10:13
Flugur
Söngvar við ljóð íslenskra skálda

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Leikin eru lög sem voru samin við ljóð íslenskra skálda. Fyrst eru þrjú lög við ljóð eftir Heiðrek Guðmunddson. Björgvin Halldórsson flytur lag Heimis Sindrasonar við ljóðið Ég sagði við þig, Guðrún Gunnarsdóttir og Ari Jónsson flytja lag Heimis við ljóðið Heilræði ömmu og Berglind Björk Jónasdóttir flytur lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Tvíburabræður. Næst eru þrjú lög Ingva Þórs Kormákssonar við ljóð þriggja skálda. Guðrún Gunnarsdóttir syngur Þegar þið eruð nálægt og Kondu, fyrra ljóðið er eftir Hannes Pétursson en seinna ljóðið eftir Steinunni Sigurðardóttur. Jóhanna Vigdís Arnardóttir flytur Bjartsýni við ljóð Ólafs Hauks Símonarsonar. Elíza Newman flytur þrjú lög sem hún samdi fyrir plötuna Heimþrá, en það eru lögin Þú veizt við ljóð eftir Ólöfu frá Hlöðum, Heimþrá við ljóð eftir Jóhann Sigurjónsson og Vetrarmávur við ljóð eftir Jón úr Vör. Ragnheiður Gröndal syngur Veglaust haf, lag sem Tómas R. Einarsson samdi við fimm erindi ljóðabálks Steins Steinarrs Tíminn og vatnið. Síðasta lagið er Flugvélar sem Halldór Gunnarsson samdi við ljóð Hannesar Péturssonar. Þokkabót flytur lagið. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 46 mín.
,