18:00
Kvöldfréttir útvarps
Ný samgönguáætlun í byrjun næsta mánaðar og tveir vondir valkostir Úkraínu

Fréttir

Fréttir

Ný forgangsröðun jarðganga verður birt í nýrri samgönguáætlun í byrjun desember. Samgönguráðherra fagnar lifandi umræðu um jarðgangakosti.

Bandaríkin þrýsta á Úkraínu að samþykkja áætlun um frið við Rússa. Zelensky ávarpaði Úkraínumenn í dag og sagði þetta eina verstu tíma í sögu landsins.

Læknar á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri lýsa auknu álagi vegna manneklu. Uppsagnarbréf hafa borist forstjóra eftir að ákveðið var að breyta samningum við sérgreinalækna sem vinna í verktöku.

Vanda þarf mjög vel til verka við ráðningar leikskólastarfsfólks til að tryggja öryggi barna, segir umboðsmaður barna. Múlaborgarmálið hafi vakið fólk til umhugsunar,

Nýkjörinn borgarstjóri New York heimsækir Bandaríkjaforseta í Hvíta húsið í kvöld. Hann vonast eftir samvinnu við forsetann um að lækka framfærslukostnað almennings.

Er aðgengilegt til 21. nóvember 2026.
Lengd: 10 mín.
,