Krakkakastið
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Fríða María elskar að ferðast og í hverjum þætti tekur hún fyrir land sem hún hefur nú þegar ferðast til eða langar að koma til í framtíðinni. Þegar hún var pínulítil fór hún til Argentínu en þangað hafa amma hennar og afi oft komið til að dansa. Fríða María segir okkur alls kyns skemmtilegar staðreyndir um land og þjóð og seinni hlutanum fær hún til sín góðan gest. Afi Fríðu, Kristinn, kemur í spjall, kennir okkur smá spænsku og fræðir okkur um tangó!
Viðmælandi: Kristinn Jónsson.
Stjórnandi: Fríða María Ásbergsdóttir.
Verkleg umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.