12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 25. júlí 2026

Útvarpsfréttir.

Landamæraeftirlit í Leifsstöð tekur allt að sex sinnum lengri tíma en áður eftir breytingar. Lögreglufulltrúi vonast til að ástandið fari að skána. Sjálfsafgreiðslustöðvar sem áttu að leysa vandann eru ekki í notkun.

Meira en tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni, vegna illvígra skógarelda. Þúsundir slökkviliðsmanna berjast nótt og dag við eldana.

Stjórnsýsluferlið sem snýr að vindorkuvirkjunum þarf að vera skilvirkt og vandað, segir forstjóri Samorku. Hann bindur vonir við að meðferð mála í rammaáætlun taki skemmri tíma eftir lagabreytingar sumarsins.

Foreldrar þurfa að greiða hundruð þúsunda til að börn þeirra geti tekið þátt í landsliðsverkefnum. Tvö til þrjúhundruð milljónir vantar í afrekssjóð svo hægt sé að jafna stöðu þátttakenda í verkefnum yngri landsliða.

Donald Trump Bandaríkjaforseti reitti af sér misgóða brandara á árlegu pressuballi sem haldið var í Washington í gær. Hefð er fyrir því að forsetinn mæti, en samband hans við bandaríska fjölmiðla hefur verið stormasamt.

Slagveður setti strik í reikninginn á Borgarfirði eystra í gærkvöld en Bræðslan er haldin í bænum í dag. Nóttin hjá skipuleggjendum fór í að binda niður tjöld og koma gestum í öruggt skjól.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,