12:42
Þetta helst
Deilan um þjónustu Neyðarlínunnar og fyrirtækið sem aðstoðar fólk eftir árekstur

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Í meira en áratug boðaði Neyðarlínan 112 einkafyrirtæki á slysstað í umferðaróhöppum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki höfðu átt sér stað slys á fólki. Fyrirtækið heitir Aðstoð og öryggi en er betur þekkt sem Árekstur.is. Það var stofnað af fyrrverandi lögreglumanni sem heitir Ómar Þorgils Pálmason.

Fyrirtækið er alltaf reglulega í fréttum, nú síðast í lok októnber þegar metfjöldi bíla þurfti aðstoð í mikilli snjókomu í Reykjavík.

Neyðarlínan boðaði starfsmenn þessa fyrirtækis á slysstað með sms-skilaboðum. Þessu fyrirkomulagi var svo breytt í kjölfar gagnrýni og umræðu um samkeppnissjónarmið árið 2019.

Rætt er við Jón Svenberg Hjartarson, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar og Ómar Þorgils Pálmason um málið.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,