Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá janúar 2016: Í þættinum skoðum við áhrif veðurs og annarra náttúruhamfara á samfélög og mannfólkið en við erum alltaf reglulega minnt á að við megum okkur lítils gegn náttúruöflunum þegar þau láta á sér kræla. Í þættinum er fjallað um þær skemmdir sem urðu austur á landi í miklum veðurofsa milli jóla- og nýárs. Við heyrum gamlar fréttaupptökur sem hljóðritaðar voru í janúar 1976 þegar mikill jarðskjálfti skók Kópasker og heyrum nýtt viðtal við Friðrik Jónsson, fyrrum oddvita Presthólahrepps, sem upplifði ósköpin. Í þættinum er jafnframt rætt við Ragnhildi Guðmundsdóttur, sálfræðing, sem rannsakað hefur sálræn áhrif náttúruhamfara.
Viðmælendur: Ragnhildur Guðmundsdóttir, sálfræðingur. Marinó Stefánsson, sviðsstjóri hjá Fjarðabyggð. Friðrik Jónsson, fyrrum oddviti í Presthólahreppi. Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur. Jóhannes Þórarinsson, íbúi í Kelduhverfi. Friðrikka Jónasdóttir, íbúi í Kelduhverfi. Guðrún Jónsdóttir, íbúi í kelduhverfi. Indriði Þröstur Gunnlaugsson, íbúi í Kelduhverfi.
Umsjónarmenn: Jón Knútur Ásmundsson Brynjólfur Þór Guðmundsson.

Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Anna Eiríksdóttir flytur morgunbæn og orð dagsins.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil vikunnar sem er að þessu sinni platan Jazzvaka, sem Jazzvakning gaf út 1981.
Þegar leið að fimm ára afmæli Jazzvakningar 1980 var ákveðið að fá hingað til lands erlendan tónlistarmann til að leika á afmælistónleikum sem teknir yrðu upp og gefnir út á hljómplötu.
Fljótlega var ákveðið að bjóða bandaríska bassaleikaranum William Robert Magnusson, eða Bob Magnusson, enda var hann ekki aðeins framúrskarandi bassaleikari, heldur einnig af íslenskum ættum.
Ákveðið var að halda þrenna tónleika, í Glæsibæ 23. september og á Hótel Loftleiðum 24. og 25. september. Bob komst reyndar ekki til landsins til að leika fyrsta kvöldið, missti af flugvélinni, og þeim tónleikum var því aflýst. Í þess stað var tónleikum bætt við í Átthagasal Hótels Sögu 26. september og á þeim tónleikum var platan tekin upp.
Hljóðritunin á þessari plötu var gerð á jazzvöku á Hótel Sögu í fyrrahaust í tilefni fimm ára afmælis Jassvakningar. Það var fyrirtækið Steríó sem það annaðist en úrvinnsla fór m.a. fram í Hljóðrita. Sigurjón Jónasson hefur hannað umslag, ljósmyndir eru eftir Kristján Magnússon. .
Í sveitinni með Bob voru Viðar Alfreðsson, sem lék á trompet og flygilhorn, Rúnar Georgsson á tenórsaxafón, Guðmundur Ingólfsson á píanó og Guðmundur Steingrímsson á trommur.
Gunnar Reynir Sveinsson, tónskáld og vibrafónleikari, útsetti íslensk þjóðlög fyrir hljómsveitina, eitt lag var eftir Guðmund Ingólfsson og Bob kom með nokkrar útsetningar með sér, en að öðru leyti var efnisskráin klassískir jazzstandardar.
Bob Magnusson fæddist 1947 og voru foreldrar hans tónlistarfólk. Móðirin hans, Lottie Marie Brown, var af hollenskum og ítölskum ættum en faðirinn, Magnus Daniel Magnusson, af íslensku bergi brotinn. Móðir Daniels var Svanhildur Reykdal Jónsdóttir, fædd í Skáneyjarkoti í Reykholtsdal í Borgarfirði og fluttist hún vestur um haf tveggja ára. Vestra giftist hún föður Daniels, Kjartani Magnússyni frá Hálfdánartungum í Skagafirði.
Daniel Magnusson, var klarinettuleikari í Sinfóníuhljómsveit San Diego, móðir hans píanókennari, og öll systkinin fengu snemma tækifæri til að æfa sig og spila saman. Bróðir hans varð djasstónlistarmaður og systir hans fiðluleikari — gift jazzbassaleikaranum, Bobby Maize, en það var einmitt á heimili hans sem Bob heyrði fyrsta sinn plötuna Kind of Blue með Miles Davis, sem markaði þáttaskil í lífi hans að hann sagði sjálfur í viðtali við Helgarpóstinn, segist ekki hafa verið samur maður upp frá því.
Bob lærði á skógarhorn í tólf ár en tók svo upp bassann og byrjaði sinn tónlistarferil sem bassaleikari í brimrokksveitum, en fór síðan að spila rhythm and blues í San Diego. Í framhaldi af því tók djassinn við, einkum eftir kynni af plötum með Jimmy Smith og Ramsey Lewis, en eins og áður er sagt varð Kind of Blue brúin yfir í jazzinn.
21 árs gamall var Bob Magnusson ráðinn í hljómsveit Buddy Rich, sem var ein virtasta og kraftmesta jazzsveit sinnar tíðar. Í áðurnefndu viðtali við Helgarpóstinn segir Bob að það hafi verið erfiður skóli að vera í hljómsveit Buddy Rich, enda sé hann einkar sjálfhverfur maður og með erfitt skap: „Hann öskraði á mig með látum og hreytti í mig svívirðingum. En hann kenndi mér sitt af hverju og ég er honum þakklátur fyrir það, þótt kennsluaðferðin hafi verið i hrjúfara lagi. Mér eru minnisstæð siðkvöld á þessu ferðalagi þegar mér fannst ég vera versti músíkant i heimi.”
Síðar starfaði Bob með mörgum af fremstu nöfnum jazzins, til að mynda Sarah Vaughan, Art Pepper, Benny Golson, Joe Farrell, Lou Donaldson, Tommy Flanagan, Kenny Burrell og fleirum, en líka með poppurum eins og Lindu Ronstadt, Natalie Cole, Neil Diamond, Bonnie Raitt, 10,000 Maniacs og Madonnu.
1979 lék hann inn á fyrstu plötu sina sem stjórnandi, þar sem hann, Joe Farrel, John Guerin, Jim Plank og Billy Mays leika lög eftir hann og fleiri. Hann hélt lengi úti eigin kvartett, The Bob Magnusson Quartet, og um tíma kvintett.
Heimsóknin til Íslands var fyrsta ferð Bob Magnusson til landsins, en Daniel Magnusson faðir hans dvaldi i eitt ár á Íslandi við athuganir á íslenskri þjóðlagatónlist. Þess má geta að þeir gerðu breiðskífu saman feðgarnir, Bob Magnusson Featuring Daniel Magnusson – Two Generations Of Music, og á b-hliðinni var íslensk svíta, From The Land Of Fire And Ice, sem byggði á þjóðlagasvítunni Icelandia sem Daniel samdi fyrir tréblásarakvartett og byggir á þjóðlögunum Hér er kominn Hoffinn, Bí, bí og blaka, Fagurt syngur fuglinn, Nú er veðrið svo gott og þjóðsöngnum Ó, guð vors lands
Á Jazzvöku hefst a-hliðin með Seven Special eftir Guðmund Ingólfsson sem hann samdi þegar hann var píanisti í Club Seven í Ósló, en þar lék hann m.a. með Dexter Gordon. Þá kemur I'm Getting Sentimental Over You eftir George Bassman og Ned Washington, svo Þrír húsgangar sem Gunnar Reynir Sveinsson fléttaði saman, þeir sömu og Garðar Hólm í Brekkukotsannáli söng fyrir Páfann í Róm og Múhamed ben Ali í Kaíró: Fagurt galaði fuglinn sá, Kindur jarma í kofanum og Austankaldinn á oss blés.
A b-hlið plötunnar er fjórða þjóðlagið, Móðir Mín í kví kví í útsetningu Gunnars Reynis, og síðan lýkur plötunni með túlkun þeirra félaga á You'd be so Nice to Come Home to eftir Cole Porter, sem samið var 1943 fyrir kvikmyndina Something to Shout About og tilnefnt til Óskarsverðlauna á sínum tíma.
Svipmynd af mannlífi einn sumardag á Sumartónleikum í Skálholti, nánar tiltekið laugardaginn 23.07.2005. Þeir sem koma fram í þættinum eru: Signý Pálsdóttir, menningarstjóri, Gunnar A. Kristinsson, tónskáld ; Elín Edda Árnadóttir, leikmynda- og búningahöfundur og matráðskona ; Sigurður Halldórsson, sellóleikari og listrænn stjórnandi ; Þorsteinn Gylfason, heimspekingur ; Berglind M. Tómasdóttir, framkvæmdastjóri ; Halla Steinunn Stefánsdóttir, fiðluleikari og fyrirlesari ; Þórdís Heiða Kristjánsdóttir og Hildur Guðný Þórhallsdóttir, leiðbeinendur í tónlistarsmiðju og Sverris Guðjónsson, söngvari.
Í þættinum eru fluttar upptökur af þremur tónverkum dagsins á tónleikum dagsins: Symphoniae sacrae nr. 2 og nr. 18. Flytjendur Bachsveitin og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran og Ágúst Ólafsson, barítón, eftir heinrich Schutz. Einnig: Arian Lascia ch'io pianga úr Rinaldo eftir G.F. Handel. Flytjendur: Bachsveitin og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
Frumflutt 13. ágúst 2005

Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalisti:
Einar Kristjánsson - Sprettur.
Engel Lund - Fífilbrekka, Gróin Grund.
Einsöngvarakvartettinn - Ó blessuð vertu sumarsól.
Tónakvartettin - Sunnudagur Selstúlkunnar (Sæterjentens Söndag).
Óðmenn - Kærleikur.
Tryggvi Trggvason og félagar - Þá Kakali gerðist konungsþjón.
Eik Tuxen og Hans Orkester - Må Jeg Ride Ranke.
Elsa Sigfúss - Nótt.
ELLA FITZGERALD - It's Only A Paper Moon.
Cesaria evora - Homem Na Meio Di' Homem.
Sigurður Ólafsson & Hlj. Bjarna Böðvarssonar - Hvar Varstu Í Nótt.
Gísli H. Brynjólfsson - Zwischen Tür und Engel.
Erling Ágústsson - Þú Ert Ungur Enn.
Sólskinskórinn - Sól Sól Skín Á Mig.
Hljómar - Regn óréttlætisins.
Mannakorn - Hundur.
SPAÐAR - Salóme.
Óðinn Valdimarsson - Aðeins vegna þín.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.
„Hverra manna ert þú?“ er algeng spurning hér á landi þegar maður hittir einhvern í fyrsta sinn. En hvað ef við spyrjum aðra manneskju þessarar spurningar og svarið leiðir út fyrir landsteinana? Í þáttaröðinni Hverra manna segja bæði innfæddir Íslendingar og innflytjendur frá ömmum og öfum sínum af erlendum uppruna; ömmur og afar sem ólu þau upp, gáfu þeim innsýn inn í fortíðina eða hjálpuðu þeim að skilja sjálfa sig.
Umsjón: Jelena Ćirić
Ritstjórn: Jóhannes Ólafsson
Myndirnar sem prýða kynningarefni eru af Salah el Din Hafez Awad og Afaf (Fifi) Abdel Lazim Lotfy.
Rithöfundurinn Maó Alheimsdóttir segir frá langömmu sinni Bronisława, sem var verndari hennar á erfiðu æskuheimili.
Viðmælandi: Maó Alheimsdóttir
Tónlist:
Nick Drake – Horn
Adrianne Lenker – Mostly Chimes
Giulio Caccini - Ave Maria í flutningi Barnakórs Varmárskóla
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir þáttarins eru Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar og Þórólfur Matthíasson hagfræðingur.
Farið var um víðan völl af innlendum og erlendum vettvangi í þætti dagsins. Rætt var um Þorlákshafnarmálið, verðbólgu og húsnæðismarkaðinn. veiðigjaldamálið, innviðauppbyggingu, skipun Loga Einarssonar og á syni Ölmu Möller yfir opinbera nefnd, ásælni Donalds Trumps í Grænland, stríðið í Úkraníu og harmleikinn á Gaza.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Útvarpsfréttir.
Ólafur Adolfsson verður næsti þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta var ákveðið á fundi í Valhöll sem er nýlokið.
Bandaríkjastjórn hefur fellt vegabréfsáritun forseta Palestínu úr gildi, skömmu fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar stendur til að Frakkar viðurkenni sjálfstæði Palestínu.
Aðalhagfræðingur Arion banka segir rök fyrir vaxtalækkun. Hagkerfið dróst saman á síðasta ársfjórðungi.
Umsagnir um fyrirhugaða móttöku- og geymslustöð Carbfix í Ölfusi bera með sér að íbúar hafa töluverðar áhyggjur af framkvæmdinni.
Drengurinn sem týndist í Ölfusborgum austur af Hveragerði í gær fannst heill á húfi á fjórða tímanum í nótt.
Elísabet önnur Englandsdrottning var á móti Brexit, að því er fram kemur í nýrri bók, sem byggð er á heimildarmönnum úr konungshöllinni.
Sveitastjórn Fjallabyggðar skoðar að skila rekstri hjúkrunarheimilis á Ólafsfirði aftur til ríkisins vegna langvarandi hallareksturs.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar núna annan leik sinn á Evrópumótinu í Katowice í Póllandi. Mótherjar dagsins eru Belgar.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við fjöllum um bjargvætti í Sumarheimskviðum í dag en þetta er síðasti þáttur sumarsins. Í næstu viku hefjast Heimskviður að nýju. Og í síðasta þættinum ætlum við að fjalla um þá sem gera sitt besta til að gagnast góðum málefnum, það er annars vegar að bjarga flækingshundum í Taílandi og hins vegar írska tungumálinu.
Hip-hop tríóið Kneekap frá Norður-Írlandi rappar bara á írsku og helsta markmiðið er að gera írskuna aðgengilegri fyrir ungt fólk. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fjallaði um Kneekap í lok mars, og hvað gerir sveitina og írska tungumálið svona sérstakt.
Svo fjallar Ólöf Ragnarsdóttir um írskan athafnamann sem ákvað að helga líf sitt því að bjarga flækingshundum í Taílandi? Og af hverju hefur starf hans vakið athygli víða um heim?
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Bára Kristín Skúladóttir byrjaði snemma í raftónlist og tók sér listamannsnafnið Plasmabell. Hún er ekki ýkja gefin fyrir tónleikahald, en hefur gefið út talsvert af tónlist með það að leiðarljósi að vera sífellt að gera eitthvað nýtt.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Fyrirmyndir eru mikilvægur þáttur í mótun manneskjunar. Menning á stóran þátt í að gefa okkur fyrirmyndir til þess að spegla okkur í, en hvað með þá sem eru jaðar settir innan hennar. Elísabet Skagfjörð er eini skráði kynsegin leikarinn á síðu FÍL. Í þættinum velti ég upp spurninguni hvernig á hán sem sér ekki sjálft sig endurspeglað í menninguni að finna sér fyrirmyndir og hvernig er tilfinningin að þurfa mögulega að vera sú fyrirmynd fyrir önnur sem eru í sömu stöðu?
Umsjón: Aron Martin Ásgerðarson.
Flóttafólki hefur fjölgað mikið í heiminum og líka á Íslandi. Ekkert bendir til annars en að því eigi eftir fjölga enn frekar á næstu árum. Hverjir eiga rétt á því að fá ásjá á Íslandi og hverjir ekki? Rætt er við fólk sem starfar með umsækjendum um alþjóðlega vernd, fræðimenn og fólk sem hefur flúið til Íslands.
Þáttaröðin Ásjá var framleidd af Rás 1.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Flóttafólki fjölgar í heiminum og líka á Íslandi. Gripið hefur verið til margvíslegra aðgerða til að sinna fólki sem best og margir lagt hönd á plóg. Í þættinum er fjallað um þjónustu sem umsækjendum um alþjóðlega vernd stendur til boða af hálfu hins opinbera og hjá Rauða krossinum. Viðmælendur: Atli Viðar Thorstensen, Inga Sveinsdóttir, Íris Halla Guðmundsdóttir, Magnús Þorkell Bernharðsson, Nína Helgadóttir, Rannveig Einarsdóttir og Zahra Mesbah.
Þáttaröðin Ásjá var framleidd af Rás 1.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-08
Leadbelly - Fort worth and Dallas blues.
Mikael Máni Ásmundsson - Innermost.
Sunna Gunnlaugsdóttir - Sound of summer.
Aldana, Melissa - I know you know.
Lester Young - Teddy Wilson Quartet - All of me.
Bley, Carla, Jeffers, Jack, Valente, Gary, Goodrick, Michael, Haden, Charlie, Freeman, Sharon, Pepper, Jim, Slagle, Steve, Cherry, Don, Mantler, Michael, Motian, Paul, Redman, Dewey - Too late.
Armstrong, Louis and his Orchestra - If we never meet again.
Samúel Jón Samúelsson Big Band - Afróbít (with Tony Allen).
Thor Wolf - Jam funk.
Bivens, Cliff, James, Elmore, Campbell, Dave, Wilkins, Joe, Williamson, Sonny Boy, O'Dell, Frock - Eyesight to the blind.
James, Elmore - Goodbye baby.

Harpa Jósefsdóttir Amin segir frá ferðalagi um Nýja Sjáland.

Veðurfregnir kl. 18:50.

Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Söngkonan og píanóleikarinn Blossom Dearie flytur lögin Tea For Two, Manhattan, Surrey With Fringe On The Top, Little Jazz Bird, Someone To Watch Over Me og The Party's Over. Roy Hargrove og hljómsveit flytja lögin Ballad For The Children, The Mountains, Una Mas, Afrodisia, Dream Traveller og Mambo For Roy. Kenny Drew og Niels-Henning Örsted Pedersen leika lögin All Blues, You Don't Know What Love Is, There's No Greater Love og Trubbel.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Í Sagnaslóð verður haldið áfram umfjöllun um síldarævintýri Íslendinga. Fjallað er m.a. um Hvalfjarðarsíldina, Rauða torgið og
árið 1968 þegar síldin hvarf. Þá er sagt frá fljótandi síldarplani, flutningaskipinu Elísabet Hentzer sem feðgarnir Hreiðar Valtýsson og Valtýr Þorsteinsson tóku á leigu til að fylgja síldarflotanum norður í höf og salta síld um borð. Að því tilefni fylgir hluti af viðtali við Hreiðar Valtýsson útgerðarmann og Svövu Aradóttur síldarstúlku úr þættinum Lífið við höfnina frá árinu 1987, en þau voru um borð í Elísabet Hentzer.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Þuríður Sigurðardóttir, Pálmi Gunnarsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 21. september 2006.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir þáttarins eru Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar og Þórólfur Matthíasson hagfræðingur.
Farið var um víðan völl af innlendum og erlendum vettvangi í þætti dagsins. Rætt var um Þorlákshafnarmálið, verðbólgu og húsnæðismarkaðinn. veiðigjaldamálið, innviðauppbyggingu, skipun Loga Einarssonar og á syni Ölmu Möller yfir opinbera nefnd, ásælni Donalds Trumps í Grænland, stríðið í Úkraníu og harmleikinn á Gaza.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Útvarpsfréttir.

Tónlist af ýmsu tagi.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Geo Silica hefur vakið mikla athygli fyrir nýja aðferð við að vinna kísil úr heitu vatni og nýta í fæðubótarefni. Framkvæmdastjórinn og annar aðaleigandi, Fida Abu Libdeh, kemur í fimmu í Fram og til baka en hún hefur mjög forvitnilega sögu að segja. Fida talar um fimm staði sem hafa haft áhrif á líf hennar og þar koma Gunnuhver og Jerúsalem við sögu.

Útvarpsfréttir.
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Sandra Barilli sér um Morgunkaffið þennan laugardag og fær Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur leikkonu í heimsókn.
Lög spiluð í þættinum:
Friðrik Dór Jónsson - Hugmyndir.
Chappell Roan - The Subway.
Smash Mouth - All Star.
Páll Óskar og Unun - Ástin dugir.
Ray Lamontagne - Step Into Your Power.
Jón Jónsson - Tímavél.
Mugison og Blúskompaníið - Ég trúi á þig.
Bubbi Morthens - Aldrei Fór Ég Suður.
Bríet - Wreck Me.
Úlfur Úlfur - Sumarið.
Snorri Helgason - Gleymdu mér.
Hallbjörg Bjarnadóttir - Björt mey og hrein.
Nina Simone - Here Comes The Sun.
Aron Can, Alaska1867 og Þormóður Eiríksson - Ljósin kvikna.
Kaleo - Bloodline.
JóiPé og Króli, Ussel - 7 Símtöl.
Útvarpsfréttir.
Ólafur Adolfsson verður næsti þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta var ákveðið á fundi í Valhöll sem er nýlokið.
Bandaríkjastjórn hefur fellt vegabréfsáritun forseta Palestínu úr gildi, skömmu fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar stendur til að Frakkar viðurkenni sjálfstæði Palestínu.
Aðalhagfræðingur Arion banka segir rök fyrir vaxtalækkun. Hagkerfið dróst saman á síðasta ársfjórðungi.
Umsagnir um fyrirhugaða móttöku- og geymslustöð Carbfix í Ölfusi bera með sér að íbúar hafa töluverðar áhyggjur af framkvæmdinni.
Drengurinn sem týndist í Ölfusborgum austur af Hveragerði í gær fannst heill á húfi á fjórða tímanum í nótt.
Elísabet önnur Englandsdrottning var á móti Brexit, að því er fram kemur í nýrri bók, sem byggð er á heimildarmönnum úr konungshöllinni.
Sveitastjórn Fjallabyggðar skoðar að skila rekstri hjúkrunarheimilis á Ólafsfirði aftur til ríkisins vegna langvarandi hallareksturs.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar núna annan leik sinn á Evrópumótinu í Katowice í Póllandi. Mótherjar dagsins eru Belgar.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Erfiðasta vika ársins er yfirstaðin, þ.e. skólarnir eru byrjaðir og við neyðumst til að koma okkur í rútínu. Frosti Örn Gnarr frá íslenska skipulagsappinu Heima mætti í stúdíóið og sagði frá því hvernig appið hjálpar til við skipulag heimilisins og platar í raun börn til að vilja gera heimilisverk.
Frásagnartónleikar um Amy Winehouse eru á dagskrá Bæjarbíós á miðvikudaginn. Það er leik og söngkonan Gunella Hólmarsdóttir sem stendur að baki tónleikunum þar sem einnig er farið yfir stormasamt lífshlaup Amy Winehouse.
Jazzhátíð í Reykjavík er í fullum gangi en þau Rebekka Blöndal og Andrés Þór Gunnlaugsson kíktu í stúdíóið. Þau sögðu okkur frá hátíðinni og fluttu lag eftir Billie Holiday.
Akureyrarvaka er um helgina og var Þorvaldur Bjarni á línunni. Hann var í þann mund að stíga á svið í jakkafötunum til að kynna menningarárið sem framundan er. Hann mun svo rífa sig úr jakkafötunum og klæða sig í rokkgallann til að stíga á svið með Todmobile í kvöld í Gilinu.
Daði Freyr var gestastjórnandi síðasta klukkutíma þáttarins. Þau Steiney ræddu meðal annars Fruity loops, Eurovision, körfubolta og rútur.
Tónlist
ELVAR - Miklu Betri Einn
ROLE MODEL - Sally, When The Wine Runs Out
PRINS PÓLÓ - Hakk Og Spaghettí
JONAS BROTHERS - Sucker
Á MÓTI SÓL - Okkur Liður Samt Vel
MARK RONSON, AMY WINEHOUSE - Valerie
AMY WINEHOUSE - You Know I'm No Good
JOHNNY NASH - I Can See Clearly Now
ANNA RICHTER - Allt Varð Svo Hljótt
THE LOVIN' SPOONFUL - Summer In The City
ALICIA KEYS - Try Sleeping With A Broken Heart
THE HOUSEMARTINS - Happy Hour
LAUFEY - Silver Lining
OF MONSTERS AND MEN - Wild Roses
GILDRAN - Staðfastur Stúdent
UNA TORFADÓTTIR - Fyrrverandi
ZACH BRYAN - Streets Of London
STUÐLABANDIÐ - Við Eldana
REBEKKA BLÖNDAL - Lítið Ljóð
THE BLACK KEYS - No Rain, No Flowers
DOECHII - Anxiety
PAUL MCCARTNEY - Hope Of Deliverance
TODMOBILE - Brúðkaupslagið
TODMOBILE - Ég Heyri Raddir
DAÐI FREYR PÉTURSSON - Me And You
DAÐI FREYR PÉTURSSON - Hvað Með Það?
FRIÐRIK DÓR JÓNSSON, MOSES HIGHTOWER - Bekkjarmót og Jarðarfarir
HUNTRX - Golden
DAÐI FREYR PÉTURSSON - Whole Again
MONTAIGNE - Don't Break Me
BLUSHER - Racer
ELÍN HALL - Wolf Boy
EVERYTHING EVERYTHING - Teletype
DAÐI FREYR PÉTURSSON - I Don't Wanna Talk
Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!
Ragga fékk skemmtilegan viðmælanda í GMT í dag. Siggi formaður bangsafélags Íslands átti lagaval dagsins.
Lagalisti:
Grafík - Þúsund Sinnum Segðu Já
Of Monsters and Men - Ordinary Creature
Michael Jackson - The Way You Make Me Feel
GDRN - Þú Sagðir
Júlí Heiðar & Dísa - Ástardúett
Will Smith - Gettin' Jiggy Wit
Aretha Franklin - Respect
Prince - 1999
Chappell Roan - Good Luck, Babe!
MGMT - Time To Pretend
Janelle Monae - Make Me Feel
The Who - Won't Get Fooled Again
Valdis & JóiPé - Þagnir Hljóma Vel
Chappell Roan - The Subway
Torfi - Öðruvísi
Galantis - Peanut Butter Jelly
Kenny Loggins - Footloose
Troye Sivan - Rush
Lady Gaga & Ariana Grande - Rain On Me
Royel Otis - Moody
One Republic - I Ain't Worried
Proclaimers - I'm Gonna Be (500 Miles)
Linda Ronstadt - You're No Good
David Bowie - Sound and Vision
Whigfield - Saturday Night
Lola Young - Messy
Björk Guðmundsdóttir - Litli Tónlistarmaðurinn
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
Samantekt lista: Matthías Már Magnússon.
Hljómsveitin Of Monsters and Men tyllir sér á toppinn með lagið Ordinary Creatures.

Fréttastofa RÚV.
Stuð, stemning og suðræn sveifla á Rás 2, öll laugardagskvöld í sumar.
Doddi sér til þess að hitinn fari aldrei undir 20 gráður með sumarlegum tónum.
Það var hiti, sviti og geggjuð stemning í Garðveislu kvöldsins, loka veislu ársins.
Við fengum skemmtilega báta sögu frá party Zone öfunum um sumar slummu þáttarins og það var mikið dansað.
Síðasta Garðveislan
Sextett Ólafs Gauks - Ágústnótt.
Stan Getz - Joao Gilberto - Doralice.
Gilberto, Astrud - Beach Samba (Bossa na praia).
Air - Ce matin la.
Tei, Towa - Technova (radio edit).
SADE - Cherish The Day.
Scruscru - Juicy Brass.
Tavares - More than a woman.
Monite, Steve - Only You.
MFSB, Three Degrees, The - TSOP (The sound of Philadelphia).
Edwards, Steve, Axwell - Watch the sunrise (radio edit).
Disciples hljómsveit - Starlight.
DEEE LITE - What Is Love (Holographic Goatee Mix).
Kryder, Angello, Steve - Romani (feat. Steve Angello).
Jungle Jack, Gameroloco - Que Sera.
Morales, David, Face, The - Needin' U (radio edit).
Cruz, Dennis - Bonito.
Hotmood - Ya Te Olvide.
Basement Jaxx - Mermaid of Salinas.
Camargo, Martina, Basement Jaxx - Bambina [Dream Edit].
Toman - Verano en NY.
A Forrest mighty black - Everything
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Það var heldur betur mjúk og kósí stemmning á Næturvakt kvöldsins. Ungir sem aldnir hringdu inn og létu gammin geisa.
Tónlist þáttarins:
Coldplay - Sparks.
MANFRED MANN - Blinded by the light.
GETDOWN SERVICES - Eat Quiche, Sleep, Repeat.
PEARL JAM - BLACK.
BLUR - Tender.
PAUL McCARTNEY & WINGS - Silly Love Songs.
Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Fram í heiðanna ró.
Lárus Óskar Sigmundsson, Mikkelsen, Ingmar Berg - Hart í partý.
GG blús - Make It Right.
Lýðskrum - Dagskrá.
METALLICA - Fade to Black.
MOTT THE HOOPLE - All The Young Dudes.
Warren, Alex - Ordinary.
Herman's Hermits - Can't you hear my heartbeat.
AC/DC - Highway to hell.
DOOBIE BROTHERS - Listen To The Music.
Daft Punk - Face to face.
Warren, Alex - Ordinary.
Ganz, Jeff, Winter, Johnny, Compton, Tom - White line blues.
STEINDI JR & LADDI - Sigta Salta.
Shinedown - Sound of madness.
MUSE - Feeling Good.
Geirmundur Valtýsson - Heiðarnar huga minn seiða.
B.G. og Ingibjörg - Þín innsta þrá.
Góss - Fram í heiðanna ró.
THE BEES - I Love You (MP3).
GENESIS - Keep It Dark.
Helgi Björnsson - Í faðmi fjallanna.
MUNGO JERRY - In the summertime.
ÓLAFUR ÞÓRARINSSON - Undir Bláhimni.