Birta er að lesa fyrir Bárð en hann er nú eitthvað mikið þreyttur eftir jólin enda ekki skrítið því að þau stóðu í ströngu öll jólin. Fyrst að flytja þau til Súper, síðan að bjarga þeim frá vondum öflum og ekki nóg með það heldur voru þau svo kölluð í skyndi aftur niður til jarðarinnar til þess að bjarga jólaballi Sjónvarpsins. Birta segir honum frá því að þessi törn sé nú alls ekki búin, þrettándinn sé eftir. Bárður veit náttúrulega ekkert hvað það er svo hún útskýrir það fyrir honum. Hún segir honum frá álfabrennum o.fl. en Bárður lætur hana nú vita að álfar eru ekki til. Birta er mjög hugsi yfir því hvernig hún getir sannfært Bárð um að álfar og huldufólk séu í rauninni til. En hver er það sem birtist svo? Þetta er hann Hreinn álfur sem að birtist þarna heima hjá henni Birtu og að sjálfsögðu er Bárður ekki á svæðinu.
Stundin okkar 2004.01.04 : 15. Þáttur
Dagskrárliðurinn er textaður.
Birt
30. mars 2019
Aðgengilegt til
25. ágúst 2027
Stundin okkar
Umsjón: Jóhann G. Jóhannson og Þóra Sigurðardóttir
Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson og Hlíf Ingibjörnsdóttir