15:00
Útvarpsleikhúsið: Vondi hirðirinn
Þáttur 4: Einkasafn

Allir hlutir eiga sér sögu. Friðgeir Einarsson fer oft í Góða hirðinn og veltir þá fyrir sér sögu hlutanna sem hann sér þar. Stundum rekst hann á hluti sem líta út fyrir að eiga ekki að vera þar, persónulega hluti sem hafa mögulega orðið viðskila við eiganda sinn fyrir slysni. Hvað er þá til ráða? Í þáttaröðinni Vondi hirðirinn gerir hann tilraun til að skila nokkrum slíkum munum til eigenda sinna.

Friðgeir finnur myndaalbúm sem enn eru myndir í. Myndirnar eru greinilega úr einkasafni og freistar Friðgeir þess að hafa upp á fólkinu á myndunum. Í þættinum heyrum við í Maríu Hjálmtýsdóttur, Kristínu Hauksdóttur, Hannesi Óla Ágústssyni og Guðbjörgu Guðmundsdóttur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
,