Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Window - Fiona Apple
Sleep my little prince - Mozart - Comedian Harmonists
Ofboðslega frægur - Stuðmenn
Fame - David Bowie
Summer Haze - Shuteen Erdenebaatar Quartet
Usiarpoq = Hjem fra sælfangst - Grønlændergruppen MIK
Selur sefur á steini - Jórunn Viðar og Þuríður Pálsdóttir
Hylje = The seal - Kirstian Blak
Selatalningin mikla og stofnmat. Sandra M. Granquist, selarannsóknardeild Selaseturs Íslands á Hvammstanga S: 847 2188
Song to the seals - Boulton/Bantock - Robert White og Stephen Hough
Ég fer í nótt - erlent lag við texta Ómars Ragnarssonar. Björgvin Halldórsson syngur
Ljóð dagsins - Tár, eftir Önnu S. Björnsdóttur. Berglind Gunnarsdóttir les.
Það sumar veit - Michel Legrand/Árni Ísaksson. Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson.
Gunnar Gunnarsson hjá Austurfrétt ræðir málefni af Héraði. Sólin, strandblak, lokun fæðingardeildar og drónar koma þar við sögu.
Álfaborgarséns - erl lag/texti: Jón Ingi Arngrímsson
Ó þú - Magnús Eiríksson. Mannakorn
The Cricket match - G F Händel
Krikket á Íslandi. Jakob Wayne Víkingur Robertsson liðsmaður Kópavogur Puffins og íslenska krikketlandsliðsins
Cricket - Ray Davies - The Kinks
Oddaflug - Tómas Jónsson. Gúmbó no 5, 2025

07:30

08:30
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Monika varð eiginlega óvart fasteignasali en er í dag formaður félags fasteignasala. Hún gekk í gegnum mikinn missi fyrir tveimur árum þegar bróðir hennar, tónlistarmaðurinn Róbert Örn Hjálmtýsson, lést langt fyrir aldur fram. Hún segist í dag skilgreina lífið fyrir og eftir þann missi. Við kynnumst Moniku betur í þætti dagsins.


Veðurstofa Íslands.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við töluðum við Svavar Jónatansson í Mannlega þættinum í fyrra þar sem hann sagði okkur frá bráðsniðugu verkefni sem hann var að vinna með heimilisfólkinu á Hrafnistu þar sem þau settu upp sýndarveruleikagleraugu og fengu að upplifa aðstæður sem þau annars ættu erfitt með að upplifa. Nú hefur hann farið með þetta verkefni á næsta stig því hann fór í tæplega tveggja vikna hringferð um Ísland og safnaði myndefni frá áhugaverðum stöðum allt í kringum landið sem hann mun svo bjóða upp á sem sýndarveruleikaferðalög og fróðleik fyrir heimilisfólk Hrafnistu og jafnvel víðar. Svavar sagði okkur allt af þessu sniðuga verkefni í þættinum.
Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistarfrömuður var svo með okkur í dag með Veganestið eins og alla fimmtudaga í sumar. Í þetta sinn talaði hann um börn og útivist. Samverustundir í náttúrunni eru ómetanlegar og þar verða til minningar sem endast. Páll Ásgeir fór betur með okkur yfir þetta í þættinum.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)
Will You Still Love Me Tomorrow / Amy Winehouse (Gerry Goffin og Carole King)
Pale Blue Eyes / The Velvet Underground (Lou Reed)
Ó borg, mín borg / Bubbi og Haukur Morthens (Vilhjálmur frá Skáholti er textahöfundur en Þórir Baldursson útsetti)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Jón Brynjólfsson bóndi segir frá í viðtal við Gísla Kristjánsson í Búnaðarþættinum árið 1953. Jón segir frá ævi sinni, en hann mundi eftir konungskomunni 1874 - þó hann hafi ekki hitt Kristján 9. sjálfur - og síðan rekur hann veðurham illviðraveturinn 1882, Suðurlandsskjálfann 1896 og ýmislegt fleira.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Einar Mäntylä.


Í þáttaröðinni „Góðan daginn, mannkynssaga“ verður fjallað um það hvernig mannkynssagan getur birst allt í kringum okkur í hversdagslegum hlutum. Á bókakápu frá stríðsárunum er auglýsing fyrir útsendingar BBC til hernumdra landa, póstkort frá upphafi 20. aldar snýst um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, í þjóðlögum og textum við þau birtast löngu horfnir kóngar. Tekin verða dæmi um þetta í þáttunum og leikin tónlist sem tengist efninu. Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 14. júní 2014.
Umsjón: Sigurbjörg Þrastardóttir
Í þessum þætti er sjónum beint að konum sem semja og flytja sín eigin lög. Flestar eru ungar, sumar amerískar, allar samtímalistamenn sem hafa byggt upp feril sinn á ótvíræðum hæfileikum.
1. Cat Power: Sea of Love (Juno Soundtrack)
2. Cat Power: The Greatest (The Greatest)
3. Joanna Newsom: This side of the blue
4. Eivör Pálsdóttir: Vársins ljóð (Eivör Pálsdóttir)
5. Carla Bruni: Quelqu'un m'a dit
6. Ana Carolina: Vestido Estampado (tónleikar)
7. Björk: Oceania (Medulla)
8. Ingibjörg Þorbergs: Píanóleikarinn (Í sólgulu húsi)
9. Ane Brun: Rubber and Soul (A temporary dive)
10. Martha Wainwright og Rufus Wainwright: I will always love you (tónleikar)
11. Lisa Ekdahl: Kom änglar (tónleikar)

Útvarpsfréttir.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Eftir viðtölin við tvo bændur ræddu Baldvin og Patrekur sín á milli um það helsta sem kom þar fram. Í viðtölunum var m.a. rætt um hvaða breytingar verði í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá opnunartónleikum Proms, sumartónlistarhátíðar Breska útvarpsins, sem fram fóru í Royal Albert Hall í London, 17. júlí.
Á efnisskrá:
-Fanfare for the Common Man eftir Aaron Copland.
-Ameríkumaður í París eftir George Gershwin.
-Píanókonsert í G-dúr eftir Maurice Ravel.
-That the sunrise not leave us unmoved eftir Josephine Stepenson - frumflutningur.
-For St. Cecilia, Til heilagrar Sesselju, op. 30 fyrir tenór, kór og hljómsveit eftir Gerald Finzi.
Fram koma Sinfóníuhljómsveit Breska útvarpsins, Kór Sinfóníuhljómsveitar Breska útvarpsins og kammerkór Breska útvarpsins, BBC söngvararnir.
Einleikari á píanó: Yunchan Lim.
Einsöngvari: Thomas Atkins tenór.
Stjórnandi: Dalia Stasevska.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Einar Mäntylä.

Hljóðritun frá 1989
Hljóðritun frá 1989
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Hjá vondu fólki. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við töluðum við Svavar Jónatansson í Mannlega þættinum í fyrra þar sem hann sagði okkur frá bráðsniðugu verkefni sem hann var að vinna með heimilisfólkinu á Hrafnistu þar sem þau settu upp sýndarveruleikagleraugu og fengu að upplifa aðstæður sem þau annars ættu erfitt með að upplifa. Nú hefur hann farið með þetta verkefni á næsta stig því hann fór í tæplega tveggja vikna hringferð um Ísland og safnaði myndefni frá áhugaverðum stöðum allt í kringum landið sem hann mun svo bjóða upp á sem sýndarveruleikaferðalög og fróðleik fyrir heimilisfólk Hrafnistu og jafnvel víðar. Svavar sagði okkur allt af þessu sniðuga verkefni í þættinum.
Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistarfrömuður var svo með okkur í dag með Veganestið eins og alla fimmtudaga í sumar. Í þetta sinn talaði hann um börn og útivist. Samverustundir í náttúrunni eru ómetanlegar og þar verða til minningar sem endast. Páll Ásgeir fór betur með okkur yfir þetta í þættinum.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)
Will You Still Love Me Tomorrow / Amy Winehouse (Gerry Goffin og Carole King)
Pale Blue Eyes / The Velvet Underground (Lou Reed)
Ó borg, mín borg / Bubbi og Haukur Morthens (Vilhjálmur frá Skáholti er textahöfundur en Þórir Baldursson útsetti)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Eftir viðtölin við tvo bændur ræddu Baldvin og Patrekur sín á milli um það helsta sem kom þar fram. Í viðtölunum var m.a. rætt um hvaða breytingar verði í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Í gær hringdum við í hana Mekkín Barkardóttur sem er hjúkrunarfræðingur í Stokkhólmi en hún hefur vakið athygli fyrir ýmis ráð og hugmyndir fyrir fólk á ferðalagi með börnin og þar ræddum við einmitt að oftast þurfum við ekki að færast of mikið í fang með að búa til dagskrá, það er samveran sem oft stendur upp úr. Samverustundir hjá fjölskyldum á sumartíma snúast oftar en ekki um einhver spil og þess þá heldur þegar veðrið býður ekki upp á mikla útiveru þá er gaman að sitja inni og spila. Við heimsóttum Spilavini, verslun sem sérhæfir sig í að finna rétta spilið fyrir sína viðskiptavini og fundum út hvað fólk væri helst að leita að í dag. Linda Rós Ragnarsdóttir og Þorlákur Lúðvíksson ræddu við Fram undan.
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki en mótið er ein allsherjar fjölskyldu- og íþróttahátíð þar sem boðið er upp á keppni í fjölmörgum og fjölbreyttum greinum. Badminton, bogfimi, frisbígolf, glíma, grasblak, kökuskreytingar, stafsetning og upplestur svo fátt eitt sé nefnt. Við hringdum í verkefnastjórann, hana Pálínu Ósk Hraundal, og forvitnuðumst um undirbúninginn.
Það er fátt annað sem kemst að hjá okkur þessa dagana en að ræða um blessaða sumarveðrið. Veðrið hefur leikið við öll þau sem búa eða hafa ferðast um austanvert landið á meðan vætutíðin hefur verið í miklum mæli hér vestanmegin á landinu og þá hér á suðvesturhorninu. En svo virðist sem breytingar séu í kortunum og stutt í að þau okkar sem ekki hafa séð til sólar síðustu misserin muni mögulega njóta hennar á ný og almennt hlýrra veðurs. Er þessi vætulota einsdæmi hér í höfuðborginni eða er þetta dæmigert sumar á þessu svæði? Sigurður Þ. Ragnarsson eða Siggi stormur rýndi í glæný gögn og svaraði öllu því helsta.
Einn áhrifamesti tónlistarmaður samtímans, David Byrne heldur tónleika í næstu viku, miðvikudaginn 29. júlí í Eldborgarsal Hörpu en Byrne þekkjum flest sem forsprakka hljómsveitarinnar Talking Heads sem voru brautryðjendur í bandarískri pönk og nýbylgju þó svo að tilraunamennskan og frumleiki hafi einkennt þeirra tónlist. David Byrne, sem er einn áhrifamesti og frumlegasti listamaður samtímans, hefur í tvígang komið og skemmt landanum og gerði það fyrst á vegum Smekkleysu árið 1994, þá var það Einar Örn Benediktsson sem hélt um stýrið og Fram undan rifjaði upp þá tónleika og kynni Einars og David Byrne.
Júlí er alla jafnan mesti ferðamánuður ársins og landsmenn flykkjast gjarnan í útilegur og elta veðrið um allt land. Við höfum rætt á síðustu vikum við fjölmarga aðila sem hafa getað ráðið okkur heilt í hinu ýmsa; hvernig við högum okkur í umferðinni, hvaða búnað þurfum við helst og hvað bera að varast áður en arkað er af stað og svo höfum við einnig rætt um matseldina svona þegar við erum á ferð og flugi. Tobba Marinósdóttir ráðlagt okkur t.a.m. að fara aldrei af stað án þess að undirbúa sig og skipuleggja nasl og að hbílstjórinn nærist vel fyrir brottför. En núna tókum við púlsinn á matreiðslumanninum Gísla Ægi Ágústssyni sem er vert á veitingastaðnum vegamótum á Bíldudal en hann á það til að grilla með vinum sínum í útilegu.

07:30

08:30

Umsjón: Friðrik Ómar.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.



Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
Í Konsert í kvöld ætlum við að fara áratug aftur í tímann á 10 ára afmæli Blúshátíðar í Reykjavík sem fór fram þá eins og oftast – á Hótel Nordica. Og við ætlum að hlusta á Vini Dóra og minnast blúsforingjans hans Dóra – Dóra Braga – Halldórs Bragasonar sem lést af slysförum núna fyrir skemmstu. – Blúsman Islandus – blessuð sé minning hans.
En við förum líka á Bræðsluna núna í sumar og rifja upp eina tónleika þaðan, með Gildrunni úr Mosfellsbænum.