
Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.
Frá 2011
Umsjón: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason.
Tæknimaður: Björgvin Kolbeinsson
Innihald: Í þessum þætti verður víða komið við. Þáttastjórnendur byrja á því að heimsækja Lystigarðinn á Akureyri þar sem Björgvin Steindórsson garðyrkjufræðingur og umsjónarmaður garðsins til margra ára segir stuttlega frá sögu þessa merkilega garðs. Því næst verður rætt við Vilmund Hansen sem heldur úti fésbókarsíðunni Ræktaðu Garðinn, um nýju bókina hans sem heitir Árstíðirnar í Garðinum - Handhægur leiðarvísir fyrir ræktendur. Á bænum Skáldalæk í Svarfaðardal ýtbýr Ósk Sigríður Jónsdóttir dýrindis sultur og villijurta hunang sem hún selur í kassa við þjóðveginn vegfarendum til yndis og ánægju. Jón og Guðbjörg kíkja í heimsókn til að fræðast meira um góðgætið hennar Ósk. Þátturinn endar svo á heimsókn hjá leikfangasmiðinum George Hollander í Eyjafirði.
Viðmælendur:
1. Björgvin Steindórsson
2. Vilmundur Hansen
3. Ósk Sigríður Jónsdóttir
4. George Hollander.
Tónlist:
1. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006
2. La Mer, Charles Trénet, Le Kiosque Aux Chansons - Vol. 1, Sergent Major 2006
3. Keep On The Sunny Side, June Carter Cash, Keep On The Sunny Side, Columbia 2005
4. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006