Bárður og Birta eru að tefla og Birta byrjar að raula jólalag og þau fara að spjalla um jólin og allt sem því fylgir. Eitt af því er jóladagatal Sjónvarpsins en það heitir Klængur sniðugi. Birta er að lesa í blaði um einhverja keppni þar sem veglegir vinningar eru í boði. Bárður kemur með þá hugmynd um að taka þátt og vill vinna þessa keppni. Hann er ólmur að byrja á því sem að maður þarf að gera til þess að vinna. Þegar Birta segir honum að þetta sé föndurkeppni þá missir hann svolítið móðinn, hann þolir nefnilega ekki föndur. En þegar Þóra minnir hann á verðlauninn þá ákveður hann að hann skuli föndra.
Stundin okkar 2003.11.23 : 8. Þáttur
Dagskrárliðurinn er textaður.
Birt
30. mars 2019
Aðgengilegt til
24. ágúst 2027
Stundin okkar
Umsjón: Jóhann G. Jóhannson og Þóra Sigurðardóttir
Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson og Hlíf Ingibjörnsdóttir