12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 4.júní 2025

Útvarpsfréttir.

Þrjú eru ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Gufunesi í mars. Karlmaður á fertugsaldri og fjögur ungmenni eru ákærð fyrir manndráp, fjárkúgun og frelsissviptingu.

Engin neyðaraðstoð verður veitt á Gaza í dag. Ísraelsher hefur ítrekað gert árásir á fólk í leit að aðstoð.

Tilkynningar um alvarlegt eða endurtekið heimilisofbeldi voru tvöfalt fleiri á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra. Börn eru oftar skráð í heimilisofbeldismálum, bæði sem þolendur og gerendur.

Áfram rignir norðanlands fram að helgi og skriðuviðvörun er enn í gildi á Norður- og Austurlandi. Tilkynnt var um tvær minni háttar skriður síðasta sólarhringinn.

Kostnaður krabbameinssjúklinga á landsbyggðinni vegna dvalar á sjúkrahóteli á höfuðborgarsvæðinu getur numið hundruðum þúsunda króna. Krabbameinsfélagið vill þak á þennan kostnað.

Mælt er með því að fólk eigi reiðufé til þriggja daga. Þetta segir varaseðlabankastjóri sem kynnti í dag skýrslu um hvernig mætti draga úr áhrifum rafmagns- og netleysis á greiðsluflæði.

Ríkisstjórnin vonast til að koma ákveðnum málum í gegn áður er þingi er frestað. Forsætisráðherra segir að það skýrist fljótlega hvað náist og hvað ekki.

Ísland gæti mætt Norður-Írlandi, Finnlandi, Írlandi eða Tékklandi í umspili til að halda sæti í A-deild Þjóðadeildar kvenna í knattspyrnu. Dregið verður 6. júní.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,