Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands er í miklum vandræðum eftir birtingu enn fleiri skjala sem tengjast Epstein og Peter Mandelson, sem hann skipaði sendiherra í Bandaríkjunum í fyrra. Starmer segir Mandelson hafa logið að sér og öðrum, en viðurkenndi líka í gær að hafa vitað um tengsl þeirra Epsteins. Þetta og fleira tengt skjölunum var til umræðu í Heimsglugganum með Boga Ágústssyni.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, ræddi um efnahagsmálin við okkur. Hann lítur á ummæli forsvarsmanna Seðlabankans við kynningu vaxtaákvörðunar í gær sem beina hótun í garð verkalýðshreyfingarinnar.
Við skoðuðum nýja könnun um heilbrigðisþjónustu og kostnað, ekki síst meðal öryrkja, með Rúnari Vilhjálmssyni prófessor við Háskóla Íslands. Svo var rætt um samspil næringar og líðanar við Ingunni Erlu Ingvarsdóttur, klínískan næringarfræðing.
Tónlist:
English Chamber Orchestra - Smile.
Nat King Cole - Smile.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalistinn:
Tónasystur - Unnusta sjómannsins.
Gautar - Tvífarinn.
Sigrún Jónsdóttir - Í faðmi þér.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Gettu Hver Hún Er.
Ella Fitzgerald and The Ink Spots - Into Each Life Some Rain Must Fall.
Ingibjörg Þorbergs og Alfreð Clausen - Á Morgun.
Inge Østergaard - Oho-Aha.
Earl Klugh - Ocean Blue.
Will Glahé - Ach Grete Du Hast So Grade Nahte.
Savanna tríóið - Þorraþræll.
Bragi Hlíðberg - Dansað á þorranum.
Harmonikutríó Jan Moravek - Hringdans.
Mannakorn - Hundur.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á hverju ári er valin stofnun ársins á vegum og byggir valið á mannauðskönnun hjá starfsfólki stofnana ríkisins og vinnustaði Reykjavíkurborgar o.fl. tæplega 35.000 manns. Á sama degi og úrslitin eru kynnt fer fram málþing um mannauðsmál undir yfirskriftinni Virkni og vellíðan á vinnumarkaði og við fengum Kára Sigurðsson formann Sameykis, en Sameyki stendur fyrir báðum þessum viðburðum, og með honum kom Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis og þau sögðu okkur betur frá.
Hvað einkennir góðan leiðtoga? Hvað er þjónandi forysta? Við tölðum við Skúla Ólafsson sóknarprest í Neskirkju og Sirrý Arnardóttur, stjórnendaþjálfara, fyrirlesara, rithöfund og fjölmiðlakonu, en þau standa saman að námskeiði sem kallast Framsækni og forysta - hámarkaðu árangur þinn í starfi og daglegu lífi. Við fengum þau til að svara þessum spurningum og fleirum í dag.
Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Þrjá undanfarna fimmtudaga hefur hann talað um samskipti á vinnustaðnum. Öll komum við með mismunandi reynslu og bakgrunn í farteskinu inn á vinnustaðinn og það getur verið talsvert flókið að stilla saman strengina svo fólki líði vel og samskipti gangi vel fyrir sig. Í dag tók hann þetta saman og kláraði vinnustaðasamskiptin, að minnsta kosti í bili.
Tónlist í þættinum í dag:
Bláir fuglar - Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson)
I Can See Clearly Now - Johnny Nash (lag eftir flytjanda).
Down Under - Men at work (Colin Hay og R. Strykert)
Meðan nóttin fellur á - Snæfríður Ingvarsdóttir og Memfismafían (Þorsteinn Einarsson og Bragi Valdimar Skúlason)
UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ofbeldisbrot sem tíu menn segjast hafa orðið fyrir í fóstri í Bakkakoti á Suðurlandi eru líklega fyrnd, að sögn lögreglustjóra. Forsætisráðherra hittir nokkra þeirra ásamt lögmönnum í hádeginu.
Staða Keirs Starmer sem forsætisráðherra Bretlands hefur aldrei verið veikari, hvernig hann hefur farið með mál Peters Mandelsons vekur ekki aðeins óánægju hjá andstæðingum, heldur líka samflokksmönnum.
Forsætisráðherra viðurkennir að mikla verðbólgu í janúar megi að hluta rekja til breytinga sem ríkisstjórnin gerði um áramót. Hins vegar sé engin ástæða til að breyta um stefnu.
Um tveggja ára gamalt barn var skilið eitt eftir á leikskóla í Breiðholti þegar honum var lokað á mánudag. Þetta er í annað sinn sem slíkt gerist í Reykjavík á einu ári.
Sveitarfélög þurfa að huga betur að hættu vegna sjávarflóða og þeir sem skipuleggja og byggja hús við fjöruborðið geta ekki vænst þess að fá tjón bætt. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur varað sveitarfélög og húseigendur við þessu.
Stór hluti innflytjenda nýtti ekki kosningarétt sinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum, Reykjanesbær ætlar að halda vinnustofur í mars til að auka kosningaþátttöku þeirra.
Keflavík og Grindavík mætast í nágrannaslag í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta. Þetta varð ljóst eftir æsispennandi undanúrslit í gærkvöld.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að fánaborginni við Ráðhús Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs í dag verður nefnilega líklega tekin fyrir tillaga borgarstjóra um að flagga grænlenska fánanum við ráðhúsið. Hugmyndin með tillögunni er að sýna nágrönnum okkar táknræna samstöðu, eins og borgarstjóri orðaði það í Facebook-færslu, en fáni Grænlands yrði þá dreginn að húni við hlið úkraínska þjóðfánans og þess palestínska sem þar eru þegar af sömu ástæðu.
Viðmælendur:
Henry Alexander Henryson, siðfræðingur
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og sérfræðingur um íslenska fánann
Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, Nuuk
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað í.
Þá lítum við um öxl og flytjum brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland.
Og í lok þáttar var rifjað upp viðtal við Björgvin Inga Ólafsson hagfræðing frá árinu 2021 um Bitcoin sem þá var í hæstu hæðum. Staðan hefur breyst umtalsvert núna en rafmyntin hefur fallið verulega í verði síðustu mánuði.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Það er martröð í skáldskap og tónum sem verður efni þessa þáttar. Til forna trúði fólk því að til væri óvættur, mara, sem legðist ofan á sofandi fólk eða traðkaði á því og af því er orðið „martröð“ dregið. Í Ynglinga sögu Snorra Sturlusonar segir frá því þegar mara treður mann til bana. Skáldkonan Natasha S. vísar til goðsagnarinnar um Möru í ljóðabók sinni „Mara kemur í heimsókn“ og í þættinum verða lesin þrjú ljóð úr henni. Einnig verður lesið ljóð „Martröð“ eftir Örn Arnarson og flutt tónverk Hildigunnar Rúnarsdóttur við ljóðið. Af öðrum tónskáldum sem hafa lýst martröð í tónum má nefna Gioacchino Rossini, Hanns Eisler og Antonio Francisco Braga. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Melkorka Ólafsdóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
„Ég kalla þessi stóru leirker stundum bara táraglös, þau minna á stundaglös, en telja tár og tengjast okkar innri sjó, okkar innri sjávarföllum,“ segir Á. Birna Björnsdóttir um einkasýninguna Þegar ég lít upp hefur tunglið breytt um lögun, sem opnaði nýverið í gallerí Berg við Klapparstíg. Við lítum við í Berg Contemporary í Víðsjá dagsins. Sölvi Kolbeinsson lítur einnig við í hljóðstofu og segir frá einu lagi af nýju plötunni, Collage. Við heyrum líka rýni Tuma Árnasonar í Myrka músíkdaga og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um Fröken Dúllu Kristínar Svövu Tómasdóttur.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Árið 2061 nær golfstraumurinn ekki lengur til Íslands, þorskstofninn er hruninn, flóttafólk streymir til landsins, óstjórn ríkir og glæpagengi og stríðsherrar berjast um völdin - já og það er alltaf rigning. Grímuklætt fólk á mótorhjóli stelur mikilvægum kassa frá líftæknifyrirtæki, og ungur tæknimaður lendir í klóm mannræningja.Einhvern veginn þannig er hefst ný íslensk myndasaga sem kom út hjá Froski útgáfu í desember. Huldufólk nefnist bókin og á bakvið hana standa teiknarinn Fannar G. Gilbertsson og höfundurinn Gunnar Birgisson - sem starfar sem lögfræðingur í Texas í Bandaríkjunum. Við ræðum við Fannar og Gunnar um myndasögur og niðurbrot samfélagsins
Nú í janúar breyttist eignarhald á samfélagsmiðlinum Tiktok í Bandaríkjunum, en um langt skeið hafa bandarísk stjórnvöld viljað færa það úr höndum kínverskra eigenda, fyrirtækisins Bytedance, enda mikil tortryggni í garð þeirra og grunsemdir um áhrif kínverskra stjórnvalda. Um leið og nýir eigendur - sem eru nátengdir Donald Trump - tóku við varð umtalsverð breyting á virkni forritsins. Notendur héldu því meðal annars fram að algóryþminn virtist dempa dreifingu á færslum tengdum Epstein-skjölunum og mótmælum gegn útlendingalögreglunni ICE í Minneapolis. Við ætlum að fræðast um þetta, heyra hvort þetta hafi áhrif á íslenska notendur, og almennt um það hvernig Tiktok virkar í mismunandi heimshlutum. Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera, útskýrir stöðuna.
Tónlistin í þættinum er frá Coby Sey og Láru.
Fréttir
Fréttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður taka aftur til rannsóknar tvö kynferðisbrotamál vegna meintra brota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til Ríkissaksóknara.
Stjórnendur á Landspítalanum leggja til að hjúkrunarheimili taki strax við fjörutíu til fimmtíu manns og tvímenni jafnvel í herbergi til að bregðast við vanda spítalans.
Lögmaður manna sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti segir að þeir ættu að fá bætur þótt lög um sanngirnisbætur séu ekki lengur í gildi.
Karlmaður í Belgíu, sem framvísaði falsaðri kvittun við vændiskaup, hlaut í dag þriggja ára dóm fyrir nauðgun. Það er í fyrsta sinn sem sakfellt er fyrir nauðgun í slíku máli.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Stjórnendur Landspítalans hafa varað við því um nokkurt skeið að það stefndi í óefni á sjúkrahúsinu. Í þremur minnisblöðum sem þeir hafa sent ráðherra á síðustu vikum kemur fram að vandinn á spítalanum ógni heilsu aldraðra og tafarlausra aðgerða er krafist.
Hart er sótt að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands vegna skipunar hans á Peter Mandelson í sendiherrastöðu þrátt fyrir tengsl þess síðarnefnda við Jeffrey Epstein. Kristján Guy Burgess stjórnmálafræðingur telur að þó naprir vindar blási um Starmer verði hann enn á ráðherrastóli um sinn.
Í sumar er búist við heldur færri farþegaskipum en í fyrra og þeim hafði þá fækkað frá því í hitteðfyrra. Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri hjá Cruise Iceland telur að það taki nokkurn tíma fyrir greinina að jafna sig eftir þá fækkun sem megi helst rekja til óvissu og álagningu skatta og gjalda.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Moses Hightower - Búum til börn.
Einsöngvarakórinn, Svala Nielsen - Vísur Vatnsenda-Rósu.
Budapest Art Orchestra, Snorri Hallgrímsson, Sigrún Harðardóttir, Eiríkur Rafn Stefánsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Ingi Garðar Erlendsson, Karl James Pestka, Ásta Kristín Pjetursdóttir, Unnur Jónsdóttir - At the End of the Dance.
Harris, Hal - Jitterbop baby.
Mikael Máni Ásmundsson - Unexpected turn.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Daníel Bjarnason, Hallveig Rúnarsdóttir - 03 Summertime úr Porgy og Bess (1935).

frá Veðurstofu Íslands

Hljóðritanir frá tónleikum á nýafstöðnum Myrkum músíkdögum, annars vegar hljómar verk Huga Guðmundssonar frá tónleikum píanókvartettsins Neglu og hins vegar hljóma tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur. Báðir tónleikar fóru fram í Norðurljósum, Hörpu, 31. janúar 2026. Georg Magnússon hljóðritaði tónleikana og umsjón með þættinum hefur Berglind María Tómasdóttir.
Frá tónleikum píanókvartettsins Neglu:
Hugi Guðmundsson (1977):
Centuria (2025) – Frumflutningur
I. Covenant
II. Crystalline
III. Carillon
Píanókvartettinn Negla:
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla
Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla
Júlía Mogensen, selló
Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó
Frá tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur:
Haukur Þór Harðarson (1989)
Roots, Laments (2026) – Frumflutningur
Þuríður Jónsdóttir (1967)
Incerti frammenti (1999)
Tryggvi M. Baldvinsson (1965)
Jarðljós (2025) – Frumflutningur
Ljóð: Gerður Kristný (1970)
I Aðfangadagur
II Hirðir
III Kirkja
IV Aftaka
V Jarðljós
Flytjendur
Einsöngvari:
Herdís Anna Jónasdóttir, sópran
Kammersveit Reykjavíkur:
Áshildur Haraldsdóttir, flauta
Matthías Nardeau, óbó
Rúnar Óskarsson, klarinett
Francisco Soutinho Ventura, fagott
Arthur Zanin, trompet
Floris van Daalen, básúna
Frank Aarnink, slagverk
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir,, fiðla
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla
Hrafnkell Orri Egilsson, selló
Richard Korn, kontrabassi
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó
Stjórnandi:
Hjörtur Páll Eggertsson
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað í.
Þá lítum við um öxl og flytjum brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland.
Og í lok þáttar var rifjað upp viðtal við Björgvin Inga Ólafsson hagfræðing frá árinu 2021 um Bitcoin sem þá var í hæstu hæðum. Staðan hefur breyst umtalsvert núna en rafmyntin hefur fallið verulega í verði síðustu mánuði.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á hverju ári er valin stofnun ársins á vegum og byggir valið á mannauðskönnun hjá starfsfólki stofnana ríkisins og vinnustaði Reykjavíkurborgar o.fl. tæplega 35.000 manns. Á sama degi og úrslitin eru kynnt fer fram málþing um mannauðsmál undir yfirskriftinni Virkni og vellíðan á vinnumarkaði og við fengum Kára Sigurðsson formann Sameykis, en Sameyki stendur fyrir báðum þessum viðburðum, og með honum kom Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis og þau sögðu okkur betur frá.
Hvað einkennir góðan leiðtoga? Hvað er þjónandi forysta? Við tölðum við Skúla Ólafsson sóknarprest í Neskirkju og Sirrý Arnardóttur, stjórnendaþjálfara, fyrirlesara, rithöfund og fjölmiðlakonu, en þau standa saman að námskeiði sem kallast Framsækni og forysta - hámarkaðu árangur þinn í starfi og daglegu lífi. Við fengum þau til að svara þessum spurningum og fleirum í dag.
Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Þrjá undanfarna fimmtudaga hefur hann talað um samskipti á vinnustaðnum. Öll komum við með mismunandi reynslu og bakgrunn í farteskinu inn á vinnustaðinn og það getur verið talsvert flókið að stilla saman strengina svo fólki líði vel og samskipti gangi vel fyrir sig. Í dag tók hann þetta saman og kláraði vinnustaðasamskiptin, að minnsta kosti í bili.
Tónlist í þættinum í dag:
Bláir fuglar - Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson)
I Can See Clearly Now - Johnny Nash (lag eftir flytjanda).
Down Under - Men at work (Colin Hay og R. Strykert)
Meðan nóttin fellur á - Snæfríður Ingvarsdóttir og Memfismafían (Þorsteinn Einarsson og Bragi Valdimar Skúlason)
UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Árið 2061 nær golfstraumurinn ekki lengur til Íslands, þorskstofninn er hruninn, flóttafólk streymir til landsins, óstjórn ríkir og glæpagengi og stríðsherrar berjast um völdin - já og það er alltaf rigning. Grímuklætt fólk á mótorhjóli stelur mikilvægum kassa frá líftæknifyrirtæki, og ungur tæknimaður lendir í klóm mannræningja.Einhvern veginn þannig er hefst ný íslensk myndasaga sem kom út hjá Froski útgáfu í desember. Huldufólk nefnist bókin og á bakvið hana standa teiknarinn Fannar G. Gilbertsson og höfundurinn Gunnar Birgisson - sem starfar sem lögfræðingur í Texas í Bandaríkjunum. Við ræðum við Fannar og Gunnar um myndasögur og niðurbrot samfélagsins
Nú í janúar breyttist eignarhald á samfélagsmiðlinum Tiktok í Bandaríkjunum, en um langt skeið hafa bandarísk stjórnvöld viljað færa það úr höndum kínverskra eigenda, fyrirtækisins Bytedance, enda mikil tortryggni í garð þeirra og grunsemdir um áhrif kínverskra stjórnvalda. Um leið og nýir eigendur - sem eru nátengdir Donald Trump - tóku við varð umtalsverð breyting á virkni forritsins. Notendur héldu því meðal annars fram að algóryþminn virtist dempa dreifingu á færslum tengdum Epstein-skjölunum og mótmælum gegn útlendingalögreglunni ICE í Minneapolis. Við ætlum að fræðast um þetta, heyra hvort þetta hafi áhrif á íslenska notendur, og almennt um það hvernig Tiktok virkar í mismunandi heimshlutum. Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera, útskýrir stöðuna.
Tónlistin í þættinum er frá Coby Sey og Láru.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Sýnt hefur verið fram á að ágreiningur vegna heimilisverkanna er ein helsta ástæða hjónaskilnaða. Appinu Heima er ætlað að lækka þessa tölfræði en þar er á ferðinni verkfæri til þess að auka samvinnu innan heimilisins, virkja krakka og unglinga og byggja langvarandi rútínur til þess að halda öllum boltum á lofti innan heimilisins. Alma Dóra Ríkarðsdóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, stofnendur Heima, komu í Morgunútvarpið og sögðu okkur frá appinu.
Varaþingmaðurinn Sindri S. Kristjánsson velti því upp á Alþingi í vikunni hvernig bær verður borg. Síðasta haust ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni framkvæmd sérstakrar borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Með samþykkt borgarstefnu hefur Alþingi viðurkennt mikilvægi þess að efla Akureyri sem formlega svæðisborg. Sindri kom til okkar og benti á að til þess að stefnan verði að veruleika þurfi aðgerðir.
Verðbólga hækkar hér á landi og hæstu stýrivextir í Evrópu lækka ekki. Stjórnvöld benda á olíufélögin og bílaumboðin í leit að sökudólgum. Seðlabankinn bendir á stjórnvöld og gagnrýnir launahækkanir. Verkalýðsforystan býr sig undir kjaraviðræður. Á meðan klórar almenningur sér í hausnum og veltir fyrir sér afborgunum á húsnæðisláninu. Til að ræða þetta allt saman mætti til okkar Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri.
Af hverju er forseti Bandaríkjanna að skipta sér að því hver kemur fram á hálfleik ofurskálarinnar? Tónlistarmaðurinn Bad Bunny sópaði Grammy-verðlaunum á dögunum og verður í sviðsljósinu þegar Seattle Seahawks og New England Patriots mætast í ofurskálinn á sunnudag. Donald Trump er ekki ánægður með að Bad Bunny komi þar fram og Morgunútvarpið fékk til sín útvarpsmanninn Kristján Guðjónsson úr Lestinni á Rás 1 til að segja okkur allt um tónlistarmanninn og af hverju hann er umdeildur.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Sögð var saga af Frakkanum sem missti fallbyssuskot upp í afturendann á sér, tarantúlan sem nefnd var í höfuðið á Johnny Cash kom einnig við sögu. Fílalag bræður Snorri Helgason og Bergur Ebbi mættu og tóku mini fílun ásamt Andra Frey, lagið var Runaway Train með Soul Asylum.
Lagalisti þáttarins:
PÁLMI GUNNARSSON – Steini strætó
CRYSTAL WATERS – Gypsy Woman (La da dee la da da)
TODMOBILE – Tarantulo
JOHNNY CASH – Folsom Prison Blues
BAGGALÚTUR – Bildudals grænar baunir
THIRD EYE BLIND – Semi-charmed life
THE CHARLATANS – The Only One I Know
JET BLACK JOE – I, You, We
TALKING HEADS – Once In A Lifetime
ELÍN HALL IZLEIFUR – Hugsa alltof mikið um þig
HALL & OATES – Maneater
VALDIMAR – Karlsvagninn
SSSÓL – Síðan Hittumst Við Aftur
SOUL ASYLUM – Runaway train
BRUNO MARS – I Just Might
ROBYN – Dopamine
ABBA – Sos
ROXETTE – The Look
HJÁLMAR – Upp í sveit
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
ENSÍMI & GYLFI ÆGISSON – Draumur okkar beggja
ARCTIC MONKEYS – Opening Night
NEW ORDER – True Faith
RAGE AGAINST THE MACHINE – Bombtrack
PORTUGAL. THE MAN – Tanana
LAY LOW – By And By
EDIE BRICKELL & THE NEW BOHEMIANS – What I Am
BECK – Where It's At
HARRY STYLES – Aperture
TOTALLY ENORMOUS EXTINCT DINOSAURS – Crosswalk
SÚELLEN – Verona
JEFF WHO? – Barfly
KINGFISHR – Killeagh
HAYLEY WILLIAMS – Good Ol' Days
SOULWAX - Krack

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ofbeldisbrot sem tíu menn segjast hafa orðið fyrir í fóstri í Bakkakoti á Suðurlandi eru líklega fyrnd, að sögn lögreglustjóra. Forsætisráðherra hittir nokkra þeirra ásamt lögmönnum í hádeginu.
Staða Keirs Starmer sem forsætisráðherra Bretlands hefur aldrei verið veikari, hvernig hann hefur farið með mál Peters Mandelsons vekur ekki aðeins óánægju hjá andstæðingum, heldur líka samflokksmönnum.
Forsætisráðherra viðurkennir að mikla verðbólgu í janúar megi að hluta rekja til breytinga sem ríkisstjórnin gerði um áramót. Hins vegar sé engin ástæða til að breyta um stefnu.
Um tveggja ára gamalt barn var skilið eitt eftir á leikskóla í Breiðholti þegar honum var lokað á mánudag. Þetta er í annað sinn sem slíkt gerist í Reykjavík á einu ári.
Sveitarfélög þurfa að huga betur að hættu vegna sjávarflóða og þeir sem skipuleggja og byggja hús við fjöruborðið geta ekki vænst þess að fá tjón bætt. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur varað sveitarfélög og húseigendur við þessu.
Stór hluti innflytjenda nýtti ekki kosningarétt sinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum, Reykjanesbær ætlar að halda vinnustofur í mars til að auka kosningaþátttöku þeirra.
Keflavík og Grindavík mætast í nágrannaslag í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta. Þetta varð ljóst eftir æsispennandi undanúrslit í gærkvöld.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut var Popplandsvörður í dag með allskonar nýtt í farteskinu m.a. frá Elínu Hall, Árnýju Margréti og Jóni Jónssyni. Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar, Spíra með Ólöfu Arnalds.
BRUNALIÐIÐ - Ég Er Á Leiðinni.
Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Mitchell, Joni - California.
Kahan, Noah - The Great Divide (Clean).
Bryan, Zach - Plastic Cigarette.
Winter, Cameron - Love Takes Miles.
THE THRILLS - Big Sur.
Addison Rae - Headphones On.
Parks, Arlo - 2SIDED.
Tyla - Chanel (Explicit).
B-52's - Roam.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Smuk som et stjerneskud.
Jón Jónsson Tónlistarm. - Þó það taki ævina.
Moses Hightower - Búum til börn.
Una Torfadóttir - Í löngu máli.
SUPERTRAMP - The Logical Song.
NÝDÖNSK - Alelda.
Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég.
Elín Hall - Tachylite.
Beths - Straight Line Was A Lie.
Teddy Swims - Guilty.
NAS, DJ Premier - GiT Ready.
Little Simz - One life, Might Live (Explicit).
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Aldrei Liðið Betur.
Ólöf Arnalds - Spíra.
Ólöf Arnalds - Tár í morgunsárið.
Ólöf Arnalds - Lifandi.
Ólöf Arnalds - Úfinn sjór.
PÉTUR BEN - White Tiger.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
Baggalútur - Bildudals grænar baunir.
JAGÚAR - Disco Diva.
Mars, Bruno - I Just Might.
STEVIE WONDER - Superstition.
Bubbi Morthens - Þingmannagæla.
Williams, Robbie - All My Life.
MARK RONSON & LYKKE LI - Late Night Feelings.
Blood Orange - Vivid Light.
Isoebel, Prins Thomas - Linger.
KK - Hafðu engar áhyggjur.
Hjálmar - Upp í sveit.
Of Monsters and Men - Dream Team.
WET LEG - pokemon.
SIENNA SPIRO - Die On This Hill.
Emilíana Torrini - Perlur og svín.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Síðdegisútvarpið 5. febrúar 2026
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fundaði með lögmönnum tímenningana og þremur þeirra sem voru vistaðir í Bakkakoti í hádeginu í dag. Erla María Davíðsdóttir fréttamaður hefur fylgst með fundinum og hún kom til okkar.
Reykjavíkurborg hefur verið sein að grípa til aðgerða í leikskólamálum, að mati stjórnenda leikskóla í borginni. Ásta Kristín Svavarsdóttir er leikskólastjóri Jöklaborgar og Særún Ármannsdóttir leikskólastjóri á Hofi segja álagið óhóflegt og vara við því að sífellt fleiri starfsmenn kunni að láta af störfum haldi staðan áfram óbreytt. Þær Ásta og Særún komu til okkar.
Nú er EM í handbolta lokið og þá er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og jafnvel rýna í framtíðina. Fram hefur komið að HSÍ er ekki mjög stöndugt fjárhagslega. . Í umræðunni hefur verið skorað á fyrirtæki að styrkja sambandið beint en ekki bara að kaupa auglýsingar fyrir leikina og styðja sambandið þannig. Jón Halldórsson er formaður HSÍ hann kom til okkar.
Fjölmennt var á hitafundi í Réttarholtsskóla í gær þar sem flutningur kaffistofu Samhjálpar var til umræðu. Íbúar segjast styðja starfsemina, en vilja að hún verði staðsett annars staðar en á Grensásvegi. Framkvæmdastjóri Samhjálpar segir leit að hentugu húsnæði hafa verið ítarleg, bæði hjá borg og ríki, og varar við því að málið geti orðið að pólitísku bitbeini þegar kosningar nálgast. Finnur Björgvinsson er íbúi í hverfinu og hann var á fundinum og hann var á línunni.
UTmessan fer fram á morgun og á laugardaginn. Þar má skoða og prófa það nýjasta sem er gerast í tölvu- og tækniheiminum. Arnheiður Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri UT Messunnar. Við heyrðum í henni .
Við getum líklega öll verið sammála því að fyrir flesta hefur stafvæðingin verið til mikilla bóta það er t.a.m. orðið einfaldara að sinna bankamálum í símanum eða borga í verslununum eða í strætó með appi. En fyrir suma viðkvæma hópa getur þessi þróun haft þveröfug áhrif og jafnvel leitt til skertrar þjónustu og verri lífsgæða. Sigurjón Ólafsson rekur ráðgjafarfyrirtækið Fúnksjón, sem sérhæfir sig í stafrænum málum, og hann flytur erindi á UTmessunni sem ber heitið: Hvað höfum við gert 85 ára gamalli konu í stafvæðingunni? Hann kom til okkar í dag.
Fréttir
Fréttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður taka aftur til rannsóknar tvö kynferðisbrotamál vegna meintra brota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til Ríkissaksóknara.
Stjórnendur á Landspítalanum leggja til að hjúkrunarheimili taki strax við fjörutíu til fimmtíu manns og tvímenni jafnvel í herbergi til að bregðast við vanda spítalans.
Lögmaður manna sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti segir að þeir ættu að fá bætur þótt lög um sanngirnisbætur séu ekki lengur í gildi.
Karlmaður í Belgíu, sem framvísaði falsaðri kvittun við vændiskaup, hlaut í dag þriggja ára dóm fyrir nauðgun. Það er í fyrsta sinn sem sakfellt er fyrir nauðgun í slíku máli.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Stjórnendur Landspítalans hafa varað við því um nokkurt skeið að það stefndi í óefni á sjúkrahúsinu. Í þremur minnisblöðum sem þeir hafa sent ráðherra á síðustu vikum kemur fram að vandinn á spítalanum ógni heilsu aldraðra og tafarlausra aðgerða er krafist.
Hart er sótt að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands vegna skipunar hans á Peter Mandelson í sendiherrastöðu þrátt fyrir tengsl þess síðarnefnda við Jeffrey Epstein. Kristján Guy Burgess stjórnmálafræðingur telur að þó naprir vindar blási um Starmer verði hann enn á ráðherrastóli um sinn.
Í sumar er búist við heldur færri farþegaskipum en í fyrra og þeim hafði þá fækkað frá því í hitteðfyrra. Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri hjá Cruise Iceland telur að það taki nokkurn tíma fyrir greinina að jafna sig eftir þá fækkun sem megi helst rekja til óvissu og álagningu skatta og gjalda.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Árný Margrét - Hakk og spaghettí
Hrafn Thoroddsen - Alone again
Elín Hall - Tachylite
Valborg Ólafsdóttir - Breathe With Me
Karlotta - Koddaver
SúEllen - Verona
Mosi frændi - Flúgum hærra

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Danni var í góðum gír þetta fimmtudagskvöldið og fékk til sín Fríðu Dís, sem var að gefa út nýja lagið Sad Music Lover. Svo sagði Bjöggi úr Spacestation okkur frá því hvernig lagið Hvítt vín varð til.
Fríða Dís: 00:29:52
Bjöggi: 01:02:58
Lagalistinn
Bríet - Bang Bang
Bang Gang - Stop in the name of love
Neutral Milk Hotel - Holland, 1945
Big Star - Thirteen
Egill Sæbjörnsson - I love you so
Vök - Before
Confidence Man - Holiday
Underworld - Born slippy
Fríða Dís - Sad music lover
Manic Street Preachers - You stole the sun from my heart
Spacestation - Hvítt vín
Lights on the Highway - A little bit of everything
X-Zibit - Paparazzi
Sign - Thank god for silence
Brain Police - Mr. Dolly
Crosby, Stills and Nash - Our house
Billy Joel - Vienna
Ólafur Kram - Blúndustelpan
Sugarcubes - Blue eyed pop
Pavement - Spit on a stranger
Tom Waits - I hope that I don't fall in love with you
Kingfishr - Killeagh
Bob Seger - Night moves
Dikta - Losing every day
Buffalo Springfield - For what it's worth
The Brian Jonestown Massacre - Anemone
Kristberg - Greedy Sharks
Leonard Cohen - Ain't no cure for love