Kiljan

25. mars 2026

það er venju fjölbreyttur og fróðlegur Kiljuþáttur á miðvikudagskvöld. Eva Björg Ægisdóttir segir frá spennusögunni Myrkravaldi sem hún skrifar ásamt frönskum rithöfundi, Jérôme Loubry nafni. Við fjöllum um merkilegan mann en allsendis óþekktan, Guðmund Arnfinnsson - en um hann flytur Kristján Guðjónsson útvarpsþátt á Rás 1 á páskadag. Guðmundur var bók- og listhneigður einfari, samdi kvæði og vísur, málaði og batt inn bækur, og kom sér upp gríðarlegu bókasafni. Það er varðveitt á Hraunhálsi á Snæfellsnesi, í vélaskemmu sem hefur verið breytt í bókahús. Við brugðum okkur þangað og spjöllum við húsráðanda, Jóhannes Eyberg Ragnarsson. Hrannar Bragi Eyjólfsson hefur ritað ævisögu afa síns, séra Braga Friðrikssonar, og segir okkur frá henni. Í Bókum og stöðum förum við í Árneshrepp á Ströndum þar sem verða á vegi okkar Hrafn Jökulsson, Vigdís Grímsdóttir og Þórður kakali. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, Vininn eftir Sigrid Nunez og Líf eftir Reyni Finnberg Grétarsson.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

25. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,