07:03
Morgunvaktin
Kosningalög, dauðinn og Verdi

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við stikluðum á stóru í sögu íslenskra kosningalaga. Sagan sú nær aftur fyrir miðja nítjándu öld og er öðrum þræði átakasaga. Jón Kristinn Einarsson sagnfræðingur hefur tekið þetta saman.

Eftir þessa yfirferð fórum við inn á Alþingi en þingið hefur til meðferðar tvö mál er varða dauðann. Annars vegar tillögu sem miðar að því að dánaraðstoð verði heimil og hins vegar frumvarp um að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls. Bryndís Haraldsdóttir, flytur bæði mál og hún kom til okkar.

Í umfjöllun um sígilda tónlist fjallaði Magnús Lyngdal um óperur Verdis. Hann samdi þær margar um ævina en Magnús beindi sjónum að þremur; Il trovatore, Rigoletto og La traviata.

Tónlist:

Mugison - Stingum af.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,