Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Í gær hringdum við í hana Mekkín Barkardóttur sem er hjúkrunarfræðingur í Stokkhólmi en hún hefur vakið athygli fyrir ýmis ráð og hugmyndir fyrir fólk á ferðalagi með börnin og þar ræddum við einmitt að oftast þurfum við ekki að færast of mikið í fang með að búa til dagskrá, það er samveran sem oft stendur upp úr. Samverustundir hjá fjölskyldum á sumartíma snúast oftar en ekki um einhver spil og þess þá heldur þegar veðrið býður ekki upp á mikla útiveru þá er gaman að sitja inni og spila. Við heimsóttum Spilavini, verslun sem sérhæfir sig í að finna rétta spilið fyrir sína viðskiptavini og fundum út hvað fólk væri helst að leita að í dag. Linda Rós Ragnarsdóttir og Þorlákur Lúðvíksson ræddu við Fram undan.
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki en mótið er ein allsherjar fjölskyldu- og íþróttahátíð þar sem boðið er upp á keppni í fjölmörgum og fjölbreyttum greinum. Badminton, bogfimi, frisbígolf, glíma, grasblak, kökuskreytingar, stafsetning og upplestur svo fátt eitt sé nefnt. Við hringdum í verkefnastjórann, hana Pálínu Ósk Hraundal, og forvitnuðumst um undirbúninginn.
Það er fátt annað sem kemst að hjá okkur þessa dagana en að ræða um blessaða sumarveðrið. Veðrið hefur leikið við öll þau sem búa eða hafa ferðast um austanvert landið á meðan vætutíðin hefur verið í miklum mæli hér vestanmegin á landinu og þá hér á suðvesturhorninu. En svo virðist sem breytingar séu í kortunum og stutt í að þau okkar sem ekki hafa séð til sólar síðustu misserin muni mögulega njóta hennar á ný og almennt hlýrra veðurs. Er þessi vætulota einsdæmi hér í höfuðborginni eða er þetta dæmigert sumar á þessu svæði? Sigurður Þ. Ragnarsson eða Siggi stormur rýndi í glæný gögn og svaraði öllu því helsta.
Einn áhrifamesti tónlistarmaður samtímans, David Byrne heldur tónleika í næstu viku, miðvikudaginn 29. júlí í Eldborgarsal Hörpu en Byrne þekkjum flest sem forsprakka hljómsveitarinnar Talking Heads sem voru brautryðjendur í bandarískri pönk og nýbylgju þó svo að tilraunamennskan og frumleiki hafi einkennt þeirra tónlist. David Byrne, sem er einn áhrifamesti og frumlegasti listamaður samtímans, hefur í tvígang komið og skemmt landanum og gerði það fyrst á vegum Smekkleysu árið 1994, þá var það Einar Örn Benediktsson sem hélt um stýrið og Fram undan rifjaði upp þá tónleika og kynni Einars og David Byrne.
Júlí er alla jafnan mesti ferðamánuður ársins og landsmenn flykkjast gjarnan í útilegur og elta veðrið um allt land. Við höfum rætt á síðustu vikum við fjölmarga aðila sem hafa getað ráðið okkur heilt í hinu ýmsa; hvernig við högum okkur í umferðinni, hvaða búnað þurfum við helst og hvað bera að varast áður en arkað er af stað og svo höfum við einnig rætt um matseldina svona þegar við erum á ferð og flugi. Tobba Marinósdóttir ráðlagt okkur t.a.m. að fara aldrei af stað án þess að undirbúa sig og skipuleggja nasl og að hbílstjórinn nærist vel fyrir brottför. En núna tókum við púlsinn á matreiðslumanninum Gísla Ægi Ágústssyni sem er vert á veitingastaðnum vegamótum á Bíldudal en hann á það til að grilla með vinum sínum í útilegu.
