Stundin okkar byrjar á því að norn kemur inn um drungalegar dyr í nýju heimkynnum Björgvins, húsvarðarkompunni á ævintýraganginum. Nornin skilur þar eftir poka með ýmsum ævintýramunum en þarf að rjúka í burtu þegar Björgvin kemur og truflar hana. Björgvin er nú ekki nógu ánægður með nýju heimkynnin, finnst þessi kompa mjög draslaraleg. Björgvin fær sitt fyrsta bréf úr ævintýrasíritanum og það er frá Fransínu, hún bendir honum á húsvarðagallann.