Kvöldstund 1972 -1973

Þáttur 1 af 8

Í fyrsta þætti Kvöldstundar veturinn 1972–1973 leiða Ríó tríó áhorfendur í gegnum fjölbreytta skemmtun. Meðal atriða er Landhelgisbragur, auk flutnings Steinunnar Karlsdóttur á He’s Got a Ticket to Ride og harmóníkuleiks Guðjóns Matthíassonar í laginu Tveir vinir.

Á milli tónlistaratriða flytja Gísli Rúnar Jónsson, Júlíus Brjánsson og Þórhallur Sigurðsson stutta leikþætti; Hjá píanókennaranum, Maður og dyr og Veðurmaðurinn. Einnig koma fram Sólskinsbræður, gítarleikararnir Símon Ívarsson og Kjartan Eggertsson, og Bjarki Tryggvason með lagið Í sól og sumaryl.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. nóvember 1972

Birt

20. okt. 2020

Aðgengilegt til

20. júní 2026

Kvöldstund 1972 -1973

Skemmtiþættir frá áttunda áratugnum. Helstu listamenn þjóðarinnar skemmtu í sjónvarpssal. Umsjón: Jónas R. Jónsson og stjórnandi upptöku: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,