Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 11. desember 2016: Þátturinn er helgaður vísindum í öllum sínum dásamlegu birtingamyndum. Tekinn er snúningur á því sem nokkrir vísindamenn þessa lands eru að bauka. Umbreyta fitu í eitthvað nytsamlegt, nýta orku úr vatni og beita hugarorkunni til nytsamlegra verka.
Dagskrárgerð: Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson, Rögnvaldur Már Helgason og Þórgunnur Oddsdóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar að þessu sinni er platan Spilar og spilar með Viðari Alfreðssyni sem kom út árið 1981.
Umsjón: Árni Matthíasson.
Viðar Alfreðsson fæddist 26. maí 1936, sonur Theódóru Eyjólfsdóttur og Alfreðs Þórðarsonar. Mikið var um hljóðfæri á heimilinu, meðal annars píanó, rafmagnsorgel, harmonikka, trommusett og ýmis blásturshljóðfæri og Viðar fór snemma að spila á þau flest. Hann kom fyrst fram opinberlega 12 ára gamall í stuttri kvikmynd sem sýnd var í Gamla bíói og lék Boogie Woogie-sóló á píanó, en hann lék einnig á píanó í Útvarpinu 1951, þegar hann var fimmtán ára.
Sextán ára gamall lærði Viðar að blása í trompet og spilaði svo meðal annars með hljómsveit Stefáns Þorleifssonar og með Svavari Gests. Um tvítugt var hann kominn í hljómsveit Gunnars Ormslevs og fór með henni í fræga ferð til Moskvu 1957 á heimsmót æskunnar þar sem hljómsveitin vann til gullverðlauna. Um svipað leyti lék hann líka í hljómsveit Björns R. Einarssonar.
Árið 1959 fluttist Viðar til Þýskalands og hóf tónlistarnám í Hamborg. Þegar hann sneri aftur heim var hann ráðinn í afleysingar sem fyrsti trompet í Sinfóníuhljómsveit Íslands, en þegar fyrsti trompet sveitarinnar sneri aftur til starfa var Viðari boðin staða þriðja trompetleikara, en kaus að fara frekar í framhaldsnám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum 1961. Þar lagði hann trompetinn til hliðar og tók upp skógarhorn, sem einnig hefur verið kallað franskt horn.
Að námi loknu var Viðar ráðinn til Sadlers Wells þjóðaróperunnar í Lundúnum og lék þar í óperuhljómsveitinni í rúm fjögur ár. Eftir að hafa verið í lausamennsku um hríð var hann ráðinn til útvarpshljómsveitar BBC, en lék einnig með bresku fílharmóníuhljómsveitinni, sem hét þá um hríð The New Philharmonia Orchestra
Árið 1971 sneri Viðar aftur heim til Íslands og var ráðinn til sinfóníunnar þar sem hann blés til 1979 að honum var sagt upp eftir deilur við framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar. Viðar var ekki sáttur og fór í mál við hljómsveitina og hafði sigur.
Samhliða því að spila með Sinfóníunni var hann duglegur að spila jazz, mætti á jazzkvöld með trompet eða takkabásúnu og spilaði til að mynda mikið með Gunnari Ormslev síðustu árin sem Gunnar lifði, en Gunnar Ormslev lést 1981.
Að loknu starfi hjá Sinfóníunni var Viðar atorkumikill kennari á næstu árum og skólastóri um hríð, en síðustu æviárin bjó hann í Neskaupstað. Hann veiktist illa 1998 og lést 11. september 1999.
Auk plötunnar Spilar og spilar, sem við heyrum hér á eftir, má heyra Viðar með Bob Magnusson Group á Jazzvöku, afmælisplötu Jazzvakningar sem kom út 1981, og á minningarplötunni um Gunnar Ormslev, Jazz í 30 ár, sem kom út 1983. Þess má og geta að Jazzvakning gaf út geisladiskinn Jazzvaka Guðmundar og Viðars 1991, en á honum er meðal annars finna plötuna Spilar og spilar eins og hún leggur sig.
Á Spilar og spilar leikur Viðar á trompet, flygilhorn, takkabásúnu, franskt horn og túbu. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Helga B. Óskarsdóttir og Friðrik Már Baldursson sem leika á fiðlu, Brian Carlile og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir leika á lágfiðlu, Guðrún Th. Sigurðardóttir og Ólöf Sesselja á hnéfiðlu, John Stupcano á bassa, Árni Elfar á píanó, Alfreð Alfreðsson á trommur og Jón H. Sigurbjörnsson á flautu. Svo spilar Litla jazzbandið með Viðari í nokkrum lögum á plötunni; Guðmundur Ingólfsson á píanó, Árni Scheving á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommur.
Viðar útsetti lögin að mestu sjálfur, en félagi hans úr BBC-hljómsveitinni, tónlistarmaðurinn og hljómsveitarstjórinn Bob Leaper aðstoðaði hann með hljómsveitarútsetningarnar á fjórum lögum: If He Walked into My Life, Cavatina, Makin' Whoopee og As Long as He Needs Me. Þess má geta að Bob Leaper útsetti mikið fyrir Bítlana á sínum tíma.
Ekki tók nema 36 klukkustundir að taka plötuna upp, enda var búið að æfa vel og lengi fyrir upptökurnar. Viðar gaf plötuna út sjálfur en Hljómplötuútgáfan, sem síðar varð Skífan, tók að sér að dreifa henni. Henni var vel tekið og seldist upp á skömmum tíma.
Á A-hlið plötunnar er fyrst lagið Be My Love eftir þá Sammy Cahn og Nicolas Brodszky, sem Mario Lanza söng í bíómyndinni The Toast of New Orleans og varð fyrsta gullplata hans. Þá kemur If He Walked into My Life eftir Jerry Herman úr söngleiknum Mame sem Angela Lansbury söng. Þriðja lagið er Cavatina eftir Stanley Myers, lag sem samið var fyrir kvikmyndina The Walking Stick, en aukin útgáfa þess var síðan notuð í kvikmyndinni The Deer Hunter þar sem John Williams lék á gítarinn. Viðar samdi sjálfur fjórða lag A-hliðarinnar, Vala heitir það í höfuðið á Valerie dóttur hans. Lokalag A-hliðar plötunnar er svo Makin' Whoopee eftir Walter Donaldson sem Eddie Cantor söng í söngleiknum Whoopee! 1928.
B-hlið plötunnar hefst með laginu As Long as He Needs Me eftir Lionel Bart úr söngleiknum Olivier, söng Nancy til illmennisins Bill Sikes. Í viðtali við Viðar kom fram að hann valdi það lag á plötuna því hann spilaði í heilt ár í leikhúshljómsveitinni við sýningar á Oliver. Næst kemur For Once in My Life eftir þá Ron Miller og Orlando Murden sem þeir sömdu 1965 og ýmsir Motown-listamenn spreyttu sig á, fyrst Jean DuShon, þá Connie Haines, Barbara McNair og Four Tops Temptations, Martha & the Vandellas, Smokey Robinson, Kiki Dee, Sammy Davis Jr. og Gladys Knight & the Pips. Einnig urðu vinsælar útgáfur Tony Bennett og Frank Sinatra, en þær eru allar í hægum takti eins og lagið var upphaflega. Stevie Wonder færði það í þann fjöruga búning sem flestir þekkja í dag og þeir Viðar og félagar gera að sinni. Þriðja lagið heitir einfaldlega Three og er eftir A. Larkin, sem er líklega breskur spilafélagi Viðars í Bretlandi. Eina hreinræktaða jazzlag plötunnar er lokalag hennar, Misty, eftir píanóleikarann Erroll Garner, sem sló reyndar í gegn með söngvaranum Johnny Mathis, þó það hafi upphaflega verið án söngs, en meðal þeirra sem tóku lagið upp eru Ella Fitzgerald og Sarah Vaughan.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalistinn:
Kjartan Ólafsson - Lifnar Hagur Hýrnar Brá.
Jón Lárusson - Kvölda tekur sest er sól (Skagfirðingastemma).
Elsa Sigfúss - Lofið þreyttum að sofa.
Einsöngvarakvartettinn - Fjórir Dvergar.
Guðrún Á. Símonar - Malaguena.
ELVIS PRESLEY - Can't Help Falling In Love.
Haukur Morthens & Hljómsveit Björns R. Einarssonar - La Mer.
TOM JONES - Green, Green Grass Of Home.
Sigur Rós - Andvari.
Louis Armstrong - Lazybones.
Tryggvi og félagar - Dansið sveinar og dansið fljóð.
Svavar Lárusson og Sy-We-La kvintettinn - Hreðavatnsvalsinn.
Gísli H. Brynjólfsson - Ungdomsminnen.
Guðrún Gunnarsdóttir Dagskrárgerðarm. - Eins og vera ber.
Hljómsveit Magnúsar Péturssonar - Syrpa:Tempo primo, Ég er farmaður fæddur á landi, Síðasti dansinn.

frá Veðurstofu Íslands.
Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Allir þeir átta sem við höfum rætt við í þessum þáttum fóru út í þjálfun eftir að leikmannaferlinum lauk. Sumir byrjuðu jafnvel að þjálfa á meðan þeir voru enn að spila. Flestir hafa náð eftirtektarverðum árangri í þjálfun og gefið mikið af sér. Í þessum þætti eru Balkanbræður sem fótboltakennarar til umfjöllunar. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic, Salih Heimi Porca, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic og Hajrudin Cardaklija.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna voru Kristján Ingi Mikaelsson, sjóðsstjóri hjá Visku sjóðum og fjárfestir, Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar og Vilhjámur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Tugir manna og kvenna sem voru á vistheimilum sem börn, hafa leitað til lögmanns eftir þátt Kveiks um aðstæður barna í Bakkakoti. Sumir eru að segja sögu sína í fyrsta sinn í áratugi. Lögmaðurinn segir fleiri heimili til skoðunar en Bakkakot.
Úkraínumönnum og Rússum hefur verið boðið að funda um stríðslok í Bandaríkjunum í næstu viku, að sögn forseta Úkraínu. Bandaríkjamenn vilja að stríðinu verði lokið í júní.
Hvorki er hægt að tryggja öryggi starfsfólks né sjúklinga á bráðamóttöku í núverandi ástandi, að mati formanns læknafélagsins. Tímabært sé að setja í gang neyðaráætlun í heilbrigðiskerfinu.
Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru og stór bakki hrunið úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Landeigandi segist aldrei hafa séð svo mikið landrof í fjörunni.
Hjónin Bill og Hillary Clinton vilja að vitnisburður þeirra fyrir þinginu um tengsl við Jeffrey Epstein verði fyrir opnum tjöldum. Repúblíkanar eru sakaðir um að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta með skýrslutökunum.
Bryggjustöðin verður opnuð á Þingeyri í dag en hún er eina verslunin í þorpinu sem opin verður allan ársins hring. Engin búð hefur verið í þorpinu í um hálft ár.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga athyglina frá þeim. Og við ætlum að fjalla um mál sem hafa kannski fallið í skuggann af stærstu fréttamálunum: bólusetningar barna, stríð gegn háskólum og krafa ríkisstjórnar Trumps um aðgang að upplýsingum um kjósendur. Ólöf Ragnarsdóttir fer með okkur til Bandaríkjanna.
Einir vinsælustu og mest umtöluðu sjónvarpsþættir samtímans heita Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex hefur borgað sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra verður gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Og þeir voru meðal kyndilbera fyrir Ólympíuleikana, sem hófust einmitt í gær. En þeir leika í þáttunum elskendur, sem eru tveir bestu íshokkíspilarar heimsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Róberta Andersen féll snemma fyrir gítarnum, en spunaþráin kom þegar hún sá tríó Hilmars Jenssonar spila á Akureyri skömmu fyrir aldamót. Frá þeim tíma hefur hún leikið allskyns músík með allskyns tónlistarmönnum og hljómsveitum, meðal annars Moses Hightower, múm, Ólöfu Arnalds, Sin Fang, Julianna Barwick, Pascal Pinon og Hist og. Hún vinnur nú að breiðskífu sem verður vísir að tónlistaruppeldissögu hennar.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Það eru nokkrir hópar samfélagsins sem eru ekki mikið fyrir tilfinningatjáninguna og þar má sem dæmi nefna karlmenn. Karlar elska að tala um tilfinningar með því að tala ekki um þær, sú pæling um að kæfa tilfinningarnar með einhverju öðru. Klassískt dæmi um þetta má nefna golfklúbba, bumbubolta, pöbbaröltið eða nokkrir fótboltaleikir yfir einum köldum, en hvar leynast lausnir karla til að tjá sig?
Umsjón: Salvör Mist Sigurðardóttir Melsteð
Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Hugmyndin um heilbrigði. Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir verður gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki.
Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum að skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var að gefa út sína fjórðu skáldsögu, Síðustu dagar skeljaskrímslisins.
Svo höldum við suður á bóginn til Parísar og Pamplóna og lendum í hrakningum með Ernest Hemingway. 100 ár eru frá því að fyrsta skáldsaga nóbelshöfundarins og hrakfallabálksins bandaríska kom út 1926; The Sun Also Rises eða Og sólin rennur upp. Lilja Sigurðardóttir rithöfundur hefur lengi haft mikinn áhuga á Hemingway og segir frá lygilegri ævi hans.
Viðmælendur: Steinunn G. Helgadóttir og Lilja Sigurðardóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Hauk Gröndal saxófón/klarinettleikara og tónsmið um tónlistina í lífi hans,ferilinn og hvað drífur hann.
Tónlistin í þættinum
Tíbet - Haukur Gröndal - Frelsissveit Íslands 2022
Pikku Kinalaisia - Jarko Hakala - Norrænn kvintett 2005
Evil Beaver - Haukur Gröndal - Rodent 2004
Ether - Haukur Gröndal - Frelsissveit Íslands 2022
Fréttir
Fréttir
Utanríkisráðherra Danmerkur telur samband Grænlands og Danmerkur við Bandaríkin betra nú en fyrir nokkrum vikum. Krísan sé þó ekki með öllu afstaðin.
Leiðsögumaður segir ásýnd Reynisfjöru gjörbreytta eftir mesta landrof í manna minnum. Nú sé eins og að vera staddur allt annars staðar á landinu.
Fólk með örorku ber tvöfalda byrði er kemur að lífskjörum og heilbrigðisþjónustu samkvæmt nýrri könnun. Það sækir sér síður heilbrigðisþjónustu en aðrir vegna þess.
Dagur Benediktsson ríður á vaðið af íslensku keppendunum á Vetrarólympíuleikunum á morgun. Hann segir eitt skot í byssunni á fjögurra ára fresti og því þurfi að standa sig vel.
KR er bikarmeistari karla í körfubolta. Suðurnesjaslagur er fram undan í úrslitum kvenna.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Steen Vig og Bluesicians leika lögin We Sure Do Need Him Now, Memphis Blues, Blue Turning Grey Over You, Taps Miller, Kansas City Blues, Foo Foo Blues og Tee. Jimmy Knepper Gee Baby Ain't I Good To You, Close As Pages In A Book og Irresistible You. Tríó Bill Evans og Frank Minon flytja lögin So What, Flamenco Skethces og Round Midnight. Charles Mingus og hljómsveit flytja lögin Fifty Street Blues, Conversation, East Coasting, West Coast Ghost, Celia og Memories Of You.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Rætt var við Finn Friðriksson, félagsmálfræðing og dósent við Háskólann á Akureyri, um málbreytingar og stöðugleika íslenskrar tungu.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Daníel Bjarnason, tónskáld og hljómsveitarstjóri, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Clifford Curzon leikur 2. kafla úr Píanókonsert nr. 1 eftir Johannes Brahms, ásamt London Symphony Orchestra, stjórnandi er Georg Szell.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Í Sagnaslóð Birgis Sveinbjörnssonar er rætt við Ellert Kárason fyrrverandi leigubílsjóra á Akureyri um starfið en Ellert var leigubílsjóri í 52 ár og þrjá mánuði og keyrði á þeim tíma um 2,7 miljón kílómetra eða eins og 67 sinnum kringum miðbaug. Þá er lesin frásögn af fyrstu póstferðinni sem farin var alla leið frá Reykjavík til Akureyrar á bíl en það var Guðmundur Albertsson sem fór þá ferð 1933.

frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Leiknar eru útvarpsupptökur með Hljómsveit Hauks Morthens, en nú er komið að upptökum frá áttunda áratugnum. Þeir sem leika í hljómsveitinni eru píanóleikarinn Carl Möller, gítarleikarinn Helgi Kristjánsson, trommuleikarinn Guðjón Ingi Sigurðsson og bassaleikarinn Ómar Axelsson. Einnig eru dregin fram lög að plötum sem Haukur gerði á sínum tíma.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. maí 2007.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna voru Kristján Ingi Mikaelsson, sjóðsstjóri hjá Visku sjóðum og fjárfestir, Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar og Vilhjámur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Gestur dagsins í FIMMUNNI var Nanna Hlíf Ingvadóttir tónlistarkennari og kórstjóri. Nanna talaði um fimm tónlistarkennara sem hafa haft áhrif á líf hennar og mótað. Það hófst með Jóni söngkennara í Æfingadeildinni og endaði á Kristínu Valsdóttur. Á milli heyrðum við sögur af ævintýralegri ævi.
Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður atburði dagsins og spilaði tengda tónlist
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Björgvin Franz kemur í hljóðverið til Söndru og Gísla Marteinn
GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir).
EGÓ - Mescalin.
UMBERTO TOZZI - Gente di Mare.
ARON CAN - Flýg upp.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Ég Fer Í Nótt.
Thee Sacred Souls - Lucid Girl
Hjálmar - Upp í sveit.
BRUNALIÐIÐ - Einskonar Ást.
START - Seinna Meir.
Parton, Dolly, Beyoncé - Tyrant.
Kristmundur Axel, Bubbi Morthens - Ég er kominn heim
ÍRAFÁR - Ég Sjálf.
Útvarpsfréttir.
Tugir manna og kvenna sem voru á vistheimilum sem börn, hafa leitað til lögmanns eftir þátt Kveiks um aðstæður barna í Bakkakoti. Sumir eru að segja sögu sína í fyrsta sinn í áratugi. Lögmaðurinn segir fleiri heimili til skoðunar en Bakkakot.
Úkraínumönnum og Rússum hefur verið boðið að funda um stríðslok í Bandaríkjunum í næstu viku, að sögn forseta Úkraínu. Bandaríkjamenn vilja að stríðinu verði lokið í júní.
Hvorki er hægt að tryggja öryggi starfsfólks né sjúklinga á bráðamóttöku í núverandi ástandi, að mati formanns læknafélagsins. Tímabært sé að setja í gang neyðaráætlun í heilbrigðiskerfinu.
Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru og stór bakki hrunið úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Landeigandi segist aldrei hafa séð svo mikið landrof í fjörunni.
Hjónin Bill og Hillary Clinton vilja að vitnisburður þeirra fyrir þinginu um tengsl við Jeffrey Epstein verði fyrir opnum tjöldum. Repúblíkanar eru sakaðir um að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta með skýrslutökunum.
Bryggjustöðin verður opnuð á Þingeyri í dag en hún er eina verslunin í þorpinu sem opin verður allan ársins hring. Engin búð hefur verið í þorpinu í um hálft ár.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Helgarútgáfan heilsaði frá Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði þennan laugardaginn. Gamla sjúkrahúsið hýsir nú söfn íbúa Ísafjarðarbæjar og er í daglegu tali kallað Safnahúsið en þetta er eitt af fallegstu byggingum landsins. Þegar Helgarútgáfan var mætt í hús varð heldur gestkvæmt og ein þeirra sem leit við í kaffibolla var Guðfinna Hreiðarsdóttir ein forstöðukvenna hússins og fræddi hún hlustendur um þetta sögufræga hús.
Guðfinna gerði gott betur en að fræða okkur um húsið, hún kom með glænýtt lag úr smiðju Þormóðs Eiríkssonar sem verður lag stuðningsfólks Vestra, íþróttafélagsins í bænum. Þetta varð frumflutningur lagsins og það var svo nýtt að það var ekki komið nafn á lagið þegar það heyrðist á Rás 2 þennan laugardaginn.
Hún Katla Vigdís Vernharðsdóttir er ung en þó afar reynd tónlistarkona sem söðlaði um á dögunum og flutti vestur til þess að taka að sér leikskóla í bæ með kærasta sínum. Þau höfðu verið í námi í leikskólafræðum í Skotlandi og flugu svo beinustu leið á Ísafjörð. Katla er í hljómsveitinni Celebs frá Suðureyri ásamt bræðrum sínum og hún bauð upp á bragðmikla Meðmælasúpu þennan daginn.
Úr næsta firði kom næsti viðmælandi en það var hún Steinunn Ása Sigurðardóttir sem sagði okkur frá endurreisn leikfélagsins á Flateyri. Frumsýnt verður á næstu dögum glænýtt og frumsamið leikrit eftir tvítuga Flateyringinn Ölmu Sóleyju Önnudóttur Wolf er kallast Með kjafti og klóm.
Þar sem stjórnandi þáttarins var staddur úti á landi þennan daginn varð tónlisti af landsbyggðinni af megninu til. Og nóg er nú til! Við heyrðum tónlist af öllu landinu, íslenskt tónlistarfólk og hljómsveitir í bland við það nýjasta og ferskasta af Rásinni ykkar góðu!
Frá kl. 12:40
CELEBS & SIGGA BEINTEINS - Þokan
MONOTOWN - Peacemaker
OLIVIA DEAN - Nice To Each Other
VINIR VORS OG BLÓMA - Frjáls
ROXY MUSIC - Let's stick together
ÆFING - Fínn karl kerlingin hans
DÚMBÓ OG STEINI - Frækorn og flugur
Mugison - Til lífsins í ást
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Börnin og bítið
Upplyfting - Traustur vinur
ELTON JOHN - Goodbye Yellow Brick Road
Frá kl. 14:00
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Lukkutroll
VALGEIR SKORRI - Frýs / Flýt
GREIFARNIR - Skiptir engu máli
ADDISON RAE - Headphones On
BACHMAN-TURNER OVERDRIVE - You Ain't Seen Nothing Yet
EMINEM - My name is
SÚELLEN - Verona
GOSI & SALÓME KATRÍN - Tilfinningar
Frá kl. 15:00
B.G. OG INGIBJÖRG - Góða ferð
BLOODGROUP - Hips Again
MÁNAR - Leikur að vonum
BAGGALÚTUR - Bildudals grænar baunir
DEXYS MIDNIGHT RUNNERS - Come on Eileen
FACON - Vísitölufjölskyldan
Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!
Ragga Holm fór um víðan völl eins og vantarlega í Smelli dagsins. hún gaf 7. febrúar 1976 sérstaka athygli og fór yfir vinsældir laga það herrans ár. Allir smellirnir ykkar á einum stað alla laugardaga !
Lagalisti:
Júlí Heiðar & Dísa - Ástardúett
Lenny Kravitz - I'll Be Waiting
CMAT - Ready
George Michael & Aretha Franklin - I Knew You Were Waiting (For Me)
Bubbi Morthens - Bláu Ljósin
Snorri Helgason - Torfi Á Orfi
Chumbawamba - Tubthumping
Digital Ísland - Eh Plan?
Kate Bush - Wuthering Heights
Wet Leg - Ur Mum
Sinéad O'Connor - Mandinka
Elles Bailey - Growing Roots
GDRN - Næsta Líf
Bríet - Bang Bang
200.000 Naglbítar - Brjótum Það Sem Brotnar
Bob Dylan - Hurricane
Donna Summer - Love To Love You Baby
Brotherhood Of Man - Save Your Kisses For Me
Aerosmith - Dream On
Ohio Players - Love Rollercoaster
Kingfishr - Killeagh
Roxy Music - More Than This
FM Belfast - Underwear
Friðrik Ómar - Hvað Ef Ég Get Ekki Elskað
Árný Margrét - Hakk Og Spaghettí
Stealers Wheel - Stuck In The Middle With You
Jón Jónsson - Dýrka Mest
Fréttir
Fréttir
Utanríkisráðherra Danmerkur telur samband Grænlands og Danmerkur við Bandaríkin betra nú en fyrir nokkrum vikum. Krísan sé þó ekki með öllu afstaðin.
Leiðsögumaður segir ásýnd Reynisfjöru gjörbreytta eftir mesta landrof í manna minnum. Nú sé eins og að vera staddur allt annars staðar á landinu.
Fólk með örorku ber tvöfalda byrði er kemur að lífskjörum og heilbrigðisþjónustu samkvæmt nýrri könnun. Það sækir sér síður heilbrigðisþjónustu en aðrir vegna þess.
Dagur Benediktsson ríður á vaðið af íslensku keppendunum á Vetrarólympíuleikunum á morgun. Hann segir eitt skot í byssunni á fjögurra ára fresti og því þurfi að standa sig vel.
KR er bikarmeistari karla í körfubolta. Suðurnesjaslagur er fram undan í úrslitum kvenna.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Hlustendur kunna vel að meta írska þjóðlagapoppið frá Kingfishr sem haggast ekki af toppnum með lagið Killeagh.
Lagalisti:
Zach Bryan - Plastic Cigarette.
Bríet - Bang Bang.
Harry Styles - Aperture.
Topp tíu listinn:
10. Bubbi Morthens - Bláu ljósin.
9. Ásgeir Trausti - Against the Current.
8. Arctic Monkeys - Opening Night.
7. Addison Rae - Headphones On.
6. Tame Impala - Dracula.
5. Wet Leg - pokemon.
4. Cameron Winter - Love Takes Miles.
3. Bruno Mars - I Just Might.
2. Portugal the man - Tanana.
1. Kingfishr - Killeagh.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Tónlistarkonan með marga hatta Rebekka Blöndal mætir í lagalistann með poka fullan af tónlist þar sem við förum yfir lífshlaupið á hundavaði en einbeitum okkur fyrst og fremst að tónlistinni sem um ræðir. Þar kennir ýmissa grasa, meðal annars Rammstein, Led Zeppelin, Björgvin Halldórsson og Ella Fitzgerald.
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Það var sko kósí stemmning á Næturvakt kvöldsins. Bóndinn lét heyra í sér og Björgvin er afmælisstrákurinn þennan laugardaginn!
Tónlistin í þættinum:
Snorri Helgason - Haustið '97.
FLEETWOOD MAC - Oh Well.
Geese - Cobra.
ARCANE ROOTS - A Wave, Across The Sea.
BEAR MCCREARY - The last of the old gods feat. Sigurjón Kjartansson.
THIN LIZZY - Whiskey In The Jar.
MUSE - Uprising.
HÖRÐUR TORFASON - Brekkan.
POST MALONE - Sunflower.
Waits, Tom - The heart of Saturday night.
Magnús Eiríksson - Komdu Í Partý.
SUPERGRASS - Alright.
SUPERTRAMP - The Logical Song.
INGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR - Gestalistinn.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
Pónik og Einar - Viltu dansa.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Blíðasti blær.
RUSLANA - Wild Dance.
Gainsbourg, Charlotte, Gainsbourg, Serge - Lemon incest.
GIMMI - Þannig er nú það.
Gunnlaugur Reynisson - Þjóðarsálin (Live).
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigfús Pétursson, Álftagerðisbræður - Rósin.
GEIRMUNDUR VALTÝSSON - Það er laugardagskvöld.
CROSBY STILLS & NASH - Almost Cut My Hair.
HALLI REYNIS - Tvær hendur tómar.
Trap Hljómsveit - Storms never last.