
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Arnór Bjarki Blomsterberg flytur morgunbæn og orð dagsins.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Heimsglugginn var á dagskrá þáttarins eftir nokkurt hlé. Bogi Ágústsson fjallaði um erlend málefni. Fjölmiðlafrelsi, njósnir Bandaríkjastjórnar á Grænlandi og átök Indlands og Pakistan voru meðal umfjöllunarefna.
Í mars fór Sigríður Garðarsdóttir í Miðhúsum í Skagafirði með fyrripartana í Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga í tengslum við Sæluviku. Margir botnar bárust og höfundar þeirra bestu voru verðlaunaðir við setningu Sæluvikunnar. Sigríður fór með sigurbotnana í dag.
Jónína Brynjólfsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og forseti sveitarstjórnar Múlaþings, kallaði í þingræðu í vikunni eftir byggðastefnu: Við þurfum byggðastefnu sem beinir fólki til landsbyggðanna, ekki frá þeim, sagði hún. Jónína ræddi við okkur.
Tónlist:
Sergio Tiempo - Cello sonata in G minor, op. 65 : Largo.
Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Fljótið.
Pálmi Gunnarsson - Vegurinn heim.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi. Nú síðast hefur hún sett á stofn fargufu á Akureyri sem hún kalla Sánuvagn Mæju. María sagði okkur frá þessu öllu í þættinum í dag.
Garðeigendur eru byrjaðir að huga að garðinum og víða er fólk að hreinsa til eftir veturinn. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom til okkar í dag og fór yfir vorverkin og sagði okkur líka frá 140 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands, en hún er einmitt formaður félagsins.
Fyrir aldarfjórðungi, í júnímánuði árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðfskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sveitarfélagið Rangárþing ytra stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði og hvetja fólk sem upplifði skjálftana til að deila reynslu sinni, en sveitarfélagið vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar. Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningafulltrúi Rangárþings ytra sagði okkur betur frá þessu verkefni, en hægt er að senda inn sögur á heimasíðu sveitarfélagsins: www.ry.is
Tónlist í þættinum í dag:
Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir)
Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríkisson)
Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson)
Tíu dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlasons)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Dómsmálaráðherra tekur fregnir af gagnastuldi frá sérstökum saksóknara alvarlega. Þetta var rætt á Alþingi í morgun. Meðal gagna sem stolið var eru upptökur af símtölum vegna rannsókna embættisins. Þar á meðal upptökur úr síma Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar, bankamanns, sem vill að dómsmálaráðherra rannsaki störf embættisins.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögur um tolla á bandarískar vörur að andvirði um níutíu og fimm milljarða evra, ef ekki tekst að semja við stjórnvöld í Washington fyrir mitt sumar. Bandaríkjaforseti kynnir í dag nýjan viðskiptasamning við Breta.
Áttatíu ár eru frá sigri bandamanna á nasistum í seinni heimstyrjöld. Þess er minnst víða í Evrópu í dag. Úkraínuforseti segir nöturlegt að Rússar, sem fremja voðaverk í Úkraínu, minnist grimmdarverka nasista. Með hernaði sínum endurtaki Rússar söguna.
Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi virðist ekki hafa haft tilætluð áhrif miðað við nýjustu könnun Maskínu. Stuðningur við frumvarp um hækkun veiðigjalda hefur aukist.
Loftslagsmál skipta landsmenn minna máli en áður, samkvæmt nýrri könnun um sjálfbæra þróun.
Nýstofnuð umhverfisverndarsamtök á Vesturlandi segja að erlendir fjárfestar nýti sér veika stjórnsýslu hér á landi. Samtökin vilja skapa umræðu um áhrif vindorkuvera.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér sigur í undanriðli Evrópumótsins í gær. Liðið á þó einn leik eftir í riðlinum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Sýning Listasafns Íslands á fölsuðum verkum er síðasta verk Ólafs Inga Jónssonar forvarðar fyrir safnið. Með henni vill hann vekja fólk til umhugsunar um hvernig verk í stóra málverkafölsunarmálinu voru fölsuð. Verkin voru á sínum tíma rakin til Gallerís Borgar.
Úlfar Þormóðsson, stofnandi Gallerís Borgar, gefur ekki mikið fyrir þetta framtak Listasafns Íslands. Hann er að skrifa bók um sína hlið málsins og rangfærslur sem hann tellur Ólaf Inga hafa farið með í Þetta helst árið 2023.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Samfélagið heilsar frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði. Í dag verjum við þættinum með Peter Weiss, forstöðumanni setursins til tuttugu ára, ræðum starfsemina, námið og rannsóknirnar, spjöllum við fólkið sem starfar í setrinu og hugleiðum framtíð háskólasetursins í ljósi þess að Weiss hefur tilkynnt að hann ætli að hætta sem forstöðumaður í sumar.
Og við heyrum líka pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins um raftannbursta og ýmislegt fleira.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Harðstjórar eru persónur sem oft koma fyrir í óperum, persónur sem stundum eru byggðar á raunverulegum þjóðhöfðingjum úr mannkynssögunni. Oftast eru það bassa- eða barítónsöngvarar sem fara með hlutverk harðstjóra, þar sem djúpar raddir þykja hæfa þeim best. Í þættinum "Á tónsviðinu" verða fluttar aríur og dúettar harðstjóra sem koma fyrir í óperum eftir ýmsa höfunda. Meðal persónanna sem fjallað verður um eru Macbeth í samnefndri óperu eftir Giuseppe Verdi, Scarpia í óperunni "Toscu" eftir Giacomo Puccini og Boris Godunov í samnefndri óperu eftir Modest Mussorgskí. Í tónlistinni er lýst ýmsum hliðum á harðstjórunum: fyrstu skrefum þeirra í átt til harðstjórnar, sjálfsöryggi þeirra á hátindi valdsins, einmanaleikanum sem þeir geta ekki varist, og samviskubitinu sem liggur í leyni í sálarfylgsnum þeirra. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
Eyðibýlið er viðtals og tónlistarþáttur þar sem viðmælandi er settur í þá stöðu að verða að dvelja í eina viku í einangrun á eyðibýli. Þar hefur hann allt til alls nema fjölmiðla og fjarskiptatæki. Til að stytta honum stundir fær hann að velja nokkur lög til að hlusta á, eina bók til að lesa og svo eitt þarfaþing sem hann má hafa með sér. Í þættinum gerir viðmælandinn grein fyrir vali sínu og svo því helsta sem hann myndi taka sér fyrir hendur í þessar einnar viku einveru.
Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og borgarfulltrúi, er viðmælandi Margrétar Sigurðardóttur.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Með áherslu á ferlið, fremur en útkomuna, festu hjónin Steina og Woody Vasulka sig í sessi meðal áhrifamestu vídeólistamanna 20. aldarinnar. Á laugardaginn verður haldið málþing í Norræna húsinu þar sem varpað verður ljósi á varanleg áhrif þeirra brautryðjandi starfs á samtímalistir og tækni. Í ár er 125 ára ártíð og 75 ára dánartíð hins merka þýska tónskálds Kurt Weill. Brynhildur Björnsdóttir blæs til tónleika honum til heiðurs í kvöld og við heyrum frá henni. Við heyrum líka af tónleikum til heiðurs ljóðskáldinu Edith Södergran sem tríó Önnu Kruse stendur fyrir í Norræna húsinu.
Katla Ársælsdóttir fjallar um danssýningu Katrínar Gunnarsdóttur, Soft Shell, sem sýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Við ræðum við stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, Þórarinn Hjartarson.
Hlaðvörp skipta æ meira máli í þjóðfélagsumræðunni og við ætlum að ræða við stjórnendur hlaðvarpa í Lestinni næstu vikurnar.
Fréttir
Fréttir
Bandaríkjamaðurinn Robert Prevost var kjörinn páfi síðdegis. Hann hefur tekið sér nafnið Leó fjórtándi. Hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að sitja á páfastóli.
Héraðssaksóknari segir að ábyrgð á stuldi gagna frá embætti sérstaks saksóknara og lögreglu liggi fyrst og fremst hjá þeim sem tóku þau. Ríkislögmaður taki afstöðu til skaðabótakrafna verði þær settar fram.
Héraðsdómur hefur sakfellt þrjá karlmenn fyrir frelsissviptingu sem stóð yfir í á þriðju klukkustund, við Vatnagarða í Reykjavík, stórfellda líkamsárás og kynferðisbrot henni tengdri. Tveir árásarmannanna voru vinir þess sem varð fyrir árásinni.
Um tuttugu fjölskyldur á Nýfundnalandi hafa misst heimili sín í gróðureldi sem kviknaði í gær. Íslenskur slökkviliðsmaður segir að vonast sé til þess að ná tökum á eldinum innan næsta sólarhrings.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Aðeins eitt mál komst að í Speglinum að þessu sinni. Hleranir eftirhrunsáranna og gagnastuldur frá sérstökum saksóknara. Rætt er við Sigurð G. Guðjónsson lögmann, sem var verjandi Sigurjóns Árnasonar fyrrverandi bankastjóra og þingmennina Víði Reynisson og Ingibjörgu Isakesen.
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Baba Yaga (Rússland)
18 barna faðir frá álfheimum (Ísland)
Kötturinn sem át allt (Ísland)
Leikraddir:
Adam Ernir Níelsson
Gréta Rún Árnadóttir
Jóhannes Ólafsson
Sigurður Ingi Einarsson
Sigyn Blöndal
Ragnar Eyþórsson
Regína Rögnvaldsdóttir
Þórdís Björt Andradóttir
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Veðurfregnir kl. 18:50.

Dánarfregnir.

Sinfóníuhljómsveit ítalska útvarpsins á tónleikum í Arturo Toscanini salnum í Turin
Hljóðritun frá síðasta sumri.
Andrés Orozco-Estrada stjórnar tónlist eftir Stravinksy og Ginastera
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Samfélagið heilsar frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði. Í dag verjum við þættinum með Peter Weiss, forstöðumanni setursins til tuttugu ára, ræðum starfsemina, námið og rannsóknirnar, spjöllum við fólkið sem starfar í setrinu og hugleiðum framtíð háskólasetursins í ljósi þess að Weiss hefur tilkynnt að hann ætli að hætta sem forstöðumaður í sumar.
Og við heyrum líka pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins um raftannbursta og ýmislegt fleira.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi. Nú síðast hefur hún sett á stofn fargufu á Akureyri sem hún kalla Sánuvagn Mæju. María sagði okkur frá þessu öllu í þættinum í dag.
Garðeigendur eru byrjaðir að huga að garðinum og víða er fólk að hreinsa til eftir veturinn. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom til okkar í dag og fór yfir vorverkin og sagði okkur líka frá 140 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands, en hún er einmitt formaður félagsins.
Fyrir aldarfjórðungi, í júnímánuði árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðfskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sveitarfélagið Rangárþing ytra stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði og hvetja fólk sem upplifði skjálftana til að deila reynslu sinni, en sveitarfélagið vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar. Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningafulltrúi Rangárþings ytra sagði okkur betur frá þessu verkefni, en hægt er að senda inn sögur á heimasíðu sveitarfélagsins: www.ry.is
Tónlist í þættinum í dag:
Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir)
Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríkisson)
Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson)
Tíu dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlasons)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Við ræðum við stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, Þórarinn Hjartarson.
Hlaðvörp skipta æ meira máli í þjóðfélagsumræðunni og við ætlum að ræða við stjórnendur hlaðvarpa í Lestinni næstu vikurnar.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.
Kynjaþing er haldið í sjöunda sinn í ár. Auður Önnu Magnúsdóttir Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Tatjana Latinovic formaður þess líta við hjá okkur.
Sveitin milli sanda, Nylon-slagari og Papirsklip með Kim Larsen eiga kannski ekki margt sameiginlegt en Bergur Ebbi Benediktsson og Snorri Helgason hafa þó kafað ofan í öll þessi lög og fleiri perlur í Fílalag seríu þeirra sem klárast í dag. Við gerum seríuna upp með þeim.
Í gær ræddum við við tvo þingmenn efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um álit sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu efnahagsmála hér á landi og þar var sjónum meðal annars beint að mögulegum áhrifum gervigreindar á íslenskan vinnumarkað. Við ræðum þau mál betur við Arnald Sölva Kristjánsson, lektor í hagfræði við Háskóla Íslands, og sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði.
Rakið var í Kastljósi í gær hvernig á fjórða tug upptaka og hundruð uppskrifta úr símtalshlerunum er að finna í gögnum úr fórum fyrirtækisins PPP. Upptökurnar eru afrakstur hlerana í tengslum við rannsóknir sérstaks saksóknara á svokölluðum „hrunmálum“. Við ræðum málið við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Jóhann Már Helgason, sparkspekingur og sérfræðingur í fjármálum knattspyrnufélaga, ræðir við okkur um ótrúlegan árangur og sögu norska liðsins Bodø/Glimt sem mætir Tottenham í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er í hópi sex utanríkisráðherra sem kalla eftir að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum um auknar hernaðaraðgerðir á Gaza. Magnús Magnússon hjá Samtökunum Ísland Palestína kemur til okkar í lok þáttar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Tónlist frá útsendingarlogg 2025-05-08
KK - Á æðruleysinu.
PET SHOP BOYS - Where The Streets Have No Name (Can't Take My Eyes Off You).
Dacus, Lucy, Hozier - Bullseye.
DIKTA - From Now On.
CMAT - Running/Planning.
HARRY STYLES - Sign Of The Times.
BELLE STARS - Sign Of The Times (80).
Jet Black Joe - Wasn't for you.
Gugusar - Reykjavíkurkvöld.
Stockwell, Bebe - Minor Inconveniences.
EMILÍANA TORRINI - Heartstopper.
Ngonda, Jalen - Illusions.
MITSKI - Stay Soft.
GÓSS - Eitt Lag Enn.
Blxst, Elmiene - Light Work (Remix).
ENSÍMI - Atari.
Ou est le swimming pool - Dance the way I feel.
Beck - Cellphones Dead.
JÓHANN HELGASON - Take Your Time.
THE BEATLES - Across The Universe.
Sheeran, Ed - Azizam.
ERASURE - Always.
Króli - Þekkir einhver hana Guð?.
Iglesias, Enrique - Hero.
Self Esteem - If Not Now, It's Soon.
Waits, Tom - Underground.
THE CARS - Drive.
SNJÓLAUG VERA - Svefnljóð (beint í Hjartagosum 11.04?25).
Boone, Benson - Sorry I'm Here For Someone Else.
DR. HOOK - A Little Bit More.
Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík.
Pulp - Spike Island.
HANNES FT. WATERBABY - Stockholmsvy.
Muse - Stockholm syndrome.
THE FLAMING LIPS - Race For The Price.
Karitas - All the things you said.
Turnstile - NEVER ENOUGH.
DIANA ROSS & THE SUPREMES - I Hear A Symphony.
Snorri Helgason - Ein alveg.
Silja Rós Ragnarsdóttir - ...real love - Kynning plata vikunnar 2025 19. vika.
Silja Rós Ragnarsdóttir - ...real love.
Í SVÖRTUM FÖTUM - Meðan Ég Sef.
Diplo - Close To Me ft ELLIE GOULDING.
Daði Freyr Pétursson - I don't wanna talk.
ÞÓRUNN & BERNDSEN - For Your Love.
STUÐMENN - Á Skotbökkum.
Nýdönsk - Fyrsta skiptið.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Dómsmálaráðherra tekur fregnir af gagnastuldi frá sérstökum saksóknara alvarlega. Þetta var rætt á Alþingi í morgun. Meðal gagna sem stolið var eru upptökur af símtölum vegna rannsókna embættisins. Þar á meðal upptökur úr síma Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar, bankamanns, sem vill að dómsmálaráðherra rannsaki störf embættisins.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögur um tolla á bandarískar vörur að andvirði um níutíu og fimm milljarða evra, ef ekki tekst að semja við stjórnvöld í Washington fyrir mitt sumar. Bandaríkjaforseti kynnir í dag nýjan viðskiptasamning við Breta.
Áttatíu ár eru frá sigri bandamanna á nasistum í seinni heimstyrjöld. Þess er minnst víða í Evrópu í dag. Úkraínuforseti segir nöturlegt að Rússar, sem fremja voðaverk í Úkraínu, minnist grimmdarverka nasista. Með hernaði sínum endurtaki Rússar söguna.
Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi virðist ekki hafa haft tilætluð áhrif miðað við nýjustu könnun Maskínu. Stuðningur við frumvarp um hækkun veiðigjalda hefur aukist.
Loftslagsmál skipta landsmenn minna máli en áður, samkvæmt nýrri könnun um sjálfbæra þróun.
Nýstofnuð umhverfisverndarsamtök á Vesturlandi segja að erlendir fjárfestar nýti sér veika stjórnsýslu hér á landi. Samtökin vilja skapa umræðu um áhrif vindorkuvera.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér sigur í undanriðli Evrópumótsins í gær. Liðið á þó einn leik eftir í riðlinum.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Árni Matt og Júlía Aradóttir fjölluðu um plötu vikunnar, ...letters of my past með Silju Rós. Jóhann Helgason sendi inn póstkort með nýjasta lagi sínu Stay. Elsa og Bjartey frá Vestmannaeyjum voru í starfskynningu og stóðu sig með prýði.
Tónlist frá útsendingarlogg 2025-05-08
NÝDÖNSK - Frelsið.
Greiningardeildin, Bogomil Font - Þú trumpar ekki ástina.
Eilish, Billie - Birds of a Feather.
DEPECHE MODE - Just can't get enough.
Árnason og Co., Unnsteinn Manuel Stefánsson - Sprettur.
Júníus Meyvant - Raining Over Fire.
Chappell Roan - The Giver.
BOTNLEÐJA - Þið eruð frábær.
Del Rey, Lana - Blue jeans.
QUEEN - Don't Stop Me Now.
Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u... - Kynning Plata vikunnar 2025 19. vika.
Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u....
ENSÍMI - Atari.
BILLY JOEL - The Longest Time.
Holy Hrafn, Vigdís Vala Valgeirsdóttir - Tjarnarbófarnir.
Taylor Swift - Blank Space.
SÓLSTRANDARGÆJARNIR - Rangur maður.
HARRY STYLES - Watermelon Sugar.
Laddi, Hljómsveit mannanna - 19 gráður.
Björk Guðmundsdóttir - Big Time Sensuality REMIX.
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Dís.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi.
HILDUR - I'll Walk With You.
Cake - Short skirt/Long jacket [Radio edit].
Wuh Oh, Ellis-Bextor, Sophie - Hypnotized (bonus track wav).
Bubbi Morthens - Strákarnir á Borginni.
ÁSGEIR TRAUSTI - Heimförin.
YEAH YEAH YEAHS - Maps.
Silja Rós Ragnarsdóttir - Lemons....
Silja Rós Ragnarsdóttir - Share U.
Silja Rós Ragnarsdóttir, Bergrós Halla Gunnarsdóttir - Love & Affirmation.
Silja Rós Ragnarsdóttir - Honey....
Weather Girls, The - It's raining men.
Balu Brigada - The Question.
GUS GUS - Within You.
MANNAKORN - Einhverstaðar Einhverntíman Aftur.
Ásdís - Touch Me.
PJ HARVEY - Good Fortune.
ELÍN HALL - Rauðir draumar.
Joel, Billy - Vienna.
Jóhann Helgason Tónlistarmaður, Gammar - Stay.
Doechii - Anxiety.
Laufey - Silver Lining.
Kelis - Milkshake.
ABBA - Voulez-Vous.
Röyksopp - The girl and the robot.
MARK RONSON feat. ALEX GREENWALD - Just.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Síðdegisútvarpið 8. maí
Hildur Hinriksdóttir er hönnuður og handverkskona býr í Róm og það rétt við Vatikanið. Þau merku tíðindi bárust í dag að nýr Páfi hefði verið kosinn og hvítur reykur stígi upp af skorsteini Sixtínsku kapellunnar í Páfagarði. Við heyrðum í Hildi sem lýsti stemningunni í Róm af mikilli innlifun.
Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri og dósent við sviðslistadeild LHÍ kemur í Síðdegisútvarpið í dag vegna færslu sem hún skrifaði á FB um skaðleg áhrif transfóbíu og vakið hefur mikla athygli. Tilefni færslunnar er frétt af tveimur cis konum sem var um helgina hent út af klósetti á hóteli í Boston eftir að önnur neitaði að sýna kynfæri sín til að mega nota kvennaklósett.
Tveir af hverjum þremur telja auglýsingar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um „norsku leiðina“ svokölluðu slæmar. Enn meiri meirihluti er hlynntur frumvarpi atvinnuvegaráðherra um hækkun á veiðigjöldum.Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu um viðhorf fólks til auglýsinganna og frumvarpsins.Við ræddum auglýsingaherferðir við Valgeir Magnússon einn eiganda Pipar auglýsingastofu.
Þann 17. júní næstkomandi verða 25 ár liðin frá Suðurlandsskjálftunum sem urðu árið 2000. Af því tilefni hefur Rangárþing ytra sett af stað söfnun á jarðskjálftasögum, það er frásögnum fólks sem upplifði skjálftana sem urðu dagana 17. og 21. Júní. Við ætlum að rifja upp fréttir frá þessum degi og heyra í Ösp Viðarsdóttur sem er markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra.
Árni Matthíasson sérfræðingur á fréttastofu ruv og sérstakur sérfræðingur Síðdegisútvarpsins kom til okkar og ræddi við okkur um gervigreind og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að þessari nýju tækni.
Eitt af afmælisbörnum dagsins er knattspyrnumaðurinn Ásgeir Sigurvinsson. Ásgeir er sjötugur í dag og við hringdum af því tilefni í Víði Sigurðsson fréttamann á Morgunblaðinu og fengum hann til að rýna í feril Ásgeirs og setja hann í samhengi við daginn í dag.
Fréttir
Fréttir
Bandaríkjamaðurinn Robert Prevost var kjörinn páfi síðdegis. Hann hefur tekið sér nafnið Leó fjórtándi. Hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að sitja á páfastóli.
Héraðssaksóknari segir að ábyrgð á stuldi gagna frá embætti sérstaks saksóknara og lögreglu liggi fyrst og fremst hjá þeim sem tóku þau. Ríkislögmaður taki afstöðu til skaðabótakrafna verði þær settar fram.
Héraðsdómur hefur sakfellt þrjá karlmenn fyrir frelsissviptingu sem stóð yfir í á þriðju klukkustund, við Vatnagarða í Reykjavík, stórfellda líkamsárás og kynferðisbrot henni tengdri. Tveir árásarmannanna voru vinir þess sem varð fyrir árásinni.
Um tuttugu fjölskyldur á Nýfundnalandi hafa misst heimili sín í gróðureldi sem kviknaði í gær. Íslenskur slökkviliðsmaður segir að vonast sé til þess að ná tökum á eldinum innan næsta sólarhrings.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Aðeins eitt mál komst að í Speglinum að þessu sinni. Hleranir eftirhrunsáranna og gagnastuldur frá sérstökum saksóknara. Rætt er við Sigurð G. Guðjónsson lögmann, sem var verjandi Sigurjóns Árnasonar fyrrverandi bankastjóra og þingmennina Víði Reynisson og Ingibjörgu Isakesen.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Tónarunur - Give Me Your Word
Housebuilders - The Samba
Oh Mama - Ljáðu mér eyra
Intr0beatz - Stillness in Motion
Addi Stefánsson - Gotta Keep Going

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Rósa Birgitta Ísfeld.
Glæný tónlist úr öllum áttum og spennandi plötur væntanlegar. Heyrðum í Nia Archives, Yuuf, Azymuth , Straff, Mocky, Gugusar Pink Butter og fleirum.
Júníus Meyvant - Raining over fire
Emma -Jean Thackray - Save me
Stereolab - Melodie is a wound
Azymuth - Arabuta
Mitchum Yacoub - Walky
Taylor Aron Parker Williams - Dreaming
YUUF - Alma´s Cove
Patrekurros & Tinna Líf - All in
Nilufer Yanya - Cold Heart
Sampha & Little Simz - Satellite business 2.0
Pink Butter - Can we go back
Black Atlass - Dive Bar
BADBADNOTGOOD - Found a light( Beale Street)
Saya Gray - Line Back 22
Steinunn Jónsdóttir - Stiklað á stóru
Saint Etienne - Alone Together
Portugal, The Man - V.I.S.
Neil Frances - Teardrops
Straff - Allt of mikið stundum
Jambonne - Jambonne, Jam On
Holy Hrafn & Dr. Vigdís Vala - Tjarnarbófarnir
XXX Rotweiler Hundar - Karma
Mick Jenkins - Jazz
Elmiene - Light Work ( Remix )
Mocky - Music will explain
Caamp - Let things go
Folamour - Easy to love
Victoria Port - Haunting ( Murder he wrote remix )
Gugusar - Reykjavíkurkvöld
Chris Lake - Beggin
Proc Fiskal - 10am Est.Rd 2018
Amor Vincit Omnia - Eina
Cheetah - Get loose
Gusgus - Rivals ( Alex Kaspersky remix )
Kendrick Lamar - Humble
Cousin Kula - Move over