Þórhildur Garðarsdóttir, formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur (KR), kom til okkar að ræða nýtt átak félagsins gegn notkun nikótínpúða, þar sem markmiðið er að vekja athygli á skaðsemi þeirra, sérstaklega meðal ungra iðkenda, og hvetja íþróttafólk til að vera góðar fyrirmyndir.
Við kíkjum í stutta heimsókn yfir Fossvoginn – alla leið í Kópavogslaug þar sem við ræðum við íbúa um lífið í bænum. Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður og mikill talsmaður Kópavogs, mætti til okkar í stúdíóið og fór yfir málefni bæjarins.
Reikniformúlur ríkisins eru flestar ónæmar á þjónustuálag og íbúasamsetningu Suðurnesja. Þetta er mat Hjördísar Evu Þórðardóttur, sérfræðings í réttindum og velferð barna. Þrátt fyrir að þarfavísitalan þar sé sú hæsta á landinu fá sveitarfélögin á svæðinu minnstu úthlutunina úr Jöfnunarsjóði. Við ræddum við Hjördísi um þessi mál.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í velferðarnefnd vilja skipa rannsóknarnefnd um aðgerðir stjórnvalda tengdar COVID-19. Þingmennirnir vilja meðal annars að áhrif viðbragðanna við heimsfaraldrinum á íslenskt samfélag, efnahagsmál og hagsmuni einstaklinga verði skoðuð. Þá vilja þeir að sóttvarnaaðgerðirnar verði skoðaðar sérstaklega með hliðsjón af mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Sigurður Örn Hilmarsson, framsögumaður tillögunnar, sagði okkur frá henni.
Grindavík og Hveragerði eru þeir þéttbýliskjarnar þar sem hraunavá vegna mögulegraeldsumbrota á Reykjanesskaga er metin hvað mest. Á höfuðborgarsvæðinu er Hafnarfjörður það bæjarfélag sem er berskjaldaðast fyrir hraunflæði en þar eru líkur á hraunflæði víða metnar miklar. Þetta kemur fram í skýrslum um langtímahættumat vegnahraunavár á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga sem komu út í dag. Við ræddum við Bergrún Örnu Óladóttur, jarðfræðing og einn af skýrsluhöfundum, um helstu niðurstöðurnar.
Hvað er gott í sjónvarpinu? Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðandi, leit við með nokkrar góðar hugmyndir í hámhorfið.