10:13
Flugur
Nokkur lög við ljóð úr fyrstu ljóðabók Davíðs Stefánssonar

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Fyrsti þáttur af sex þar sem leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð Davíðs Stefánssonar. Að þessu sinni eru ljóð úr fyrstu ljóðabók hans, Svörtum fjöðrum, í forgrunni en sú bók var gefin út árið 1919. Graduale Futuri syngur um Ekkilinn, Hreinn Líndal syngur lag Karls O. Runólfssonar við Allar vildu meyjarnar, M.A. kvartettinn syngur Rokkarnir eru þagnaðir, Björgvin Halldórsson syngur Mamma ætlar að sofna, Smárakvartettinn á Akureyrir syngur lag Friðriks Bjarnasonar við ljóðið Abba-labba-lá og tvíeykið Þau flytja eigið lag við þetta sama kvæði. Savanna tríóið flytur lög Þóris Baldurssonar við ljóðin Brúðarskórnir og Á Dökkumiðum, Sunna Ingólfsdóttir og Ingólfur Steinsson syngja lög Ingólfs við ljóðin Á Dökkumiðum og Komdu. Lokalagið er Eldur í öskunni leynist eftir Hjördísi Pétursdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
,