Sjónvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
Beint
RÚV
RÚV2
Dagskrá
Leit
Þættir
Eva Ágústa Aradóttir
Hún er einhverf transkona og var lengi að leita að hamingjunni. Eva Ágústa Aradóttir er gestur í Okkar á milli.
Birgir Örn Steinarsson
Hann er listamaður á mánudögum og hina dagana vinnur hann sem sálfræðingur. Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur og tónlistarmaður er gestur í Okkar á milli.
Tómas Guðbjartsson
Hann er alltaf að flýta sér nema á stofugangi, þegar hjúkrunarfræðingunum finnst hann spjalla helst til lengi við sjúklingana sína. Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er gestur í…
Margrét Jónsdóttir Njarðvík
Sterkar fyrirmyndir skipta Margréti miklu máli. Hún fær endalausarr hugmyndir og framkvæmir þær eiginlega allar. Margrét Jónsdóttir Njarðvík er gestur í Okkar á milli.
Einar Þór Jónsson
Hann er bjartsýnn og hugarakkur og heldur óhikað áfram þrátt fyrir að vera í miðju sorgarferli. Nú er hann á enn einum vegamótum í lífi sínu. Einar Þór Jónsson er gestur í Okkar á…
Erla Bolladóttir
Þegar Erla Bolladóttir fékk afsökunarbeiðni frá Forsætisráðherra upplifði hún í fyrsta skipti að vera laus úr haldi. Erla Bolladóttir er gestur í Okkar á milli.
Lenya Rún Taha Karim
Lenya Rún er varaþingmaður Pírata. Hún glímir við átröskun og var föst í því að vera fullkomin. Viku eftir að hafa verið gestur í Silfrinu var hún lögð inn á Klepp. Lenya Rún er gestur…
Vigdís Häsler
Hún lagði inn lögmannsréttindin sín til að verða formaður Bændasamtakanna. Vigdís Häsler sem talar með norðlenskum hreim er gestur í Okkar á milli.
Arnór Guðjohnsen
Hann var kallaður hinn hvíti Pele þegar hann fór út í atvinnumennsku á sautjánda ári til Belgíu og segist hafa stundað slökun og hugleiðslu á milli leikja. Arnór Guðjohnsen er gestur…
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Hún var stödd í umferðinni og mundi ekki hvar hún var eða hvert hún var að fara. Þá vissi hún að eitthvað alvarlegt væri að. Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona er gestur í Okkar á…
Aðalsteinn Árnason
Þegar Aðalsteinn hrapaði niður 25 metra sprungu í Grænlandsjökli ákvað hann að hann ætlaði að lifa af. Tuttugu árum seinna mætti hann aftur á jökulinn og sagði jöklinum söguna. Aðalsteinn…
Sigrún Eðvaldsdóttir
Hvað gerir handleggsbrotinn konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands? Jú, hann situr úti í sal og dásamar félaga sína. Hin glaðværa Sigrún Eðvaldsdóttir er gestur Sigurlaugar í…
Sólveig Ólafsdóttir
Það er sama hvernær áföllin verða í lífinu, einhverntímann þarf að gera þau upp. Sólveig Ólafsdóttir er gestur í Okkar á milli.
Þorsteinn Guðmundsson
Þorsteinn ætlaði að verða dramatískur leikari en endaði sem sálfræðingur þar sem hann aðstoðar fullorðið fólk við að vinna úr áföllum.
Herdís Anna Þorvaldsdóttir
Herdís Anna Þorvaldsdóttir er gestur Sigurlaugar í Okkar á milli. Hún varð fyrir lífshættulegri hnífaárás á heimili sínu.
Jón Gunnar Geirdal
Jón Gunnar Geirdal er oft kallaður frasakóngur Íslands en hann er miklu meira en það. Sigurlaug Margrét ræðir meðal annars við hann um sköpunarkraftinn og sorgina.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, hefur rétt upp hönd alla ævi og hefur ávallt eitthvað til málanna að leggja. Hún fór í mannréttindalögfræði til að bjarga heiminum. Þórhildur…
Guðni Gunnarsson
Guðni Gunnarsson þjálfari og heilræktarfrömuður er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli. Þau ræða hamingjuna, ábyrgð og sátt við lífið og annað fólk.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli. Þau ræða meðal annars sumarið, veiðar, einmanaleika og æðruleysisbænina.
Snorri Ásmundsson
Hann er eins og kötturinn, fer sínar eigin leiðir og leitar uppi ævintýri. Þegar banna átti lausagöngu katta á Akureyri leyst honum illa á. Snorri Ásmundsson er gestur Sigurlaugar…
Malín Brand
Malín Brand, blaðamaður, hefur hlotið dóm og verið útskúfuð. En það var ekki í fyrsta skiptið sem hún upplifði útskúfun. Malín er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Sóley Tómasdóttir
Sóley Tómasdóttir, konan sem margir hafa reynt að þagga niður í er orðin vinsæl á Íslandi. Hún hjálpar fyrirtækjum að bæta vinnustaðamenningu. Fær borgað fyrir það að tala um það sem…
Erpur Eyvindarson
Erpur Eyvindarson á það til að hneyksla fólk og vera með kjaft, en í raun er hann kurteis drengur sem fékk menningarlegt uppeldi með áherlsu á andlegan auð. Erpur er gestur Sigurlaugar…
Anna Lind Vega Borgþórsdóttir
Anna Lind Vega Borgþórsdóttir komst að því tíu ára gömul að faðir hennar væri ekki blóðskyldur henni. Fósturfaðir hennar lést þegar hún var enn ung og eftir að hafa huggað móður sína…
Gunnar Hilmarsson
Gunnar Hilmarsson, fatahönnuður, tónlistarmaður, frumkvöðull og hvaðeina er gestur kvöldsins í Okkar á milli.
Baldvin Z
Kvikmyndagerðarmaðurinn Baldvin Zophaníasson, betur þekktur sem Baldvin Z, var 12 ára þegar hann missti móður sína úr brjóstakrabbameini. Hann ólst jafnframt upp við flókið fjölskyldumynstur…
Kristjana Stefánsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona eignaðist soninn Lúkas fyrir átján árum. Þegar hann fæddist og þangað til hann var sextán ára gamall taldi hún hann vera stúlku.
Helga Rakel Rafnsdóttir
Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona greindist á þessu ári með MND, sem er banvænn hreyfitaugasjúkdómur. Faðir hennar, tónlistarmaðurinn Rafn Ragnar Jónsson eða Rabbi, lést…
Barnalæsing óvirk