasta, en í pistli sínum í dag telur Eiríkur Örn Norðdahl upp kosti lastanna.
Something Very Bad is Going to Happen er nýr brúðkaupshryllingur á Netflix. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir tekur þá fyrir.
Við rifjum líka upp afdrifaríka strætóferð í Lestinni fyrir rúmum tveimur árum síðan, þegar við hittum skáldið og bókasafnarnn Guðmund Arnfinnsson eða Munda.

Útvarpsfréttir.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Í þessum þætti fæddist nýr dagskráliður sem heitir Gæðaþrennan. Í honum velur Andri einhverja plötu og spilar þrjú lög af plötunni í þættinum, eitt á hverjum klukkutíma. Platan sem var fyrir valinu er meistaraverk Happy Mondays, platan Pills ’n’ Thrills and Bellyaches. Ný lög frá The Strokes og Kurt Vile fengu einnig að hljóma, ásamt mun fleiri lögum auðvitað, sjá lagalista takk.
Lagalisti þáttarins:
ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS – Harðsnúna Hanna
HAPPY MONDAYS – Step On
EN VOGUE – My Lovin' (You're Never Gonna Get It)
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, MARON BIRNIR REYNISSON, ALASKA1867 – Stoppa tímann
BUBBI MORTHENS – Serbinn
KK – Lífið er
10CC – I'm Not in Love
EMILÍANA TORRINI – Unemployed summertime
ADDISON RAE – Headphones On
THE BEATLES – Free as a Bird
FRIÐRIK DÓR JÓNSSON – Þessi kjóll
KENYA GRACE – Strangers
EYÞÓR INGI GUNNLAUGSSON – Hugarórar
HAPPY MONDAYS – Kinky Afro
HARRY STYLES – American Girls
THE AD LIBS – The Boy from New York City
KURT VILE – Chancer
ELÍN HALL IZLEIFUR – Hugsa alltof mikið um þig
ALPHAVILLE – Forever Young
KRUMMI – Smile till it ends
KINGFISHR – The Blade
SOMA – Grandi Vogar 2
CRACKER – Low
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
EURYTHMICS – There Must Be an Angel
MEMFISMAFÍAN – Syngdu
HAPPY MONDAYS – God’s Cop
PETER BJÖRN & MEN – Young Folks
UNA TORFADÓTTIR, ÁGÚST ÞÓR BRYNJARSSON – Inn í síðustu nóttina
OLIVIA DEAN – Nice to Each Other
KINGS OF LEON – Sex on Fire
IVAR KLAUSEN – Damage done
ERIC CLAPTON – Knockin’ on Heaven’s Door
TAYLOR SWIFT – Elizabeth Taylor
THE STROKES – Going Shopping
LAUFEY – Mr. Eclectic
KLARA EINARSDÓTTIR – Kominn heim
DÁÐI FREYR PÉTURSSON – Hot damn
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL – Má ég?
ENSÍMI – Böstaðir í tollinum
STEELY DAN – Dirty Work
THE STONE ROSES – Waterfall

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Mennta- og barnamálaráðherra ætlar að breyta einkunnakerfi í grunnskólum. Formaður Kennarasambandsins heyrði fyrst í dag af áformunum og sakar stjórnvöld um samráðsleysi.
Aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu hófst í Landsrétti í morgun. Tveir sakborningar áfrýjuðu sautján ára fangelsisdómi fyrir að verða karlmanni á sjötugsaldri að bana í fyrra.
Biðlistar eftir meðferð í Krýsuvík lengjast sífellt. Forstöðumaður segir kókaínneyslu aukast og vill auknar forvarnir.
Sigurvegari þingkosninga í Ungverjalandi fór í morgun í fyrstu viðtölin í ríkisfjölmiðlum landsins í eitt og hálft ár. Hann krefst afsagnar forsetans, sem er bandamaður Viktors Orbans.
Persónuvernd endurgreiðir sektir sem hún lagði á fimm sveitarfélög fyrir að nota skýjalausn Google í grunnskólastarfi.
Bóndi í Kjósarhreppi telur brotið á kosningarétti sínum. Þar verður ekki gengið til sveitarstjórnarkosninga því aðeins einn framboðslisti barst.
Hljómsveitin VÆB frumflytur lag Barnamenningarhátíðar 2026 í Breiðholtsskóla í hádeginu. Við lítum inn í fréttatímanum.
Kvennalandsliðið í fótbolta færðist skrefi nær HM-sæti með sigri á Úkraínu í gærkvöld. Sérfræðingur segir að Ísland eigi erindi á mótið.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við byrjuðum í Mosfellsbænum í tilefni af væntanlegum sveitarstjórnarkosningum. Við fórum í heimsókn til Hönnu Símonardóttur, sem hefur verið lýst sem ofurfótboltamamma og athafnakona en hún hefur verið ötull sjálfboðaliði í tugi ára og unnið gott og mikilvægt starf fyrir Aftureldingu. Það eru fáir sem þekkja samfélagið í Mosfellsbæ betur en hún. Síðan heyrðum við í Mosfellingum á förnum vegi - fengum að vita hvað það er sem brennur á þeim fyrir kosningarnar.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt aðgerðir sem ætlað er að styrkja stöðu leigjenda og bæta réttarstöðu þeirra á leigumarkaði. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér að banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu. Ragnar Þór kom til okkar.
Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis ætlaði að vera með Íslandsmeistaramótið í skeggvexti á laugardaginn en því hefur nú verið frestað fram á haust vegna dræmrar þátttöku. Jón Baldur Bogason, er yfirumsjónarmaður Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis. Hann ræddi við okkur um keppnina og skeggtískuna í dag almennt.
Í Spánarspjalli gærdagsins við Jóhann Hlíðar kom fram að á hverju ári koma út um 90.000 nýir bókatitlar á Spáni sem telst harla gott eða 80 nýjar bækur á dag, Þrátt fyrir þetta mikla magn selst um helmingur þeirra lítið eða ekkert. Er þetta merki um harða samkeppni ? Er verið að gefa út of margar bækur eða eru bókaforlögin að leggja of mikla áherslu á magn en ekki gæði ? Og hvernig er þessu háttað hér á landi ? Við heyrðum í Ásmundi Helgasyni, bókaútgefanda hjá Drápu og fengum hans sýn á stöðuna.
Málefni Elliðaánna eru í brennidepli en annað kvöld, fimmtudag, verður haldinn opinn fundur þar sem frambjóðendur í borginni verða spurðir út í verndun svæðisins og framtíð þess. Áhyggjur snúa meðal annars að aukinni uppbyggingu og fjölgun ferðamanna í Elliðaárdalnum – og hvort það samræmist verndun einnar mikilvægustu náttúruperlu borgarinnar. Við ræddum þetta við Hrannar Pétursson varaformann stjórnar SVFR og Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðing.
Unnar kjötvörur verða ekki á boðstólum í leik- og grunnskólum Reykjavíkur samkvæmt nýrri matarstefnu sem samþykkt var á borgarstjórnarfundi í vikunni. Stefnunni er ætlað að tryggja aðgengi að hollum mat óháð efnahag. Markmiðið er að bæta mataræði barna – en um leið vakna spurningar um næringu, áhrif og hvort þetta sé raunhæft í framkvæmd. Við ræddum þetta við Annu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Sex listar eru í framboði í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast umræðum. Þátttakendur eru Ómar Ingþórsson, Samfylkingu, Sævar Birgisson, Framsóknarflokki, Sveinn Óskar Sigurðsson, Miðflokki, Hilmar Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, Gylfi Þór Þorsteinsson, Viðreisn og Árni Jónsson Vini Mosfellsbæ.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.