07:03
Morgunútvarpið
Söguleg álagning á eldsneyti, bændur og ESB, Laufey og fréttir vikunnar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur hjá Visku stéttarfélagi, lagðist yfir eldsneytisverð og komst að því að verðið 20 krónum of hátt vegna álagningar sem hann fullyrðir að sé sögulega há. Ýmislegt forvitnilegt kemur fram í greiningunni og Vilhjálmur kom til okkar í spjall og fór yfir niðurstöðurnar.

Morgunútvarpið heldur áfram yfirvegaðri umfjöllun um kosti og galla við aðild að Evrópusambandinu og í dag heyrum við í Margréti Ágústu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Þar er fólk ekki spennt fyrir aðild en þau segjast þó ekki leggjast gegn því að þjóðin fái að kjósa um áframhald viðræðna. Við ræddum málið við Margréti Ágústu.

Laufey kemur fram á tvennum tónleikum í Kórnum um helgina eftir hafa farið sigurför um Bandaríkin og Evrópu, þar sem hún hefur komið fram í stærstu og þekktustu tónleikahöllum heims. Velgengni Laufeyjar er lyginni líkust og við hljótum að velta fyrir okkur hvenær hún verður innsigluð sem stærsta tónlistarstjarna Íslandssögunnar, ef hún er ekki þegar komin á þann stall. Við fengum Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarrýni til fjölda ára, til að rýna í Laufey með okkur og svara stóru spurningunum.

Ristastór fréttavika að baka en það er alltaf skemmtilegast að fara yfir málin með fyndnu fólki. Þess vegna fengum við til okkar Birnu Rún Eiríksdóttur og Bolla Má Bjarnason en ásamt því að vera bæði uppistandarar eru þau saman með hlaðvarpið Gusan.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,