Þátturinn byrjar á því að við sjáum Björgvin Franz í vinnunni á ævintýraganginum. Hann er að fara með aukahár í halan á Búkollu ofl. Hann spjallar svo við skóna og klukkuna í kompunni. Þeim finnst eins og þau eigi eitthvað eftir, að þau hafi ekki uppfyllt hlutverk sitt í ævintýri ennþá, en hvaða ævintýri? Björgvin ætlar að hjálpa þeim að leita af ævintýrinu þeirra.