Morgunútvarpið

Umdeild sundferð,Þorgrímur Þráins,RS vírusinn,lægðin og kynferðisbrotum gegn börnum fjölgar

Haustið er gengið í garð með tilheyrandi umgangspestum. Undanfarið hafa allt að 200 börn á fyrsta aldursári leitað á Barnaspítalann eftir að hafa sýkst af RS veirunni og þar af hafa allt að 60 börn þurft að leggjast inn á sjúkrahús. Síðastliðinn vetur var boðið upp á nýja fyrirbyggjandi meðferð gegn RS á Íslandi og árangurinn var frábær; mikil fækkun varð á staðfestum sýkingum og innlögnum hjá þessum aldurshópi. Nú er farið að bjóða börnum þessa meðferð fyrir komandi vetur og Valtýr Stefánsson, barnasmitsjúkdómalæknir Barnaspítala Hringsins, verður á línunni og segir okkur frá þessu.

Í tölfræði frá lögreglunni kemur fram að um 350 kynferðisbrot hafi verið tilkynnt á fyrri helmingi ársins og að þau hafi ekki verið fleiri frá árinu 2021. Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgar mikið milli ára og tæplega helmingur brotaþola voru börn. Kristján Ingi Kristjánsson, lögreglufulltrúi kynferðisafbrotadeild, kemur í Morgunútvarpið og ræðir við okkur um þetta. Í ljósi fjölgunar stafrænna kynferðisbrota og hás hlutfalls barna meðal brotaþola munu ríkislögreglustjóri og lögregluembættin í samstarfi við fjölda stofnana og samtaka standa fyrir vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna í október.

Í talsverðan tíma höfum við reynt að ná í skottið á Þorgrími Þráinssyni í gott spjall um nýju bækurnar og æsku landsins sem hann ferðast reglulega um og hittir. Hann sendi nýlega frá sér bókina Ég kom til að gráta, 37 árum eftir að hann lagði að henni fyrstu drög. Þorgrímur kíkir í kaffi.

Lægð sem þokast frá Bandaríkjunum gæti orðið sú krappasta sem gengur yfir landið í októbermánuði í rúm sextíu ár. Við heyrum í Teiti Arasyni veðurfræðingi.

Sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku hefur vakið mikla athygli. Þingmennirnir laumuðust í sund í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku og frömdu húsbrot að mati Ásthildar Lóu Þórisdóttur þingmanns Flokks fólksins. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, segir hins vegar ekkert fréttnæmt við sundferðina. En hvað finnst innfæddum um málið? Á línunni verður heimamaðurinn Thorberg Einarsson sjómaður.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,