Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Erlend málefni voru til umfjöllunar þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Hann sagði frá umfjöllun erlendra fjölmiðla um almyrkvann, og um hjálmanotkun í Danmörku. Mestum tíma var þó varið í að ræða um aukakosningar í Bretlandi í dag, þar sem Nigel Farage vinnur líklega, en athyglin hefur beinst að Count Binface, eða Fötufési greifa.
Við fórum aftur til stríðsáranna og heyrðum sögu kanadískrar hersveitar sem hafði aðsetur í Hveragerði sumarið 1940 og annaðist varnir Suðurlands. Njörður Sigurðsson sagnfræðingur sagði frá, en síðar í dag verður minnismerki afhjúpað í Hveragerði.
Svo var fjallað um Evrópusambandið, í tilefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðar. Eins og við þekkjum hefur fólk ólíkar skoðanir á sambandinu og lítur það ólíkum augum. En hver er opinber skilgreining á hlutverki þess og tilgangi - við veltum því fyrir okkur – og töluðum líka um valdaframsal og lagasetningu sambandsins. Margrét Einarsdóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík var gestur okkar.
Tónlist:
Hljómar - Þú og ég.
Björgvin Halldórsson, Ragnhildur Gísladóttir - Nú blánar yfir berjamó.
Pálmi Gunnarsson - Þitt fyrsta bros.
Edith Piaf - Chanson bleue.
Björn Thoroddsen - Fridaynight@hringbraut.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Nú eru öll búin að upplifa sólmyrkvann og almyrkvann og þetta var mögnuð upplifun hér á höfuðborgarsvæðinu þótt skyggni hafi ekki verið gott og rigning.
Við skruppum í miðbæ Kópavogs eldsnemma í morgun og tókum nokkra tali og spurðum útí þessa upplifun og hvar fólk var staðsett meðan á myrkvanum stóð.
Sögustaðir á landinu er umfjöllunarefni Páls Ásgeirs Ásgeirssonar í dag í Veganestinu en hann hefur með okkur í sumar í Sumarmálum og gefið okkur dýpri innsýn í útivist og hvernig hann hugsar um útivist. Það getur þurft að hafa fyrir því að finna sögustaðina en það er þess virði segir Páll.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Tjón á nýrri vatnsleiðslu til Vestmannaeyja um helgina hleypur á milljörðum. Haldið verður áfram að leggja lögnina þrátt fyrir skemmdir - bæjarstjórinn í Eyjum segir það skásta kostinn og vonar að hægt verði að nýta leiðsluna að hluta.
Maður sem hlaut 16 ára dóm fyrir morð í Rauðagerði fyrir fimm árum gengur laus í heimalandi sínu Albaníu. Fangelsismálastjóri segir ákvörðun um reynslulausn og brottvísun byggjast á nýjum bráðabirgðalögum sem miða að því að minnka álag á íslenskum fangelsum.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir langæskilegast að samningsaðilar láti á það reyna að láta samningana lifa út samningstímann þrátt fyrir forsendubrest. Hann segir það mikil vonbrigði að verðbólgan hafi aukist svo mikið á aðeins einu ári.
Umferð gekk hægt en stóráfallalaust á Vesturlandi í gærkvöld og nótt. Röðin í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli náði út fyrir flugstöðina í morgun - daginn eftir sólmyrkvann.
Hitamet gætu fallið á Englandi í dag. Þar er spáð allt að 38 stiga hita. Slökkt hefur verið á eina kjarnorkuveri Rúmeníu vegna lágs vatnsborðs Dónár.
Aukakosningar verða í Clacton í Englandi í dag þegar kosið verður um þingsæti Nigels Farage, leiðtoga Umbótaflokksins. Einn mótframbjóðendana, Fötufés greifi hefur vakið mikla athygli.
Landsel við Íslandsstrendur hefur fækkað um sjötíu prósent frá 1980 og er stofninn talinn í útrýmingarhættu.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi þar sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefði breytt aldagömlu skattkerfi sem var hagstætt alþjóðlegum fjárfestum.
Björgólfur Thor hefur síðastliðin ár yfirleitt verið nefndur sem ríkasti Íslendingurinn og hefur verið á lista tímaritsins Forbes yfir auðugsta fólk í heimi. Hann hefur um 25 ára skeið verið einn þekktasti fjárfestir landsins.
Í viðtalinu við BJörgólf Thor voru hins vegar ýmsar aðrar fréttir en þessi. Hann sagði líka frá því að fjárfestingarfélagið Novator hefði lokað í London og að hann myndi ekki fara í neinar nýjar fjarfestingar vegna þeirrar verðmætabólu sem væri á hlutabréfamarkaði út af uppgangi gervigreindar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. júlí 2014.
Umsjón: Bragi Ólafsson
Bragi Ólafsson leikur tónlist að eigin vali.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í þættinum er einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Það er hvorki fyrsti kostur launþega né atvinnurekenda að segja upp samningum í september en launþegar geta ekki einir setið uppi með kostnað af verðbólgunni, segir ASÍ. SA telur aftur á móti að kaupmátturinn hafi skilað sér. Óljóst er hvort samningum verður sagt upp í haust.
Drónar voru eitt sinn skemmtilegt leikfang en hugvitsamir hermenn breyttu þeim og nú eru drónar notaðir í stríði og hryðjuverkum - ekki síst fjölþáttaaðgerðum þar sem erfitt er að átta sig á hver er að verki. Drónaatvik hafa orðið á Íslandi en skipulag eftirlits og viðbragðs er ómarkvisst.

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá tónleikum Fílharmóníusveitar Vínarborgar á Salzborgarhátíðinni, 25. júlí sl.
Á efnisskrá:
Sinfónía nr. 2 í c-moll, Upprisusinfónían, eftir Gustav Mahler.
Einsöngvarar: Yin Fang sópran og Nadezhda Karyazina kontraalt.
Kór: Viener Sigverein.
Stjórnandi: Gustavo Dudamel.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.

frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Nú eru öll búin að upplifa sólmyrkvann og almyrkvann og þetta var mögnuð upplifun hér á höfuðborgarsvæðinu þótt skyggni hafi ekki verið gott og rigning.
Við skruppum í miðbæ Kópavogs eldsnemma í morgun og tókum nokkra tali og spurðum útí þessa upplifun og hvar fólk var staðsett meðan á myrkvanum stóð.
Sögustaðir á landinu er umfjöllunarefni Páls Ásgeirs Ásgeirssonar í dag í Veganestinu en hann hefur með okkur í sumar í Sumarmálum og gefið okkur dýpri innsýn í útivist og hvernig hann hugsar um útivist. Það getur þurft að hafa fyrir því að finna sögustaðina en það er þess virði segir Páll.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í þættinum er einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Vestfjörðum, stóð í ströngu í gær en fólk streymdi til að fylgjast með almyrkvanum. Hann var á línunni og fór yfir með okkur hvernig allt gekk fyrir sig.
Íbúafjöldi Snæfellsbæjar margfaldaðist þegar almyrkvinn nálgaðist. Við heyrðum í Kristni Jónassyni, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, og könnuðum hvernig var að búa í stórborg um stund.
Í gær heyrðum við í Auðdísi Tinnu Hallgrímsdóttur, húsfreyju á Hallfreðarstöðum 1 í Hróarstungu, sem var á leiðinni með bílinn í hjólastillingu vegna þess að ástandið á Hróarstunguvegi er slæmt og hefur alltaf verið. Loftur Þór Jónsson er svæðisstjóri Vegagerðarinnar fyrir Austan og við spurðum hann út í málið í Morgunútvarpinu.
Ísdrottningin Ásdís Rán átti afmæli í gær og stendur í ströngu í Búlgaríu. Hún hefur sett á fót vefsíðu, einskonar umboðsskrifstofu á vefnum, og býður nú búlgörskum og íslenskum fyrirsætum á skrá sig. Hún var á línunni.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson er staddur á EM í frjálsum í Bretlandi. Hann var á línunni og fór yfir það helst.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þennan morguninn var talað um dEUS, síma, undankomusérfræðinginn Harry Houdini, Deep Purple og margt fleira.
POSSIBILLIES – Móðurást
ANIMALS – Don't Let Me Be Misunderstood
PETER BJÖRN & JOHN – Young Folks
THE SMITHS – The Headmaster Ritual
ALDOUS HARDING, H. HAWKLINE – Venus in the Zinnia
Á MÓTI SÓL – Fyrstu laufin
THE CARDIGANS – Lovefool
DOMINIC FIKE – Babydoll
10CC – I'm Not In Love
GDRN – Af og til
DEATH CAB FOR CUTIE – Riptides
COLDPLAY – Adventure Of A Lifetime
JOHN GRANT, KAKTUS EINARSSON – Follow
DÁTAR – Gvendur á Eyrinni
DEUS – Little Arithmetics
STEINUNN JÓNSDÓTTIR – Spóla til baka
VALDIMAR – Karlsvagninn
SQUEEZE – Tempted
MGMT – Electric Feel
HLH FLOKKURINN – Í Útvarpinu Heyrði Ég Lag
NAS – Street dreams (clean mix)
HJÁLMAR – Hlauptu hratt
STEFÁN HILMARSSON – Þrátt fyrir allt
KACEY MUSGRAVES – I Believe In Ghosts
SKUNK ANANSIE – Hedonism
FRIÐRIK DÓR – Hringd'í mig
UNKNOWN MORTAL ORCHESTRA – Can't Keep Checking My Phone (Radio Edit)
DUA LIPA – Houdini
EMINEM – Houdini
POST MALONE – Sunflower
MYRKVI – Glerbrot
LANA DEL REY – Born To Die
ELTON JOHN – Rocket Man (I Think It's Going To Be A Long Long Time)
PRIMAL SCREAM – Movin' on up
DEEP PURPLE – Smoke On The Water
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON, BENNI HEMM HEMM – Eitt af blómunum
MUMFORD & SONS, CHRIS STAPLETON – Here
BRÍET – Fimm
PLACEBO – Every you every me
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON – Kartöflur

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Tjón á nýrri vatnsleiðslu til Vestmannaeyja um helgina hleypur á milljörðum. Haldið verður áfram að leggja lögnina þrátt fyrir skemmdir - bæjarstjórinn í Eyjum segir það skásta kostinn og vonar að hægt verði að nýta leiðsluna að hluta.
Maður sem hlaut 16 ára dóm fyrir morð í Rauðagerði fyrir fimm árum gengur laus í heimalandi sínu Albaníu. Fangelsismálastjóri segir ákvörðun um reynslulausn og brottvísun byggjast á nýjum bráðabirgðalögum sem miða að því að minnka álag á íslenskum fangelsum.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir langæskilegast að samningsaðilar láti á það reyna að láta samningana lifa út samningstímann þrátt fyrir forsendubrest. Hann segir það mikil vonbrigði að verðbólgan hafi aukist svo mikið á aðeins einu ári.
Umferð gekk hægt en stóráfallalaust á Vesturlandi í gærkvöld og nótt. Röðin í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli náði út fyrir flugstöðina í morgun - daginn eftir sólmyrkvann.
Hitamet gætu fallið á Englandi í dag. Þar er spáð allt að 38 stiga hita. Slökkt hefur verið á eina kjarnorkuveri Rúmeníu vegna lágs vatnsborðs Dónár.
Aukakosningar verða í Clacton í Englandi í dag þegar kosið verður um þingsæti Nigels Farage, leiðtoga Umbótaflokksins. Einn mótframbjóðendana, Fötufés greifi hefur vakið mikla athygli.
Landsel við Íslandsstrendur hefur fækkað um sjötíu prósent frá 1980 og er stofninn talinn í útrýmingarhættu.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Aukakosningar eru í Clacton-kjördæmi á Englandi í dag eftir að Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram og helsti keppinauturinn er Fötufés greifi, Count Binface. Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths er okkar kona í Bretlandi. Hún var á línunni.
Eru kröfur sem gerðar eru til fyrirtækja sem ætla að hefja veitingarekstur of miklar? Er stjórnsýslan ekki að standa sig við að afgreiða umsóknir en mörg dæmi eru um mikinn seinagang í Reykjavík. Einar Bárðason, framkvæmdarstjóri SVEIT, sem eru Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, ræddi þessi leyfismál við okkur.
Sumarið er sko alls ekki búið. Nóg er um að vera víða um land um næstu helgi og margt hægt að skoða og sjá. Blómstrandidagar fara fram um helgina í Hveragerði. En hver eru tengsl kanadíska hersins og Hveragerðis? Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi, Hveragerðisbæjar var á línunni.
Selirnir við Íslandsstrendur eru færri en áður og nýjustu niðurstöður úr síðustu selatalningu benda til þess að stofninn sé ekki að ná sér á strik. Við ætlum ræddum þá stöðu, selarannsóknir og starf Selaseturs Íslands á Hvammstanga við Örvar Birki Eiríksson framkvæmdastjóra Selseturs Íslands.
Leikskólastarf er hafið í Grindavík og fyrstu börnin mættu í leikskólann í dag. Þetta hljóta að teljast stórtíðindi í hugum þeirra sem stefna á að búa og starfa í Grindavík í framtíðinni, við heyrðum í Guðbjörgu Eyjólfsdóttur hún er formaður Járngerðar, sem eru hollvinasamtök uppbyggingar og framtíðar Grindavíkur.
Við heyrðum að skemmtilegu brúðkaupi í fjörunni á Álftanesi í almyrkvanum í gær og ræddum við brúðin Aldísi Lilju sem lét pússa sig saman við hann Einar Val
Götubitinn efnir til mikillar matarhátíðar í Kolaportinu núna helgina. Þar koma samannokkrir af fremstu götubitum landsins, en um er að ræða þá matarvagna og sölubása sem stóðu uppi sem sigurvegarar á Götubitahátíðinni sem haldin var fyrr í sumar. En hvernig hefur sumarið verið hjá þeim sem selja mat úr svokölluðum matarvögnum? Róbert Aron Magnússon fræddi okkur um Götubita-sumarið.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Það er hvorki fyrsti kostur launþega né atvinnurekenda að segja upp samningum í september en launþegar geta ekki einir setið uppi með kostnað af verðbólgunni, segir ASÍ. SA telur aftur á móti að kaupmátturinn hafi skilað sér. Óljóst er hvort samningum verður sagt upp í haust.
Drónar voru eitt sinn skemmtilegt leikfang en hugvitsamir hermenn breyttu þeim og nú eru drónar notaðir í stríði og hryðjuverkum - ekki síst fjölþáttaaðgerðum þar sem erfitt er að átta sig á hver er að verki. Drónaatvik hafa orðið á Íslandi en skipulag eftirlits og viðbragðs er ómarkvisst.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Bjarni Daníel - Sömu augu
Bubbi Morthens - Ég er tilbúinn
Markús and The Diversion Sessions - Let Light In
Lea - Frá stjörnunum í vatnið falla tár mín
Una Mist Óðinsdóttir- Kuðungur
Yungamli - Klikkað
Spacestation - Lightspeed

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Danni fékk til sín Tuma, einnig þekktur sem YUNGAMLI. Hann gaf nýlega út lagið ,,Pungur á klúbbnum" nýlega sem fall vel í kramið hjá landanum. Nú fylgir hann því eftir með laginu ,,Klikkað" sem var frumflutt í þættinum.
YUNGAMLI: 00:28:52
Lagalistinn:
Stefán Hilmarsson - Þrátt fyrir allt
Bjarni Daníel - Sömu augu
Moses Hightower & Prins Póló - Maðkur í mysunni
Jónsi, Birgitta Haukdal, Hreimur & Jóhanna Guðrún - Tóm tjara
Dr. Gunni - Allir í góðum gír
Deus - Suds & soda
Ensími - Atari
Fatboy Slim - Weapon of choice
The Archies - Sugar sugar
Deep Purple - Speed king
Roger Miller - Oo-De-Lally (From "Robin Hood")
Emma Stone - Audition (The Fools Who Dream)
Etta James - Anything to say you’re mine
Chaka Khan & Snoop Dogg - Boogie's in My Soul
Ásgeir Trausti - Heartbeat
Hasar - Lalaleiðinlegur
Valdimar - Yfirgefinn
Purrkur Pillnikk - Læknir og svín
Áhöfnin á Halastjörnunni - Stolt Siglir fleyið mitt
Ný- Flugvélar
Spacestation - Eiturgrá skóda
Ohio Express- Yummy yummy yummy
Lesley Gore - Sunshine, lollipops & rainbows