13:20
Lesandi vikunnar
Gísli Einarsson

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Einarsson sjónvarpsmaður með meiru. Við þekkjum hann auðvitað úr Landanum og fjölda annarra sjónvarspþátta, en í dag stökk hann inn með skömmum fyrirvara til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Tálknfirðingur BA – e. Ólaf Svein Jóhannesson

Einmanna – e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur

Þjóðsögur Jóns Árnasonar - ritröðin öll

Kóngulóin e. Lars Kepler

Hundrað kvæði e. Þórarinn Eldjárn

Snorri Sturluson og Jón Trausti.

Var aðgengilegt til 04. maí 2025.
Lengd: 15 mín.
,