12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 18. apríl 2026

Útvarpsfréttir.

Íranar hafa lokað umferð um Hormússund á ný. Bandaríkin hafa ekki aflétt herkví sinni um hafnir landsins. Vopnahlé rennur út á miðvikudag og Trump útilokar ekki að hefja árásir á ný.

Íslenskum sjávarútvegi er í danska dagblaðinu Berlingske lýst sem fámennisstjórn, byggðri á græðgi og pólitískum áhrifum. Fjármálaráðherra Íslands er einn viðmælenda blaðsins.

Talsverðan mannskap þurfti til að koma slösuðum manni til bjargar við Þingvallarvatn í gær. Maðurinn féll í Davíðsgjá og slasaðist talsvert á fæti.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hófst í gær á 28 stöðum víðs vegar um landið, í sendiráðum og hjá ræðismönnum erlendis.

Íbúum Evrópusambandsríkjanna fækkar um 53 milljónir fyrir aldamót, samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Eurostat, en þeir eru í dag rétt tæpar 400 milljónir.

Ákveðið hefur verið að rífa Beitingarhöllina á Þórshöfn, eftir mikið foktjón fyrr í mánuðinum.

Tónleikum Kanye West sem halda átti í Póllandi í júní hefur verið aflýst. Bresk stjórnvöld höfðu áður bannað West að koma til landsins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,