08:03
Fyrst á fætur
Kjarnakonan Ólöf Rún og skagfirskar pælingar um sniglarækt

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.

Ólöf Rún Tryggvadóttir stofnandi heilsuvörufyrirtækisins Eylíf var gestur þáttarins og sagði frá verkefnum sínum og áskorunum, hún flutti ung að heiman og stofnaði fjölskyldu, en fór svo í háskólanám um fertugt og stofnaði að námi loknu sitt eigið fyrirtæki í kjölfar fjármálahrunsins. Hún lætur fátt stoppa sig og neitaði til dæmis að missa hárið í krabbameinsmeðferð.

Á línunni í sveitasímanum var svo Einar Eðvald Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði sem var staddur í hestaferð og sagði sumarið fara vel af stað fyrir norðan og sagði líka frá hugmyndum um sniglarækt á Íslandi.

Lagalisti:

Ragga Holm og Júlí Heiðar - Líður vel.

Jelly Roll og Lainey Wilson - Save me.

Spilverk þjóðanna - Landsímalína.

Sting - If you love somebody set them free.

Stebbi Jak - Djöflar.

The Proclaimers - Letter from America.

Geirmundur Valtýsson - Nú er ég léttur.

KALEO - Hey Gringo.

David Bowie - Golden years.

Whitney Houston - Didn't we almost have it all.

John Mayer - Vultures.

Tom Petty - Runnin' down a dream.

John Grant - Pale Green Ghosts.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,