Kvöldstund 1972 -1973

Þáttur 8 af 8

Í lokaþætti Kvöldstundar veturinn 1972–1973 er litið yfir farinn veg með brotum úr fyrri þáttum, vinsælum tónlistaratriðum og leikþáttum Gísla Rúnars Jónssonar og Júlíusar Brjánssonar.

Meðal tónlistaratriða eru flutningur Hauks Morthens á Ég kem kveðja, Vilhjálms Vilhjálmssonar á Sæl þú sefur, Jóhanns Konráðssonar á Ég gleymi því aldrei, og Magnúsar Kjartanssonar og Shady Owens á Life is so easy, auk fleiri laga með Óðni Valdimarssyni, Ragnari Bjarnasyni, Guðrúnu Á. Símonar og Þuríði Sigurðardóttur. Þá flytja Símon Ívarsson og Kjartan Eggertsson gítarverk og Lárus Ingólfsson rifjar upp revíuatriði úr Allt í lagi laxi.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. maí 1973.

Birt

24. nóv. 2020

Aðgengilegt til

20. júní 2026

Kvöldstund 1972 -1973

Skemmtiþættir frá áttunda áratugnum. Helstu listamenn þjóðarinnar skemmtu í sjónvarpssal. Umsjón: Jónas R. Jónsson og stjórnandi upptöku: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,