Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um upplýsingaóreiðu, sem mjög er til umræðu þessa dagana. Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður sagði frá gildandi reglum og lögum sem ætlað er að ná yfir miðlun rangra upplýsinga en þegar allt kemur til alls þarf fólk að brýna eigin dómgreind til að greina rétt frá röngu.
Staða íslenska þjóðdansins var rædd. Gestir voru Atli Freyr Hjaltason þjóðfræðingur og Sesselja G. Magnúsdóttir dansfræðingur. Skoðun þeirra er að staðan sé ágæt; börn séu móttækileg fyrir íslenskum þjóðdönsum enda kenni þeir þeim líka að umgangast annað fólk.
Í spjalli um sígilda tónlist ræddi Magnús Lyngdal um óperur. Hann hefur skrifað bók um óperur og sagði frá henni um leið og hann fór yfir upphaf óperusmíða auk þess að leika nokkur tóndæmi.
Tónlist:
Call me Joker - Hildur Guðnadóttir,
Bær, Mari Samuelsen,
Amazing grace - Susan Boyle,
Ólafur Liljurós - Þrjú á palli - Ólafur Liljurós.
