Stormur
Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.