Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við ræddum við Gylfa Ólafsson, bæjarstjóra í Ísafjarðarbæ. Gylfa líst ekkert sérstaklega vel á tillögur að breytingum á skiptingu þingsæta. Hann segir að hafa verði í huga að stjórnkerfið sé að miklum hluta í Reykjavík og það sé ekki bara Alþingi sem stjórni landinu. Við ræddum líka um fjárlagafrumvarpið, fyrstu mánuði nýs meirihluta og verkefnin framundan.
Mikið er rætt um bækur og börn, lestur og lesskilning. Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir er formaður IBBY, sem lætur sig þessi mál varða, og vinnur á Borgarbókasafninu. Hún er í kringum börn og bækur alla daga. Hún spjallaði við okkur.
Magnús Lyngdal sagði frá sígildri tónlist og hélst sig við 20. öldina eins og undanfarna föstudaga. Við töluðum þó um tónskáld sem samdi eins og 19. aldar maður, Rússann Reinhold Glière.
Tónlist:
Áshildur Haraldsdóttir, Atli Heimir Sveinsson - Dimmalimm : Intermezzo.
Sigrún Jónsdóttir - Fjórir kátir þrestir.
Jórunn Viðar, Þuríður Pálsdóttir - Að lesa og skrifa list er góð.
Jóipé x Króli - B.O.B.A..
