18:30
Hvað ertu að lesa?
Fimmtíu ár frá kvennafrídeginum

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.

Umsjón: Embla Bachmann

Í ár eru liðin fimmtíu ár frá kvennafrídeginum sem átti sér stað þann 24. október 1975. Linda Ólafsdóttir segir okkur frá bókinni sinni Ég þori! Ég get! Ég vil! og sýningunni í Borgarbókasafninu með myndum úr bókinni. Bókaormarnir Steinunn Birna og Sandra segja okkur hvað þær eru að lesa og hverjar þeirra uppáhalds kvensöguhetjur eru.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,